Kitchen Garden: Harvest

Dill

Þegar haustar að standa frækrónur dilljurtanna og hreykja sér yfir hinar plönturnar sem eftir standa í garðinum. Þeim sem hafa komist í kynni við þennan sænska rétt, finnst ekkert haust mega líða án þess að bragða á nýjum kartöflum soðnum með dillkrónum. Kartöflurnar og dillkrónurnar eru látnar í skál og borðaðar með smjöri.

Úr Ætigarðinum - handbók grasnytjungsins, eftir Hildi Hákonardóttur.

Bókin er fáanleg hér á Náttúrumarkaðinum.

Mynd: Dill, í garði Hildar Hákonardóttur þ. 27.08.2009. Ljósmynd: Guðrún Tryggvadóttir.


details
Hildur Hákonardóttir
29. August 2010 10:20
Origin: Hildur Hákonardóttir

Evaluation

Aðalbláber

Aðalbláber þarf víst ekki að kenna neinum að borða. Björn í Sauðlauksdal segir í Grasnytjum að Svíar hafi sætukoppana og efstu greinarnar með blöðum á í te og það bæti kvef og örvi blóðrás. Það er eins og við höfum aldrei tekið mark á þessu, kannski fáum við okkur ekki til þess að taka óþroskuð berin, en það er tilvalið að klippa svolítið og hafa í te meðan við erum að bíða eftir að berjatíminn hefjist. Bláber eru best eins og þau koma af jörðinni ný tínd, út á skyr með rjóma.

En eitt haustið var svo mikið af þeim og engin leið að torga öllu saman og frostið kom ekki og áfram voru meiri ber, svo eitthvað varð að gera. Ég hringdi í Huldu svilkonu, því ég mundi að hún hafði gefið mér fína bláberjasultuuppskrift fyrir nokkrum árum, en hún var svolítið hvöss og spurði hvort ég hefði ekki skrifað hana niður úr því hún tókst svona vel síðast, það ætti maður að gera. Þó sá hún aumur á mér og lét mig aftur hafa uppskriftina eða ég fann hana í húsbókinni því hér er hún:


more
Hildur Hákonardóttir
27. August 2010 10:00
Origin: Hildur Hákonardóttir

Evaluation

Stikilsber

Stikilsber hafa þann kost að fuglar láta þau að mestu í friði og hægt er að tína þau af jörðinni, ef þau hafa dottið af vegna ofþroskunar. Þau mygla þar ekki strax eins og önnur ber. Það nægir að setja þau í pott með helmingsmagni af sykri, kanelstöng og ögn af vatni og sjóða þangað til þykknar. Stikilsber þykja góð í chutney eða súrsætar samsuður. Englendingar munu ætíð hafa haft dálæti á stikilsberjum og hægt að læra margt af þeim varðandi notkun á villtum jurtum. Á breskum herragörðum og betri bæjum voru svokölluð stillrooms eða eimingarherbergi. Nokkurs konar vísir að smáapótekum þar sem vín voru eimuð, sápur og önnur hreingerningarefni útbúin, sárakrem soðin, saft sett á flöskur og þurrkaðar jurtir geymdar. Þessi uppskrift er komin erlendis frá og það má breyta henni á ýmsa vegu eftir því hvað til er hverju sinni.

Stilkilsberja-chutney
1 kg stikilsber
200 g laukur
450 ml gott edik
250 g rúsínur
2 tsk salt
2 tsk engiferduft (hægt er að bjarga sér með ferska rót)
2 tsk brúnkökukrydd
175 g sykur

Berin eru þvegin og hreinsuð og laukurinn saxaður. Ber og laukur sett í þykkbotna pott ásamt svolitlu af vatni, hitað að suðu og látið sjóða í 20 mínútur eða þar til berin eru byrjuð að fara í mauk. Vatni bætt í ef þarf svo að ekki brenni við. Síðan er helmingnum af edikinu bætt í pottinn ásamt rúsínum, salti og kryddi. Látið malla við vægan hita í 20 mínútur eða þangað til maukið er byrjað að þykkna. Þá er sykurinn settur í og afgangurinn af edikinu og hrært í þangað til sykurinn er uppleystur. Maukið er enn látið malla í 20 mínútur eða þar til það er hæfilega þykkt og hrært í öðru hverju. Sett í krukkur og látið standa í 3–4 vikur áður en það er notað.

Úr bókinni Ætigarðurinn - handbók grasnytjungsins eftir Hildi Hákonardóttur. Bókin fæst keypt hér á Náttúrumarkaðinum.

Ljósmynd: Stikilsber, Guðrún Tryggvadóttir.


details
Hildur Hákonardóttir
22. August 2010 12:52
Origin: Hildur Hákonardóttir

Evaluation

Ber á annan veg

Ber eru sannarlega björg í bú og margt annað hægt að gera úr þeim góðu ávöxtum en sultur þó að þær standi alltaf fyrir sínu. Hér eru nokkrar hugmyndir sem virka:

Frosin ber
Bláber (eða hvaða ber sem er) eru lögð í plastglas, vatni hellt yfir svo yfir fljóti. Lokað með plastfólíu og sett í frysti. Þannig geymast berin „fersk“ langt fram á næsta ár.

