Nature-Nanny: In the cauldron

Krækiberja- og rabarbarasulta

1 kg rabarbari
1 kg krækiber
1 kg sykur
2 msk. sultuhleypir

  1. Takið frá 2 dl af sykri og geymið. Skerið rabarbara smátt, setjið í pott ásamt sykri og krækiberjum og sjóðið við hægan hita í 1 -2 klst.
  2. Blandið sykrinum sem tekinn var frá saman við sultuhleypinn, sigtið yfir sjóðandi sultuna og látið sjóða vel upp. Eða fylgið leiðbeiningum á umbúðum.
  3. Hellið í sultukrukkur, sjá hér að framan.

Ljósmynd: Krækiberjalyng. Guðrún Tryggvadóttir.


details
Helga Sigurðardóttir
30. August 2010 13:27
Origin: Helga Sigurðardóttir

Evaluation

Krækiberjasaft

KrækiberjalyngKrækiber hafa ekkert kjöt svo þau eru best í saftir. Þau eru bara skinn og lögur.

Krækiberjasaft – soðin eða hrá

1 l. krækiberjasaft
400 gr. sykur

Krækiberin eru hreinsuð, þvegin og pressuð í berjapressu. Saftin mæld og sykrinum blandað saman við. Vínsýran leyst upp í litlu heitu vatni og hrærð saman við. Saftin er ýmist höfð hrá eða soðin í 5-10 mín. Geymd á flöskum.

Krækiberjasaft

1 lítri krækiberjasafi
safi úr sítrónu
150-200 g. sykur
Setjið berjasafa, sítrónusafa og sykur í pott, látið sjóða vel upp. Kælið og setjið í mjólkurfernur, geymið í frysti.
Blandið saman við vatn eða sódavatn og notið til drykkjar.

Ljósmynd: Krækiberjalyng. Guðrún Tryggvadóttir.


details
Helga Sigurðardóttir
29. August 2010 22:43
Origin: Helga Sigurðardóttir

Evaluation

Reyniberjasulta

800 g reyniber
1 gult epli
3-4 dl vatn
500-600 g. sykur
1/2 dl viskí eða koníak

Tínið vel þroskaða reyniberjaklasa og frystið.
Takið úr frysti og þýðið, hreinsið berin vel.
Eplið skorið í frekar litla bita.

Allt sett í pott og soðið þar til berin glansa. Froðan veidd ofan af. Sultan látin kólna aðeins áður en viskíinu eða koníakinu er bætt út í. Hellt á krukkur. Verði ykkur að góðu.

Uppskrift frá Höllu Hallgrímsdóttur.

Mynd: Reyniberjaklasi. Ljósmynd: Guðrún Tryggvadóttir.


details
Halla Hallgrímsdóttir
29. August 2010 18:02
Origin:

Evaluation

Reyniber

Reyniber eru talin mjög holl. Af berjunum er rammur keimur, sem mörgum fellur mjög illa. Reyniberin eru tínd þegar þau eru vel þroskuð, og bezt er að þau hafi frosið. Rétt er að láta þau liggja í vatni í 3 sólarhringa, en skipta verður um vatn daglega; við það minnkar rammkeimurinn af berjnum. Úr berjunum nýjum má sjóða graut og súpur, eins og úr venjulegum berjum, en með þeirri súpu er sérstaklega ljúffengt að hafa þeyttan rjóma. Úr reyniberjum má einnig búa til saft og haup, en í reyniberjamauk er nærri því nauðsynlegt að hafa epli, annars er það ekki gott.

Reyniberjasaft

Í 1 l. af saft eru notuðu 1/2 - 3/4 kg. sykur.
Reynibering, sem eru vel þroskuð, eru tínd, hreinsluð og lögð ívatn í 3 sólarhringa.
Berin sett í pott með vatni, er tæplega flýtur yfir.
Hitað við hægan eld; þegar suðan kemur upp, er soðið í 5 mín., eða þangað til berin springa. Hellt í þunnan línpoka, sem látinn er á slá eða grind: saftin látin síga úr berjunum án þess að hrært sé í.
Í hvern l. af saft er látið 1/2 - 3/4 kg. sykur og það soðið í nokkrar mínútur; froðan veidd vel ofan af Saftinni er hellt á hreinar og heitar flöskur (sjá hreinsun á flöskum); tappi settur í lakkað yfir.

Reyniberjahlaup

Í einn líter af reyniberjasaft þarf 800-1000 gr. af sykri. Berin, sem helzt hafa frosið, eru hreinsuð og sett í pott með litlu vatni og hitað, svo safinn komi úr berjunum. Þetta má ekki sjóða lengi.
Hlemmur er settur á pottinn og bíði þannig í 10 mín.
Síað á þéttu líni, svo að saftin verði sem tærurst. Hituð með sykrinum og soðin í 10 mín. Hlaupinu hellt í heitar krukkur.

