News
Sundlaugar Reykjavíkur heilnæmar og öruggar
Sundlaugar í Reykjavík eru bæði heilnæmar og öruggar. Þetta kemur fram í niðurstöðum reglubundins eftirlits Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur með sundlaugum árið 2008, sem nýlega voru kynntar á fundi Heilbrigðisnefndar Reykjavíkur. 19 stundstaðir eru í Reykjavík, 7 sem reknir eru á vegum ÍTR, 6 skólasundlaugar og 6 aðrar. Á hverjum stað er ein til tvær sundlaugar og oft margar setlaugar. Árið 2008 var auk reglubundins eftirlits, gerð könnun á heilnæmi vatns og öryggismálum í samstarfi við Umhverfisstofnun og önnur heilbrigðiseftirlitssvæði. Þar var leitað svara við ýmsum spurningum um heilnæmi vatnsins, innra eftirlit, þjálfun starfsfólks og skyndihjálparbúnað á staðnum. Þá voru tekin sýni úr öllum laugum. Sýrustig vatns, klórstyrkur og bundinn klór var mældur á staðnum og tekið var vatnssýni fyrir heildargerlafjölda úr öllum laugum. Einnig var leitað í nokkrum lauganna að bakteríunni Pseudomonas Aeurginosa sem getur valdið sýkingum í húð.
Niðurstaðan er að heilnæmi sundlaugavatns í Reykjavík var í ágætu lagi. Öll mæld klórgildi voru innan marka. Hvergi mældist bundinn klór nálægt 0,5 mg/l. Heildargerlafjöldi var innan marka baðvatnsreglugerðar í 95% vatnssýna og pseudomonas bakterían fannst ekki í neinni laug í Reykjavík í þessari könnun. Þá virðast öryggismál vera í góðu lagi og helstu björgunartæki eru alls staðar fyrir hendi.
„Við erum mjög ánægð með niðurstöðuna,“ segir Ingibjörg H. Elíasdóttir heilbrigðisfulltrúi í Reykjavík. „Það sem helst má bæta eru varnaðarmerkingar um hættu sem stafað geta af dýfingum,“ segir hún. Laugarverðir eiga að endurnýja hæfnispróf sitt árlega og aðrir starfsmenn sundlauga sem þjóna gestum fara á skyndihjálparnámskeið annað hvert ár. Á einum sundstað átti laugarvörður eftir að endurnýja árlegt hæfnispróf sitt.
Umhverfisstofnun birtir á næstunni skýrslu með niðurstöðum könnunarinnar á landsvísu um gæði laugarvatns og öryggi á stundstöðum.
Einkunn
0 Comments made
Everyone is free to write under her/his own name or use an alias if they choose. The idea is to offer an independent podium for discussion on sustainable development and to increase environmental awareness and help environmental goals be established and met in the business environment as well as in the common household. Nature.is reserves the right to delete entered comments or cut content. IP-adresses are kept for reference.
Related articles:
Health: Movement [8]
Health: Body [44]
Green Pages:
Movement [5]
Body [1]

E -
Sláið inn númer E-efnis eða upphaf heitis, veljið úr listanum og smellið á sækja.
Events calendar
Viðvörun
Búist er við stormi N- og A-lands í nótt. Gildir til 10.02.2012 18:00Meira

Recent comments
Viltu vita hvernig þú ekur?
Þetta sniðuga tæki er horfið af síðum Griffin Technology svo líklega hefur það verið blásið ...
Einar Bergmundur 8. 02. 2012 09:35:
Þetta sniðuga tæki er horfið af síðum Griffin Technology svo líklega hefur það verið blásið ...
Einar Bergmundur 8. 02. 2012 09:35:
Landneminn alaskalúpína
'Eg er einn af mörgum vinum lúpínunnar.Vil að hún sé notuð til uppgræðslu á örfoka ...
Eyjólfur Guðmundsson 5. 02. 2012 19:00:
'Eg er einn af mörgum vinum lúpínunnar.Vil að hún sé notuð til uppgræðslu á örfoka ...
Eyjólfur Guðmundsson 5. 02. 2012 19:00:
Fyrirspurn til Matvælastofnunar
Matvælastofnun vísar á heilbrigðiseftirlit sveitarfélaganna um eftirlitsskyldu. Hinsvegar hefur Matvælastofnun ekkert kynnt eða rætt málið ...
Lesandi 31. 01. 2012 18:23:

Sæl María. Við sendum opna fyrirspurn um þetta til MAST og hér að ofan má ...
Guðrún Tryggvadóttir 26. 01. 2012 23:57:
Sæl María. Við sendum opna fyrirspurn um þetta til MAST og hér að ofan má ...
Guðrún Tryggvadóttir 26. 01. 2012 23:57:
Fyrirspurn til Matvælastofnunar
er byrjað að merkja þessar vörur? ég hef ekki tekið eftir neinum merkingum ennþá.
María 26. 01. 2012 12:12:
er byrjað að merkja þessar vörur? ég hef ekki tekið eftir neinum merkingum ennþá.
María 26. 01. 2012 12:12:
Avokadoolía í stað augnkrems
Veit það því miður ekki. Ég myndi spyrja Kollu grasalækni eða heilsubúðirnar.
Guðrún Tryggvadóttir 24. 01. 2012 14:49:
Veit það því miður ekki. Ég myndi spyrja Kollu grasalækni eða heilsubúðirnar.
Guðrún Tryggvadóttir 24. 01. 2012 14:49:
Spjaldtölvur í skólum
Náttúran beindi fyrirspurn til Stéfáns Gíslasonar um rafbækur og umhverfið og sendi hann okkur þennan ...
um rafbækur og umhverfið 23. 01. 2012 11:01:
Náttúran beindi fyrirspurn til Stéfáns Gíslasonar um rafbækur og umhverfið og sendi hann okkur þennan ...
um rafbækur og umhverfið 23. 01. 2012 11:01:
Fyrirspurn til Matvælastofnunar
Svar Matvælastofnunar hefur borist: „Merkingar á matvörum með erfðabreyttu innihaldi“. Reglugerðin um merkingu erfðabreyttra matvæla ...
Guðrún Tryggvadóttir 18. 01. 2012 11:02:
Svar Matvælastofnunar hefur borist: „Merkingar á matvörum með erfðabreyttu innihaldi“. Reglugerðin um merkingu erfðabreyttra matvæla ...
Guðrún Tryggvadóttir 18. 01. 2012 11:02: