News

Landvernd hvetur til pólítískrar sáttar um stækkun friðlands í Þjórsárverum

Landvernd fagnar þeim áformum sem umhverfisráðherra hefur kynnt um að stækka friðlandið í Þjórsárverum, einnig til suðurs. Fyrirliggjandi athuganir á Þjórsárverum sýna að svæðið er afar verðmætt vegna gróðurfars og dýralífs, einnig sem víðerni og hluti af stærri landslagsheild. Þetta hefur m.a. komið fram í vinnu við rammaáætlun.

Umfjöllun um verndun Þjórsárvera hefur staðið í nær 50 ár. Nái áform umhverfisráðherra fram að ganga er von til þess að niðurstaða fáist loks í þessu máli. Það yrði þá niðurstaða þar sem náttúran fær að njóta vafans og þar sem skammtíma virkjunarhagsmunir víkja fyrir langtíma verndunarsjónarmiðum.

Landvernd telur að fyrirliggjandi hugmyndir um Norðlingaölduveitu séu ekki ásættanlegar þar sem sýnt hefur verið fram á að framkvæmdir af því tagi myndu spilla verndargildi Þjórsárvera. Umrædd framkvæmd hefði óhjákvæmilega áhrif inn fyrir núgildandi friðlandsmörk Þjórsárvera og gæti valdið óafturkræfum spjöllum á svæðinu.  Þessi áform eru að mati Landverndar ekki heldur í samræmi við markmið svæðiskipulags miðhálendisins þess efnis að almennt beri að halda hverskonar mannvirkjagerð á Miðhálendi Íslands í lágmarki.

Landvernd vill benda á að Umhverfisstofnun og erlendir sérfræðingar hafa staðfest að friðlandsmörkin eru algjörlega ófullnægjandi. Þá hefur Samvinnunefnd um miðhálendi Íslands staðfest í bókun að landslagsheild Þjórsárvera nái langt út fyrir núverandi mörk friðlandsins og að Norðlingaölduveita myndi valda  miklu umhverfisraski á stóru svæði. Komi til virkjunarframkvæmda verður ekki mögulegt að stækka friðlandið þannig að það nái til allra þeirra náttúruverðmæta sem svæðið býr yfir.

Að mati Landverndar hníga öll rök að því að stækka verndarsvæðið þannig að það falli að náttúrulegum mörkum Þjórsárvera. Samtökin fagna því tillögum sem umhverfisráðherra, í samvinnu við iðnaðarráðherra og fjármálaráðherra, hefur kynnt um stækkun verndarsvæðisins. Jafnframt er mikilvægt að líta til hugmynda um verndun þeirra fjalla og jökla sem móta stórbrotna umgjörð svæðisins. þ.e. Kerlingafjalla í vestri og Hofsjökuls í norðri.

Landvernd hafði fyrir nokkrum árum forgöngu um að tveir viðurkenndir erlendir sérfræðingar gerðu úttekt á verndargildi Þjórsárvera. Niðurstaða þeirra var að góðar líkur væru á því að svæðið sé svo einstakt að það gæti átt heima, ásamt stærri landslagsheild, á heimsminjaskrá UNESCO.

Landvernd lítur svo á að almenn pólitísk sátt hafi náðst um stækkun friðlands Þjórsárvera.  Stjórn Landverndar hvetur alla þingmenn til að standa vörð um þá sáttagjörð. Þjórsárver eru gróðurvin með árþúsunda samfellda sögu þróttmikils lífríkis. Þau mynda vel afmarkað og einstakt vistkerfi á miðhálendi Íslands og eru mikilvæg heimkynni margra fuglategunda. Þjórsárver eru þjóðargersemi.





Einkunn

Categories:

Comments made

Björn - Thursday 19. August, 2010 klukkan 14:12:59

Gamla fallbyssu nálgunin. Ef markmiðið er að stöðva virkjanaframkvæmdir, þá á að duga að banna þær. Friðun bannar fleira en virkjanaframkvæmdir, skotveiði m.a.
Guðlaugstungur, austanverður Vatnajökulsþjóðgarður, nú þetta. Veiðimenn hafa verið hvattir til að auka sókn í Heiðagæs (stór og ört vaxandi stofn) og þyrma Grágæs í staðinn, fjölgun friðlanda hvetur til hins gagnstæða. Málamiðlun myndi myndi auka líkur á pólitískri sátt. Veiðimenn eru flestra hópa duglegastir að sækja þessi svæði heim, margir hverjir myndu e.t.v. styðja bann við virkjunarframkvæmdum á þessum slóðum. Ég segi nei við þessari alsherjar friðunar útfærslu.