Úr bókinni Grænmeti og ber allt árið eftir Helgu Sigurðardóttur.

Mynd: Reyniberjaklasi. Ljósmynd: Guðrún Tryggvadóttir.


details
Helga Sigurðardóttir
29. August 2010 16:57
Origin: Helga Sigurðardóttir

Evaluation

Krukkur fyrir berjauppskeruna

sultukrukkurÞrátt fyrir að hafa safnað krukkum frá því snemma í vor virðist aldrei vera til nóg af góðum og fallegum glerkrukkum þegar kemur að því að sulta og sjóða niður að hausti. Verslanir nýta sér þessa óforsjálni okkar mannanna barna og selja tómar glerkrukkur á uppsprengdu verði frá og með ágústbyrjun. Pirrandi að vera boðið upp á að kaupa tómar krukkur á sama verði og stútfullar sultukrukkur í verslunum.

Til að klekkja á óprúttnum verslunareigendum dugir ekkert annað en útsjónarsemi og dugnaður. Sníkja krukkur hér og þar og hreinsa þær vel að fyrri tíðar sið. Sumir leggja mikið uppúr því að merkja krukkurnar og skreyta en aðrir láta nægja að þekkja innihaldið af útlitinu. Helga Sigurðardóttir skrifaði um hreinsun á krukkum og hreinsun á flöskum sem nauðsynlegt er að kynna sér. Hildur Hákonardóttir hefur aðrar hugmyndir um krukkuhreinsun og tekur þessu ekki eins alvarlega og Helga enda skapandi sála sem er alltaf að prófa eitthvað nýtt. Mikilvægast er að ítrasta hreinlætis sé gætt og vel hreinsaðar brennheitar krukkur séu fylltar af brennheitri sultunni og lokað strax. Gott hefur reynst að lauma frekar grein af fjallagrasagrein til rotvarnar með í krukkuna en að sótthreinsa svo mikið að bragð verði af.

Ef þú slærð inn leitarorðið „krukkur“ hér í leitarretinn hjá Voffa koma upp greinar sem fjalla um ýmislegt sem viðkemur geymslu í krukkum og svo má prufa önnur leitarorð fyrir uppskriftir til að fá hugmyndir af því hvernig hægt er að koma sér upp vetrarforða af gæðum jarðar. Gaman væri að fá uppskriftir og góð ráð frá lesendum varðandi niðursuðuna senda á nature@nature.is.


details
Guðrún Arndís Tryggvadóttir
29. August 2010 14:43
Origin: Náttúran.is

Evaluation

1234192021

2005   2006   2007   2008   2009   2010  
jan   feb   mar   apr   may   jun   jul   aug   sep  

Nature's Market

How do I shop at Nature's Market?
  • Departments
  • Cart
  • Search
  • Guidelines
  • Disclaimer
Indicator

Recent comments

Kúrbítur
ég hef nú verið að rækta kúrbít úti í garði í sumar og hefur sá ...
Kúrbítur 1. 09. 2010 18:01:
Landvernd hvetur til pólítískrar sáttar um stækkun friðlands í Þjórsárverum
Utanvegaakstur er subbuskapur? Friðun hefur lítið með utanvegaakstur að gera, hann stunda svartir sauðir flestra ...
Björn 27. 08. 2010 09:51:
Landvernd hvetur til pólítískrar sáttar um stækkun friðlands í Þjórsárverum
Friðun kemur í mörgum myndum. Það er örugglega hægt að leyfa veiðar á svæðum sem ...
Einar Bergmundur 19. 08. 2010 23:56:
Landvernd hvetur til pólítískrar sáttar um stækkun friðlands í Þjórsárverum
Gamla fallbyssu nálgunin. Ef markmiðið er að stöðva virkjanaframkvæmdir, þá á að duga að banna ...
Björn 19. 08. 2010 14:12:
Hundur bjargar lífi 5 krakka
Skal ekkert fullyrða um það en greinin er þýdd af vefnum lifeinthefastlane.ca og innihald hennar ...
Móna Róbertsdóttir 19. 08. 2010 09:02:
Hundur bjargar lífi 5 krakka
mér finnst þetta hræðilegt en þetta er ekki american pitbull terrier hundur heldur american bully ...
hundar 19. 08. 2010 02:13:
Þurrkun jurta og blóma - haustföndur
Trélím sem þynnt er með vatni og penslað létt yfir gæti hentað vel sem varnish ...
Guðrún Tryggvadóttir 16. 08. 2010 19:56:
Þurrkun jurta og blóma - haustföndur
Hvað notið þið til að úða yfir þurrkuð blóm á kortum, svo þau haldi sér?
Ólafía Margrét Ólafsdóttir 16. 08. 2010 15:13:
Margsaga Magma
Grand Old Aunt Björk: http://grapevine.is/Features/ReadArticle/Bjork-Feature
Guðrún Tryggvadóttir 15. 08. 2010 12:55: