Calendar: Heaven & Earth
Um tungl og vöxt plantna og gróðursetningu
Tvennt segir til um hvenær vorverkin skulu hefjast, annars vegar tíðarfarið og hins vegar hvernig stendur á tungli.
Strax með nýju tungli áttu að planta þær jurtir sem villt fá fræ af. Þá skal pæla upp sáðjörð og mýkja hana. Það er ekki algengt að stunda frærækt, þegar svo auðvelt er að kaupa fræ og nú er. Það skipti meira máli áður fyrr þegar fræsendingar voru óvissar. Margir mæla með að sá einkum fljótspírandi plöntum tveimur til þremur dögum fyrir nýtt tungl. Radísur og næpur og klettasalat eru t.d. fljótspírandi. Eins má þá sá fræi sem tekur sérlega langan tíma að spíra eins og gulrótum. Gott er að vökva nýsáið fræ með vatni úr spírubakkanum. Það örvar. Ekki er gott að uppskera grænmeti með nýkviknuðu tungli eða nokkuð það sem á að geymast, því þá vill plantan halda áfram að vaxa og rot sest í hana.
Með vaxandi tungli skal sá til allra jurta, sem ofan jarðar vaxa, og síðan planta þær í sama mund, líka safna fræjum til útsáðs. Höggva eldiviðarhrís sem þú vilt að vaxi aftur. Þá skal slá há hvar menn ætla að slá hána síðar.
Nú er gott að sá til þeirra plantna sem hafa blaðvöxt sem nýttur til matar. Þetta eru einkum salat, spínat, grænkál, blaðbeðja, steinselja og kál. Einnig má nú planta þeim sem áður hefur verið sáð út í beð. Ef örva skal vöxt á að klippa runna með vaxandi tungli eða slá gras sem menn vilja að vaxi þétt og vel, sama gildir um mannshár. Setja má áburð í beð, planta sígrænum trjám opg runnum og græða nýjan vöxt á ávaxtatré. Þegar ljós mánans er að aukast er gott að umpotta og snyrta inniplöntur og einnig fjölærar plöntur útivið. Ef sáð er strax með nýja tunglinu, eða aðeins fyrr nýtist uppstreymandi kraftur tunglsins best.
Með fullu tungli: Sláðu hey, sem ei skal rýrna, planta lauka og allskyns rætur, sem kólfa hafa. Nú er rafsegulkrafturinn frá tunglinu sterkastur en brátt tekur vökinn að streyma niður á við til rótarinnar. Laukar kunna vel við sig þegar tungl er fullt. Þá má hreyfa þá til og planta. Með fullu tungli má prikla eða planta út í beð. Einnig sá fræjum sem þurfa langan tíma að til að spíra og sáð er beint út í beð. Þau taka þá við sér á næsta nýja tungli. Flest blómfræ spíra hægt. Eftir að tungl hefur fyllt sig má fara að hugsa til að uppskera. Sé grænmeti tekið upp á fullu tungli minnkar það hættu á rotnum í geymslu.
this article continues, read more...
Hildur Hákonardóttir
6. February 2012 20:16
Origin: Björn Halldórsson / Hildur Hákonardóttir
Einkunn
Sáðalmanak fyrir febrúar 2012

Fyrsta sáðalmanak fyrir árið 2012 lítur nú dagsins ljós en Guðfinnur Jakobsson í Skaftholti tók saman efni í sáðalmanök Náttúrunnar í fyrra og heldur áfram að taka þau saman fyrir okkur í ár.
Efnið er unnið úr sáðalmanaki Maríu Thun, en hún hefur fengist við rannsóknir á tengslum himintungla og gróðurs í rúmlega 60 ár og gefur út sáðalmanak á hverju ári. Höfuðáhrifin eru frá tunglinu, eftir því hvernig það stendur gagnvart stjörnumerkjum dýrahringsins.
Dagur Tími
1. febrúar 00 – 04 ávöxtur, 05 – 24 rót
2. febrúar 00 – 17 rót, 17 – 24 óhagstætt
3. febrúar 00 – 24 rót
4. febrúar 00 – 04 rót, 05 – 24 blóm
5. febrúar 00 – 24 blóm
6. febrúar 00– 04 blóm, 05 – 24 blað
7. febrúar 00– 20 blað, 21 – 24 ávöxtur
8. febrúar 00 – 24 ávöxtur
9. febrúar 00 – 12 ávöxtur, 13 – 24 óhagstætt
10. febrúar 00 – 04 óhagstætt, 05 – 08 ávöxtur, 09 – 24 rót
11. febrúar 00 – 05 rót, 05 – 24 óhagstætt
12. febrúar 00 – 24 rót
13. febrúar 00 – 12 rót, 14 – 24 blóm
14. febrúar 00 - 18 blóm, 19 –24 óhagstætt
15. febrúar 00 – 24 óhagstætt
16. febrúar 00 – 17 óhagstætt, 18 – 24 blað
17. febrúar 00 – 24 ávöxtur
18. febrúar 00 – 24 ávöxtur
19. febrúar 00 – 05 ávöxtur, 06 – 24 rót
20. febrúar 00 – 24 rót
21. febrúar 00 – 09 rót, 10 – 24 blóm
22. febrúar 00 – 24 blóm
23. febrúar 00 – 20 blóm, 21 – 24 blað
24. febrúar 00 – 24 blað
25. febrúar 00 – 13 blað, 14 – 24 óhagstætt
26. febrúar 00 – 24 óhagstætt
27. febrúar 00 – 24 ávöxtur
28. febrúar 00 – 13 ávöxtur, 14 – 24 rót
29. febrúar 00 – 19 rót, 20 – 24 óhagstætt
Oftast liggur í augum uppi hvað eru rætur, blaðplöntur, ávextir og blóm en hér skulu talin upp nokkur atriði sem geta vafist fyrir okkur. Upplýsingarnar eru úr garðabók Maríu Thun.
- Til rótarplantna teljast líka sellerí, hnúðsellerí, kálrabi eða pastinaka og laukar.
- Til blaðplantna teljast hnúðfennel, aspargus, rósakál og blómkál.
- Til blómplantna teljast blómplöntur þó þær vaxi upp af laukum og brokkóli.
- Til ávaxta teljast baunir, linsubaunir, allar korntegundir, kúrbítur, grasker, agúrkur, tómatar og maiskorn.
Annað skýrir sig sjálft.
Grafík: Sáðalmanak fyrir febrúar 2012. Gengið er út frá því að tíminn sé ekki lína heldur spírall sem heldur endalaust áfram að mynda hringi. Árið er einn hringur og snið hvers mánaðar því 1/12 úr hring. Tunglstaðan sést á efsta baug fyrir ofan mánaðarsniðið. Línur þekja þá daga og tíma dags þegar gott er að sá til tiltekinnar tegundar jurtar. Rauð lína er fyrir ávöxt, græn fyrir blaðplöntu, brún fyrir rótarplöntu og gul fyrir blómplöntur. Táknin; ávöxtur, blað, rót og blóm eru staðsett í byrjun og við lok tímabils til afmörkunar. Guðrún A. Tryggvadóttir og Signý Kolbeinsdóttir.
details
Guðfinnur Jakobsson / Guðrún Arndís Tryggvadóttir / Hildur Hákonardóttir
24. January 2012 18:32
Origin: Náttúran.is
Einkunn
Sáðalmanak fyrir júlí 2011

Guðfinnur Jakobsson í Skaftholti heldur áfram að taka saman fyrir okkur efni úr sáðalmanaki Maríu Thun, en hún hefur fengist við rannsóknir á tengslum himintungla og gróðurs síðastliðin 60 ár a.m.k. og gefur út sáðalmanak á hverju ári. Höfuðáhrifin eru frá tunglinu, eftir því hvernig það stendur gagnvart stjörnumerkjum dýrahringsins.
Júlí 2011
Dagur Tími
1. júlí 00 – 24 blóm
2. júlí 00 – 16 blóm, 17 – 24 blað
3. júlí 00 – 24 blað
4. júlí 00 – 04 blað, 05 – 08 ávöxtur, 10 – 19 blóm, 21 – 24 blað
5. júlí óhagstæðir
6. júlí dagar
7. júlí til
8. júlí sáningar
9. júlí 00 – 24 blóm
10. júlí 00 – 24 blóm
11. júlí 00 – 03 blóm, 04 – 24 blað
12. júlí 00 – 24 blað
13. júlí 00 – 10 blað
14. júlí 00 – 24 ávöxtur
15. júlí óhagstæður
16. júlí 00 – 11 óhagstæður, 14 – 24 rót
17. júlí 00 – 21 rót, 22 – 24 blóm
18. júlí 00 – 24 blóm
19. júlí 00 – 22 blóm
20. júlí 00 – 24 blað
21. júlí 00 – 13 blað, 14 – 24 blóm
22. júlí 00 – 02 blóm, 04 – 24 blað
23. júlí 00 – 02 blað, 04 – 24 ávöxtur
24. júlí 00 – 24 ávöxtur
25. júlí 00 – 02 ávöxtur, 03 – 24 rót
26. júlí 00 – 24 rót
27. júlí 00 – 17 rót, 18 – 24 blað
28. júlí 00 – 10 blóm, 11 – 24 óhagstætt
29. júlí 00 – 09 ávöxtur, 10 – 24 blóm
30. júlí 00 – 24 blað
31. júlí 00 – 12 blað, 14 – 20 ávöxtur, 21 – 24 blað
1. til og með 12. júlí hagstætt tímabil til útplöntunar og uppskeru rótarávaxta á „rótardögum“, 13. til og með 26. júlí hagstætt til söfnunar blað og blómjurta og þá á „blað- eða blómadögum“, 27. til og með 31. aftur hagstætt til útplöntunar og uppskeru rótarávaxta.
Sjá nánar um það hvaða plöntur teljast til rótar, blaða, blóma og ávaxta hér.
Grafík: Sáðalmanak fyrir júlí 2011. Línur þekja þá daga og tíma dags þegar gott er að sá til tiltekinnar tegundar jurtar. Rauð lína er fyrir ávöxt, græn fyrir blaðjurt, brún fyrir rótarávöxt og gul fyrir blómplöntur. Táknin; ávöxtur, blað, rót og blóm eru staðsett í byrjun og við lok tímabils. Guðrún A. Tryggvadóttir.
details
Guðfinnur Jakobsson
1. July 2011 09:50
Origin: Náttúran.is
Einkunn
Sólmánuður hefst

Sólmánuður er 3. mánuður sumars að fornu og hefst mánudag í 9. viku, 18.-24. júní. Í Snorra Eddu er hann nefndur selmánuður.
Úr Sögu daganna eftir Árna Björnsson.
Mynd af sólinni af vef Brown University.
details
Árni Björnsson
20. June 2011 00:04
Origin:
Einkunn
Sáðalmanak fyrir júní 2011

Guðfinnur Jakobsson í Skaftholti heldur áfram að taka saman fyrir okkur efni úr sáðalmanaki Maríu Thun, en hún hefur fengist við rannsóknir á tengslum himintungla og gróðurs síðastliðin 60 ár a.m.k. og gefur út sáðalmanak á hverju ári. Höfuðáhrifin eru frá tunglinu, eftir því hvernig það stendur gagnvart stjörnumerkjum dýrahringsins.
Júní 2011
Dagur Tími
1. júní 00 – 24 rót.
2. júní 00 – 24 rót.
3. júní 00 – 06 rót, 07 – 24 blóm.
4. júní 00 – 24 blóm.
5. júní 00 – 09 blóm, 10 – 24 blað.
6. júní 00 – 16 blað, 17 – 24 ávöxtur.
7. júní óhagstæður til sáningar.
8. júní 00 – 24 ávöxtur.
9. júní 00 – 10 ávöxtur, 11 – 24 rót.
10. júní 00 – 14 óhagstætt tímabil, 15 – 24 rót.
11. júní 00 – 14 rót, 14 – 24 óhagstætt.
12. júní 00 – 16 óhagstætt, 16 – 24 blóm.
13. júní 00 – 21 blóm, 22 -24 blað.
14. júní 00 – 24 blað.
15. júní 00 – 15 blað, 15 – 24 óhagstætt.
16. júní 00 – 02 blað, 03 – 24 ávöxtur.
17. júní 00 – 22 ávöxtur, 22 – 24 óhagstætt.
18. júní 00 – 24 rót.
19. júní 00 – 06 rót, 07 – 21 blóm/ávöxtur, 22 – 24 rót.
20. júní 00 – 12 rót, 13 – 24 blóm.
21. júní 00 – 24 blóm.
22. júní 00 – 17 blóm, 18 – 24 blað.
23. júní 00 – 18 blað, 19 – 24 blóm.
24. júní 00 – 08 blóm, 09 – 24 blað.
25. júní 00 – 18 blað, 19 – 24 ávöxtur.
26. júní 00 – 24 ávöxtur.
27. júní 00 – 16 ávöxtur, 17 – 24 blóm.
28. júní 00 – 10 blóm, 11 – 24 rót.
29. júní 00 – 24 rót.
30. júní 00 – 14 rót, 15 – 24 blóm.
Tímabilið frá 2. til og með 14. júní hagstætt til útplöntunar og uppskeru róta. 15. til og með 29. júní hagstætt til uppskeru og/eða söfnunar blaða/blóma. Sem dæmi væru góð tímabil til að safna birkilaufi, sem og blaðjurtum þann 22. júní frá kl. 18 til kl. 18 þann 23. og aftur frá kl. 9 þann 24. til kl. 18 þann 25. júní. Blómum frá kl. 19 þann 23. til kl. 8 þann 24. júní, einnig aftur frá kl. 17 þann 27. til kl. 10 þann 28. júní, einnig frá kl. 15. þann 30. júní.
Á þessum tímabilum sem hér eru upp talin eru blöðin og/eða blómin kröftugust, en það þýðir samt ekki að þau séu einskis virði utan þessara tímabila. Einnig er ávallt hagstæðara að safna eða uppskera ofanjarðarhluta jurta fyrri hluta dags, eða fram til kl. hálftvö og uppskera rætur/rótarávexti seinni hluta dags og fram á kvöld.
Sjá nánar um það hvaða plöntur teljast til rótar, blaða, blóma og ávaxta hér.
Grafík: Sáðalmanak fyrir júní 2011. Línur þekja þá daga og tíma dags þegar gott er að sá til tiltekinnar tegundar jurtar. Rauð lína er fyrir ávöxt, græn fyrir blaðjurt, brún fyrir rótarávöxt og gul fyrir blómplöntur. Táknin; ávöxtur, blað, rót og blóm eru staðsett í byrjun og við lok tímabils. Guðrún A. Tryggvadóttir.
details
Guðfinnur Jakobsson / Guðrún Arndís Tryggvadóttir
1. June 2011 13:24
Origin: Náttúran.is
Einkunn

E -
Sláið inn númer E-efnis eða upphaf heitis, veljið úr listanum og smellið á sækja.
Events calendar

Recent comments
Þetta sniðuga tæki er horfið af síðum Griffin Technology svo líklega hefur það verið blásið ...
Einar Bergmundur 8. 02. 2012 09:35:
'Eg er einn af mörgum vinum lúpínunnar.Vil að hún sé notuð til uppgræðslu á örfoka ...
Eyjólfur Guðmundsson 5. 02. 2012 19:00:
Matvælastofnun vísar á heilbrigðiseftirlit sveitarfélaganna um eftirlitsskyldu. Hinsvegar hefur Matvælastofnun ekkert kynnt eða rætt málið ...
Lesandi 31. 01. 2012 18:23:
Sæl María. Við sendum opna fyrirspurn um þetta til MAST og hér að ofan má ...
Guðrún Tryggvadóttir 26. 01. 2012 23:57:
er byrjað að merkja þessar vörur? ég hef ekki tekið eftir neinum merkingum ennþá.
María 26. 01. 2012 12:12:
Veit það því miður ekki. Ég myndi spyrja Kollu grasalækni eða heilsubúðirnar.
Guðrún Tryggvadóttir 24. 01. 2012 14:49:
Náttúran beindi fyrirspurn til Stéfáns Gíslasonar um rafbækur og umhverfið og sendi hann okkur þennan ...
um rafbækur og umhverfið 23. 01. 2012 11:01:
Svar Matvælastofnunar hefur borist: „Merkingar á matvörum með erfðabreyttu innihaldi“. Reglugerðin um merkingu erfðabreyttra matvæla ...
Guðrún Tryggvadóttir 18. 01. 2012 11:02:
+ Fleiri ummæli