Einar Bergmundur - Thursday 19. August, 2010 klukkan 23:56:31

Friðun kemur í mörgum myndum. Það er örugglega hægt að leyfa veiðar á svæðum sem eru annars friðuð. Þ.e. ef veiðimenn láta vera að aka utan vega á jeppum og fjórhjólum.

Björn - Friday 27. August, 2010 klukkan 09:51:56

Utanvegaakstur er subbuskapur? Friðun hefur lítið með utanvegaakstur að gera, hann stunda svartir sauðir flestra hópa ferðamanna á hálendinu.

Ég tel ehverfandi líkur á að veiðar verði leyfðar á friðuðum svæðum, fyrir því er ekki hefð, það er vissulega hægt, en afar ólíklegt. Friðun er fullnaðarsigur, og sjadgæft að óumdeildir sigurvegarar gefi eftir þegar öll tromp eru á þeirra hendi.

Pólitíska sáttin á að felast í því að segja já við friðuninni, ekki satt!

3 Comments made

Comment

Name:

Comments:


Please solve the mathematical question above and enter the result in the field.
Made to guaranty human origin of the words.

Everyone is free to write under her/his own name or use an alias if they choose. The idea is to offer an independent podium for discussion on sustainable development and to increase environmental awareness and help environmental goals be established and met in the business environment as well as in the common household. Nature.is reserves the right to delete entered comments or cut content. IP-adresses are kept for reference.

Nature's Market

How do I shop at Nature's Market?
  • Departments
  • Cart
  • Product search
  • Guidelines
  • Disclaimer
Indicator

Related articles:

Associations & Organizations: Nature conservation [382]

The Community: Organisations [304]

The Environment: Nature [178]

Green Pages:

Nature conservation [35]

Organisations [62]

Nature [19]

Recent comments

Viltu vita hvernig þú ekur?
Þetta sniðuga tæki er horfið af síðum Griffin Technology svo líklega hefur það verið blásið ...
Einar Bergmundur 8. 02. 2012 09:35:
Landneminn alaskalúpína
'Eg er einn af mörgum vinum lúpínunnar.Vil að hún sé notuð til uppgræðslu á örfoka ...
Eyjólfur Guðmundsson 5. 02. 2012 19:00:
Fyrirspurn til Matvælastofnunar
Matvælastofnun vísar á heilbrigðiseftirlit sveitarfélaganna um eftirlitsskyldu. Hinsvegar hefur Matvælastofnun ekkert kynnt eða rætt málið ...
Lesandi 31. 01. 2012 18:23:
Fyrirspurn til Matvælastofnunar
Sæl María. Við sendum opna fyrirspurn um þetta til MAST og hér að ofan má ...
Guðrún Tryggvadóttir 26. 01. 2012 23:57:
Fyrirspurn til Matvælastofnunar
er byrjað að merkja þessar vörur? ég hef ekki tekið eftir neinum merkingum ennþá.
María 26. 01. 2012 12:12:
Avokadoolía í stað augnkrems
Veit það því miður ekki. Ég myndi spyrja Kollu grasalækni eða heilsubúðirnar.
Guðrún Tryggvadóttir 24. 01. 2012 14:49:
Avokadoolía í stað augnkrems
Hvar fæst svona avokadoolía???
Elín 23. 01. 2012 13:26:
Spjaldtölvur í skólum
Náttúran beindi fyrirspurn til Stéfáns Gíslasonar um rafbækur og umhverfið og sendi hann okkur þennan ...
um rafbækur og umhverfið 23. 01. 2012 11:01:
Fyrirspurn til Matvælastofnunar
Svar Matvælastofnunar hefur borist: „Merkingar á matvörum með erfðabreyttu innihaldi“. Reglugerðin um merkingu erfðabreyttra matvæla ...
Guðrún Tryggvadóttir 18. 01. 2012 11:02:

Fréttir frá: