:

Hver er ávinningur Íslendinga af fyrirgreiðslu við erlenda fjárfesta?

Raflínur og álver “Embættismenn í orkugeiranum hafa sagt að það sé siðferðisleg skylda landsmanna að virkja fyrir stóriðju. Hér á landi er fólk vant að trúa því sem því er sagt. Í slíku umhverfi kann að vera hollt að skoða það sem erlendar efnahagsstofnanir hafa að segja um málið. Þær hafa það fram yfir íslenskar stofnanir sem fjalla um málið að þær eru óháðar íslenskum stjórnvöldum. Efnahags- og framfarastofnunin, OECD, hefur undanfarin ár látið í ljós áhyggjur af því í skýrslum sínum um Ísland að stuðningur við stóriðju í formi opinberra ábyrgða á virkjunum og skattaafsláttar hamli gegn viðgangi þekkingariðnaðar hér á landi. Á sínum tíma sagði stofnunin að æskilegt hefði verið að láta einkafyrirtæki um Kárahnjúkavirkjun. Þannig hefðu skattgreiðendur losnað við áhættuna af verkefninu ,,og einnig hefði þannig mátt prófa arðsemi virkjunarinnar á frjálsum markaði“.

this article continues, read more...



Sigurður Jóhannesson
31. December 2008 20:16
Origin:

Einkunn

The year is gone

This video has been circulating on the internet and shows a catastrophic view of the world to say the least. Now at the eve of new year it might be time to contemplate our situation in the big perspective. As illustrated dramatically in this video our planet is not everlasting nor immutable. We only have this place and we must treat it well.

 Nature.is wants to wish everyone happy new and sustainable new year.

 


details

Einar Bergmundur
31. December 2008 18:00
Origin: Náttúran.is

Einkunn

Gæti þurft að henda þúsundum plantna

Trjáplanta á landareign Gert er ráð fyrir miklum niðurskurði á framlögum til skógræktarverkefna í tillögum ríkisstjórnarinnar að breyttum fjárlögum fyrir árið 2009. Alls nemur niðurskurðurinn tæpum 112 milljónum króna í landshlutabundnum skógræktarverkefnum en heildarupphæðin sem ætluð er til málaflokksins er 447,7 milljónir króna. Er það um 20 prósenta niðurskurður á framlögum frá því sem lagt var til þegar fjárlagafrumvarpið var fyrst lagt fram. Heildarupphæð sem áætluð er til þessara verkefna á árinu 2009 er því 65,7 milljónum krónum lægri en sú upphæð sem rann til málaflokksins á fjárlögum líðandi árs en þá var framlagið 513,4 milljónir króna. Auk þess er gert ráð fyrir að skorið verði niður í rannsóknum í skógrækt í þágu landbúnaðarins um 1,3 milljónir króna.

Bitnar eingöngu á landsbyggðinni
Björn B. Jónssonframkvæmdastjóri Suðurlandsskóga segir að ef af þessari skerðingu verði sé það gríðarlegt högg. „Mér sýnist að ef af þessu verður þá þurfi að henda einhverjum þúsundum plantna sem þegar er búið að ganga frá samningum um kaup á í gegnum Ríkiskaup. Þetta þýðir niðurskurð á launum til bænda og það má auðvitað segja að þarna sé á ferðinni niðurskurður sem bitnar eingöngu á landsbyggðinni. Þetta er mjög slæmt mál, sérstaklega núna þegar þessi verkefni voru farin að ganga gríðarvel. Hver einasta króna sem sett hefur verið í þennan málaflokk hefur verið að nýtast og um 80 prósent af þessum fjármunum hafa farið í launagreiðslur. Þetta eru gríðarlega róttækar aðgerðir og ég er mjög uggandi vegna þessa.“

Ekki í samræmi við markmið í loftslagsmálum
Valgerður Jónsdóttir framkvæmdastjóri Norðurlandsskóga tekur í sama streng og Björn. „Mín viðbrögð eru fyrst og fremst vonbrigði. Þarna hefði verið tækifæri til að auka atvinnusköpun á landsbyggðinni og ekki veitir nú af í þessu árferði. Þetta getur haft mjög vond áhrif til framtíðar og mun fyrst og fremst bitna á bændum og gróðrarstöðvunum. Það er nú svo að skógrækt er því marki brennd að það þarf að gera áætlanir til framtíðar og trjáplöntur er ekki hægt að geyma von úr viti frekar en mjólk. Það gæti alveg farið svo að það þyrfti að henda plöntum.“

Valgerður bendir jafnframt á að þessi ákvörðun sé trauðla í takt við markmið Íslands í loftslagsmálum. „Það er engin leið betri til að binda koltvísýring en skógrækt og þetta dregur auðvitað verulega úr þeim árangri.“ Forsvarsmenn skógræktarverkefnanna funduð með fulltrúum landbúnaðarráðuneytisins á föstudaginn var og segir Valgerður að auðvitað sé ráðuneytinu þröngt sniðinn stakkurinn. „Það ríkti engin gleði með þetta þar og mér heyrðist á máli manna að litlar lýkur væru á að dregið yrði úr þessum niðurskurði. Þetta er hið versta mál því þessi niðurskurður snertir ákaflega marga.“


details

Bændablaðið
30. December 2008 20:43
Origin: Bændablaðið

Einkunn

Ríkisstyrkur til Norðuráls?

Náttúruverndarsamtök íslands Frétt Morgunblaðsins í dag af fjárhagslegum stuðningi ríkisstjórnarinnar við álver Norðuráls í Helguvík á sömu forsendum og milljarðastuðningur við álver Alcoa í Reyðarfirði og Norðurál á Grundartanga bendir til að ríkisstjórnin hyggist lejggja Norðuráli til nokkra milljarða til að auðvelda fjármögnun.

Morgunblaðið bendir á, að áður en samningur ríkisins við Norðurál verður undirritaður, verði „fyrst að tilkynna hann, líkt og alla opinbera styrki af þessu tagi, til Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA) sem síðan skilar umsögn um samninginn. Þegar því er lokið fer hann fyrir Alþingi til samþykktar."

Umsögn (eða úrskurður) Eftirlitsstofnunar ESA snýst um hvort ríkisstyrkur til Norðuráls hamli samkeppni (milli álfyrirtækja) eða hvort um sé að ræða styrk til að efla byggð á Suðurnesjum. Þannig var 2,6 milljarða styrkur ríkisins (á gengi ársins 2003) til Alcoa Reyðaráls skilgreindur sem byggðatyrkur.

Sjá hér að neðan nokkrar athyglisverðar spurningar Dofra Hermannssonar - sem ESA hlýtur að velta fyrir sér. Af bloggsíðu Dofra:

this article continues, read more...



Árni Finnsson
30. December 2008 08:14
Origin: Dofri Hermannsson / NSÍ - Náttúruverndarsamtök Íslands

Einkunn

Bann við notkun ósoneyðandi efna

Ósonlagið yfir SuðurskutionuUmhverfisráðuneytið vekur athygli útgerðarmanna og eigenda báta og skipa á að frá 31. desember 2008 er óheimilt að hafa og nota halón 1301 slökkvikerfi um borð í skipum og bátum. Þá vekur umhverfisráðuneytið athygli innflytjenda og notenda ósoneyðandi kælimiðla (vetnisklórflúorkolefna) að árið 2009 er síðasta árið sem heimilt verður að flytja þessi efni inn til landsins.

Ósoneyðandi slökkvimiðlar

Notendur slökkvikerfa með halón 1301 þurfa að huga nú þegar að breytingum á slökkvikerfum sínum. Til eru á markaði staðgengilefni sem ekki eyða ósonlaginu.

Unnið hefur verið að því að hætta notkun halóns í skipum og bátum síðan árið 2002. Öll skip áttu að vera búin að fjarlægja halón 1301 úr vélarrúmum 1. janúar 2004. Síðla árs 2003 sótti Landssamband íslenskra útvegsmanna um undaný águ frá þessu ákvæði reglugerðarinnar. Skipum og bátum hefur verið veitt undaný ága og frestur til að skipta út halón 1301 lengst til 31. desember 2008. Nú um áramót á því að vera lokið við að skipta út halóni 1301 í öllum skipum.

Ósoneyðandi kælimiðlar

Athygli innflytjenda og notenda ósoneyðandi kælimiðla (vetnisklórflúorkolefna) er vakin á því að árið 2009 er síðasta árið sem heimilt verður að flytja þessi efni inn til landsins. Efnin eru nánast eingöngu notuð á kæli- og frystikerfi skipa og einnig í minni kælibúnað í landi.

Jafnframt er athygli sömu aðila vakin á að samkvæmt gildandi reglugerð er heimilt að flytja inn endurunnin vetnisklórflúorkolefni til ársloka 2014. Á þessu gæti orðið breyting því að í drögum að nýrri reglugerð Evrópusambandsins er gert ráð fyrir að innflutningur á endurunnum HCFC kælimiðlum verði bannaður frá 1. janúar 2010. Gangi það eftir mun bannið gilda á öllu Evrópska efnahagssvæðinu og óheimilt yrði að flytja þessi efni inn frá svæðum utan þess.

Mikilvægt er að notendur þessara efna fari að huga nú þegar að breytingum á kæli- og frystikerfum sínum eða endurnýjun þeirra. Til eru á markaði kælimiðlar sem eyða ekki ósonlaginu. Mikilvægt er að huga að þessum breytingum í tíma svo ekki komi til stöðvunar fiskiskipaflotans vegna skorts á kælimiðlum þegar og ef reglugerð Evrópusambandsins tæki gildi.

this article continues, read more...



Guðmundur Hörður Guðmundsson
29. December 2008 16:29
Origin: Umhverfisráðuneytið

Einkunn

1234206207208

2005   2006   2007   2008   2009   2010   2011   2012  
jan   feb   mar   apr   may   jun   jul   aug   sep   oct   nov   dec  

Nature's Market

How do I shop at Nature's Market?
  • Departments
  • Cart
  • Product search
  • Guidelines
  • Disclaimer
Indicator

Fréttir frá: