02.09.2010 kl. 16:04
Lokun
Urriðafossvegur verður lokaður vegna ræsagerðar á milli Egilsstaðar og Urriðafoss fimmtudaginn 2. september frá klukkan 8:00 til 18:00.
Framkvæmdir og viðhald
Umferðatafir verða á Glerárgötu á Akureyri vegna malbikunar fimmtudaginn 2. september og föstudaginn 3. september.
Fimmtudaginn 2. september er fyrirhugað að vinna áfram við fræsingu á Suðurlandsvegi frá Nesjavallaleið að Breiðholtsbraut. Fræsing og malbikun mun hefjast á milli kl. 8 og 9 og á að vera lokið síðdegis sama dag.
Verið er að gera hringtorg á Reykjanesbraut við Grænás. Umferð er beint um á hjáleið fram hjá vinnusvæðinu.
Unnið er að tvöföldun Hringvegar (1) í Mosfellsbæ, frá Hafravatnsvegi að Þingvallavegi.
Nokkuð víða er unnið að vegavinnu og yfirlögnum á slitlagi, með tilheyrandi lausamöl og steinkasti. Vegfarendur eru eindregið beðnir að aka varlega um vinnusvæðin og virða merkingar um hámarkshraða.
Akstur á hálendisvegum
Þeir sem ætla að aka um hálendið eru beðnir að fullvissa sig um að þeir hafi nógu stór og öflug ökutæki til að fara þær leiðir sem þeir hafa í huga og kanna vatnsmagn í ám ef vöð eru á leiðinni en vatnsmagn í ám á hálendinu er nú með meira móti.
Upplýsingar birtar með fyrirvara um heimild og tæknilegt aðgengi að upplýsingumHeimild:
Vegagerðin
Recent comments
ég hef nú verið að rækta kúrbít úti í garði í sumar og hefur sá ...
Kúrbítur 1. 09. 2010 18:01:
Utanvegaakstur er subbuskapur? Friðun hefur lítið með utanvegaakstur að gera, hann stunda svartir sauðir flestra ...
Björn 27. 08. 2010 09:51:
Friðun kemur í mörgum myndum. Það er örugglega hægt að leyfa veiðar á svæðum sem ...
Einar Bergmundur 19. 08. 2010 23:56:
Gamla fallbyssu nálgunin. Ef markmiðið er að stöðva virkjanaframkvæmdir, þá á að duga að banna ...
Björn 19. 08. 2010 14:12:
Skal ekkert fullyrða um það en greinin er þýdd af vefnum lifeinthefastlane.ca og innihald hennar ...
Móna Róbertsdóttir 19. 08. 2010 09:02:
mér finnst þetta hræðilegt en þetta er ekki american pitbull terrier hundur heldur american bully ...
hundar 19. 08. 2010 02:13:
Trélím sem þynnt er með vatni og penslað létt yfir gæti hentað vel sem varnish ...
Guðrún Tryggvadóttir 16. 08. 2010 19:56:
Hvað notið þið til að úða yfir þurrkuð blóm á kortum, svo þau haldi sér?
Ólafía Margrét Ólafsdóttir 16. 08. 2010 15:13:
Grand Old Aunt Björk: http://grapevine.is/Features/ReadArticle/Bjork-Feature
Guðrún Tryggvadóttir 15. 08. 2010 12:55: