News
Aðalbláber og bláber
Aðalbláber þarf víst ekki að kenna neinum að borða. Björn í Sauðlauksdal segir í Grasnytjum að Svíar hafi sætukoppana og efstu greinarnar með blöðum á í te og það bæti kvef og örvi blóðrás. Það er eins og við höfum aldrei tekið mark á þessu, kannski fáum við okkur ekki til þess að taka óþroskuð berin, en það er tilvalið að klippa svolítið og hafa í te meðan við erum að bíða eftir að berjatíminn hefjist.
Bláber eru best eins og þau koma af jörðinni ný tínd, út á skyr með rjóma. En eitt haustið var svo mikið af þeim og engin leið að torga öllu saman og frostið kom ekki og áfram voru meiri ber, svo eitthvað varð að gera. Ég hringdi í Huldu svilkonu, því ég mundi að hún hafði gefið mér fína bláberjasultuuppskrift fyrir nokkrum árum, en hún var svolítið hvöss og spurði hvort ég hefði ekki skrifað hana niður úr því hún tókst svona vel síðast, það ætti maður að gera. Þó sá hún aumur á mér og lét mig aftur hafa uppskriftina eða ég fann hana í húsbókinni því hér er hún:
Bláberjasulta
2,5 kg bláber 2,5 kg rabarbari 3–4 kg sykur Sjóðið sykur og rabarbara í korter, setjið berin í og sjóðið áfram í 5–10 mínútur. Setjið út í einn pakka sultuhleypi og sjóðið í 1–2 mínútur. Setjið á þurrar krukkur og lokið meðan sultan er enný á heit með bréfi vættu í etamoni. En nú eru breyttir tímar í sultugerð. Tveimur árum seinna, þegar ég ber þessa uppskrift undir svilkonuna sem er berjatínslukona og elskar útiveru á fjöllum, þá segir hún að hún sé löngu hætt við etamonið. – Ég tek meira að segja bara þvegnar krukkurnar úr búrinu og set beint á þær og er ekkert að sjóða þær og þurrka lengur. Mikið var ég fegin að heyra þetta. Hver kannast ekki við að brenna sig á puttunum við það óhönduglega starf að stemmpilla út eldheitt gler úr bakarofninum. – Ég sulta ekki svo mikið í einu núorðið, sagði svilkonan að auki, – frysti berin og tek svo úr frystinum það sem passar. Forvitnin drap köttinn var uppáhaldstilsvar dótturdætra minna um tíma og notað „út á hvað sem var“. Nú er farið að gera ýmsar tilraunir með kryddtegundir út í sultuna og ekkert síður íslenskar jurtir. Þetta er alvarlegt frávik frá þeirri dönsku kokkamenningu sem hér hefur verið ríkjandi í sultum og kökum alla síðustu öld. En beiska og bitra bragðið fer svo makalaust vel með því sæta og það má prófa sig áfram með aðeins hluta af sultunni, til að vera öruggur.
Úr bókinni Ætigarðurinn - handbók grasnytjungsins eftir Hildi Hákonardóttur. Bókin fæst keypt hér á Náttúrumarkaðinum.
Myndin er af aðalbláberjalyngi. Ljósmynd: Guðrún Tryggvadóttir.
Einkunn
- Farmers' almanac
- Nature-Nanny
- Health
- Nourishment
Related articles:
Farmers' almanac: Winter [105]
Nature-Nanny: In the cauldron [118]
Nature-Nanny: Wild harvest [78]
Health: Recipes [59]
Nourishment: In the kitchen [44]
Nourishment: Recipes [144]
Green Pages:
In the kitchen [1]

E -
Sláið inn númer E-efnis eða upphaf heitis, veljið úr listanum og smellið á sækja.
Events calendar
Viðvörun
Búist er við stormi N- og A-lands í nótt. Gildir til 10.02.2012 18:00Meira

Recent comments
Þetta sniðuga tæki er horfið af síðum Griffin Technology svo líklega hefur það verið blásið ...
Einar Bergmundur 8. 02. 2012 09:35:
'Eg er einn af mörgum vinum lúpínunnar.Vil að hún sé notuð til uppgræðslu á örfoka ...
Eyjólfur Guðmundsson 5. 02. 2012 19:00:
Matvælastofnun vísar á heilbrigðiseftirlit sveitarfélaganna um eftirlitsskyldu. Hinsvegar hefur Matvælastofnun ekkert kynnt eða rætt málið ...
Lesandi 31. 01. 2012 18:23:
Sæl María. Við sendum opna fyrirspurn um þetta til MAST og hér að ofan má ...
Guðrún Tryggvadóttir 26. 01. 2012 23:57:
er byrjað að merkja þessar vörur? ég hef ekki tekið eftir neinum merkingum ennþá.
María 26. 01. 2012 12:12:
Veit það því miður ekki. Ég myndi spyrja Kollu grasalækni eða heilsubúðirnar.
Guðrún Tryggvadóttir 24. 01. 2012 14:49:
Náttúran beindi fyrirspurn til Stéfáns Gíslasonar um rafbækur og umhverfið og sendi hann okkur þennan ...
um rafbækur og umhverfið 23. 01. 2012 11:01:
Svar Matvælastofnunar hefur borist: „Merkingar á matvörum með erfðabreyttu innihaldi“. Reglugerðin um merkingu erfðabreyttra matvæla ...
Guðrún Tryggvadóttir 18. 01. 2012 11:02:















