:
Framfylgd skilyrða í úrskurði um Kárahnjúkavirkjun könnuð
Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra hefur falið Umhverfisstofnun að kanna hvernig staðið hefur verið við þau skilyrði sem umhverfisráðuneytið setti í úrskurði um mat á umhverfisáhrifum Kárahnjúkavirkjunar í desember 2001.
Í úrskurði ráðuneytisins var fallist á framkvæmdina með 20 tölusettum skilyrðum sem var ætlað að draga úr umhverfisáhrifum virkjunarinnar. Framkvæmdaraðila var falið að sjá til þess að skilyrðunum yrði fullnægt. Rekstur virkjunarinnar hefur nú staðið í á þriðja ár.
Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra segist hafa fengið ábendingar um að ekki hafi verið staðið við öll skilyrðin sem sett voru í úrskurðinum og þess vegna hafi hún falið Umhverfisstofnun að kanna það sérstaklega.
Sjá úrskurð ráðuneytisins um umhverfisáhrif Kárahnjúkavirkjunar.
details
Umhverfisráðuneytið
31. March 2010 16:47
Origin: Náttúran.is
Einkunn
Óður til hreindýrsins
Ríki Vatnajökuls stendur fyrir málþing á Vetrarhátíð WOW undir yfirsögninni \342\200\236Óður til hreindýrsins\342\200\234 en málþingið verður haldið í Nýheimum á Höfn í Hornafirði miðvikudaginn 31.mars nk.
Setning 10:30 Signý Ormarsdóttir Menningarráði Austurlands
- Saga hreindýra á Íslandi, Skarphéðinn G. Þórisson Náttúrustofa Austurlands
- Lifnaðarhættir hreindýra í nýju ljósi, Skarphéðinn G. Þórisson NA
- Veiðistjórnun hreindýraveiða, Jóhann G. Gunnarsson UST
- Hreindýr í ferðaþjónustu, Ásta Þorleifsdóttir Markaðsstofa Austurlands
12:00 - 13:00 Hádegishlé og handverksupplifun
- Hreindýrabóndi á Íslandi- reynslusaga, Aðalsteinn Jónsson Klausturseli Jökuldal
- Upplifun veiðimannsins, Emil Björnsson
- Með linsuna að vopni, Skúli Ben hreindýraleiðsögumaður
- Auðlendur, Fjölnir Torfason ferðaþjónustubóndi, Hala í Suðursveit
- Auðlindin hreindýr, hagsmunasamtök um nýtingu hreindýra, Aðalsteinn Jónsson
- Vinir Vatnajökuls, hollvinasamtök Vatnajökulsþjóðgarðs, Kristbjörg Hjartardóttir
14:30 - 14:45 Kaffihlé
14:45 - 15:30 Pallborðsumræður, stjórnandi Þorvarður Árnason Umhverfisfræðingur
Handverksfólk og hönnuðir sýna og selja afurðir sínar í miðrými Nýheima
16:00 - 18:00 Óvissuferð á hreindýraslóðir með meiru
19:30 Matur úr héraði, Hótel höfn kvöldverður úr matarkistu Austur og Suðausturlands
Óður til hreindýrsins, Charles Ross frumflytur tónlistaratriði
Tilkynna þarf þátttöku fyrir föstudaginn 26. mars, tilkynna þarf sérstaklega þátttöku í kvöldverð
Fundarstjóri er Rósa Björk Halldórsdóttir, framkvæmdastjóri Ríki Vatnajökuls, ferðaþjónustu, matvæla,- og menningarklasa Suðausturlands
details
Rósa Halldórsdóttir
25. March 2010 10:16
Origin:
Einkunn
An Open Meeting on Life Cycle Assessment
The study program in Environment and Natural Resources at the University of Iceland invites you to an open meeting on Life Cycle Assessment (LCA) on Friday, March 26th from 14:30 to 15:45 at the Law Building, Lögberg, room 101. The language of the meeting is English.
What is LCA? How an LCA tool can help on carrying out LCA.
Some practical examples of industries using LCA
Dr. Larisa Maya Altamira, Consultant at PE North West Europe in Denmark.
Examples of the use of LCA in the construction sector
Dr. Harpa Birgisdóttir, Researcher at The Danish Building Research Insititute.
About Life Cycle Assessment:
Life Cycle Assessment (LCA) is a method used to assess the environmental impacts of a product or a product system. The purpose of LCA is to support product design and optimization by assessing where in the life cycle of a product or service the environmental impacts arise and how the design or the production can be changed to reduce the environmental impacts. LCA is often used to compare different solutions.
The use of LCA is increasingly beeing used in regulation within the European Union. The regulation of waste management is one example of that. LCA is also an important part of certification methods for sustainable buildings in Europe. In addition to that volunatary European standards for the performance of LCA within buildings and building materials are under development. Other industry sectors such as the food-processing industry and the steel manufacturers are also playing a key role on integrating LCA in their product design and are starting to establish initiatives for the development of standards or product labels.
This is the second time that a course in Life Cycle Assessment is being provided at the Environment and Natural Ressources Study Program at the University of Iceland. In relation to the course the department invites to an open meeting where the teachers in the course introduce the LCA methodology, how an LCA tool can aid on carrying LCA and sustainability projects, and some examples of the use of LCA.
details
Háskóli Íslands
23. March 2010 15:33
Origin:
Einkunn
Svifryk yfir mörkum og 39% á negldum
Hlutfall negldra dekkja í Reykjavík var talið miðvikudaginn 17. mars. Hlutfallið skiptist þannig að 39% ökutækja voru á negldum dekkjum og 61% var á öðrum dekkjum. Á sama tíma í fyrra var hlutfallið 42% negld á móti 58% ónegldum. Búist er við að styrkur svifryks verði yfir heilsuverndarmörkum í dag og á morgun.
Hvössum vindi er spáð í Reykjavík í dag, 23. mars, en engri úrkomu. Þannig að það er líklegt að svifryksgildi muni fara hækkandi í dag - og farið verði yfir heilsuverndarmörkin í 12 sinn á þessu ári, segir Anna Rósa Böðvarsdóttir heilbrigðisfulltrúi og að jafnframt séu líkur á að svifryksgildi verði há á morgun, 24. mars, þar sem spáin er svipuð. Svifrykið berst meðal annars frá samgöngum í borginni, en ryk hefur safnast upp í vetur, framkvæmdasvæðum og öðrum uppsprettum.
Styrkur svifryks klukkan 10.30 í morgun var 43 míkrógrömm á rúmmetra á mælistöð Umhverfis- og samgöngusviðs við Grensásveg. Ég býst við að mælistöðvarnar við Grensásveg og leikskólann Furuborg munu fara yfir heilsuverndarmörk í dag og á morgun, segir Anna Rósa, en heilsuverndarmörkin eru 50 míkrógrömm á rúmmetra.
details
Gunnar Hersveinn
23. March 2010 14:15
Origin:
Einkunn
Jarðminjagarðar á Íslandi - Eldfjallagarður á Reykjanesskaga
Miðvikudaginn 24. mars næstkomandi verður haldið málþing um jarðminjagarða (Geoparks) á Íslandi í Salnum, Hamraborg 6, Kópavogi.
Dagskrá:
12:30 - 12:40 Setning - Þorsteinn Sæmundsson, formaður Jarðfræðafélags Íslands og forstöðumaður Náttúrustofu Norðurlands vestra
12:40 - 12:50 Ávarp - Svandís Svavarsdóttir, umhverfisráðherra
12:50 - 13:00 Ávarp - Óskar Bergsson, formaður Borgarráðs
13:00 - 13:20 Eldfjallagarður og jarðminjar á Reykjanesskaga - Helgi Páll Jónsson, Náttúrustofu Norðurlands vestra
13:20 - 13:40 Jarðfræði Íslands, sérstaða og tengsl við heimsmynd jarðfræðinnar - Ármann Höskuldsson, Jarðvísindastofnun Háskólans
13:40 - 14:00 Hvers virði er landslag? - Hreggviður Norðdahl, Jarðvísindastofnun Háskólans
14:00 - 14:20 Hvað er jarðminjagarður? - Lovísa Ásbjörnsdóttir, Umhverfisstofnun
14:20 - 14:40 Frá Þingvöllum til Reykjaness: Eldvirknigarður á Suðvesturlandi - Ari Trausti Guðmundsson, jarðeðlisfræðingur
14:40 - 15:10 Kaffi
15:10 - 15:30 Eldfjallagarður á Reykjanesskaga - Ólafur Örn Ólafsson, bæjarstjóri Grindavík
15:30 - 15:50 Aðdráttarafl jarðfræðinnar - hugmyndir um geopark á Íslandi - Rögnvaldur Ólafsson, Stofnun fræðasetra Háskóla Íslands
15:50 - 16:10 Jarðminjagarðar og ferðaþjónusta - Ólöf Ýrr Atladóttir, ferðamálastjóri
16:10 - 16:30 Jarðminjagarður á Suðurlandi - Sveinn Pálsson, sveitarstjóri í VÍk
16:30 - 16:50 Frá Háleyjabungu að Hafnabergi: Jarðminjar, orka, náttúra - Kristján Pálsson, formaður Ferðamálasamtaka Suðurnesja
16:50 - 17:10 Samband jarðfræðilegrar og líffræðilegrar fjölbreytni á Íslandi - Skúli Skúlason, Rektor Háskólans á Hólum
17:10 - 17:20 Lokaorð - Ingvar Atli Sigurðsson, forstöðumaður Náttúrustofu Suðurlands
Fundarstjóri: Hilmar J. Malmquist, forstöðumaður Náttúrufræðistofu Kópavogs
Aðgangur ókeypis. Þátttaka tilkynnist á netfangið steini@nnv.is fyrir 22. mars.
Að málþinginu standa Jarðfræðafélag Íslands, Náttúrustofa Suðurlands, Náttúrustofa Norðurlands vestra, Náttúrustofa Reykjaness, Náttúrufræðistofa Kópavogs, Umhverfisstofnun og Náttúrufræðistofnun Íslands.
details
Umhverfisstofnun
22. March 2010 23:04
Origin:
Einkunn

E -
Sláið inn númer E-efnis eða upphaf heitis, veljið úr listanum og smellið á sækja.
Events calendar
Viðvörun
Búist er við stormi N- og A-lands í nótt. Gildir til 10.02.2012 18:00Meira
