Sæt ber allt árið
Bláberjum (eða hvaða berjum sem er) er velt upp úr sykri/hrásykri, sett í plastpoka og fryst.

Þurrkuð ber
Bláber (eða hvaða ber sem er, þó ekki mjög stórum og safaríkum) eru sturtað í ofnskúffu sem búið er að leggja bökunarpappír á. Sett í ofn og kveikt undir á 50oC í nokkra klukkutíma, ágætt að hafa ofninn örlítið opinn af og til svo rakinn fari út. Ágætt að snúa nokkrum sinnum en ekki nauðsynlegt. Berin þorna og verða „þurrkuð ber“, þvílíkt lostæti og geymast allt árið.

Myndin er af bláberjum í kökuboxi. Ljósmynd: Guðrún Tryggvadóttir


details
Guðrún Arndís Tryggvadóttir
17. August 2010 22:14
Origin: Náttúran.is

Evaluation

Sólber

Sólber eru svolítið sérstök.
Annaðhvort vilja menn þau ekki eða skynja bragðið næstum sem nautn. Nýtt kvæmi af sólberjarunnum, sem hefur borist til landsins, gefur mikið af sér og vex auðveldlega. Sólberjasafi er best þekktur af afurðum sólberja. Blöðin eru notuð þegar piklað er og til að auka brjóstamjólk. Ef ég næ ekki að borða öll sólberin hrá frysti ég þau upp á gamla mátann með því að velta þeim upp úr svolitlum hrásykri eða sulta þau heil.

Sólber sultuð heil:
Upprunalega uppskriftin hljóðar upp á kg af sólberjum móti kg af sykri og 1/4 bolla af vatni.
Sykurinn er bræddur í vatninu og þvegin og hreinsuð berin sett út í og soðið í 1–2 mínútur.
Kælt og látið standa til næsta dags.
Hitað og soðið í 15 mínútur. Berin tekin frá og vökvinn soðinn niður um helming og síðan er berjunum bætt út í að nýju.

Ég ákvað að setja fjallagrös í þessa uppskrift og minnka sykurinn. Setti aðeins helming af sykri á móti berjunum. Hreinsaði lúku af fjallagrösum vel og vandlega. Sauð þau í 3 mínútur, tók þau upp og saxaði fínt. Setti svo grösin í með sykrinum og berjunum á öðrum degi og lét suðuna koma vel upp og malla í 15 mínútur. Lét standa til næsta dags og sauð þá í 10 mínútur. Tók berin upp úr með fiskispaða og setti á krukkur svo þær væru hálffullar og sauð vökvann niður um helming. Fyllti krukkurnar með leginum.

Þetta hleypur ekki en verður þykk berjasósa tilbúin á kökur og búðinga og vöfflur en of þunn á kex eða brauð. Sumar krukkurnar frysti ég en aðrar set ég í ísskáp og sé til hvernig þeim reiðir af og hvort fjallagrösin hafa áhrif til rotvarnar. Þau gefa sultunni gott bragð.

Úr Ætigarðinum - handbók grasnytjungsins, eftir Hildi Hákonardóttur. Bókin er fáanleg hér á Náttúrumarkaðinum.

Efsta myndin er af sólberjarunna, sú í miðið af nýtíndum sólberjum í skál og sú neðsta af sólberjasultu á kexi. Ljósmyndir: Guðrún Tryggvadóttir.


details
Hildur Hákonardóttir
15. August 2010 10:59
Origin:

Evaluation

1234567

2005   2006   2007   2008   2009   2010  
jan   feb   mar   apr   may   jun   jul   aug   sep  

Nature's Market

How do I shop at Nature's Market?
  • Departments
  • Cart
  • Search
  • Guidelines
  • Disclaimer
Indicator

Recent comments

Kúrbítur
ég hef nú verið að rækta kúrbít úti í garði í sumar og hefur sá ...
Kúrbítur 1. 09. 2010 18:01:
Landvernd hvetur til pólítískrar sáttar um stækkun friðlands í Þjórsárverum
Utanvegaakstur er subbuskapur? Friðun hefur lítið með utanvegaakstur að gera, hann stunda svartir sauðir flestra ...
Björn 27. 08. 2010 09:51:
Landvernd hvetur til pólítískrar sáttar um stækkun friðlands í Þjórsárverum
Friðun kemur í mörgum myndum. Það er örugglega hægt að leyfa veiðar á svæðum sem ...
Einar Bergmundur 19. 08. 2010 23:56:
Landvernd hvetur til pólítískrar sáttar um stækkun friðlands í Þjórsárverum
Gamla fallbyssu nálgunin. Ef markmiðið er að stöðva virkjanaframkvæmdir, þá á að duga að banna ...
Björn 19. 08. 2010 14:12:
Hundur bjargar lífi 5 krakka
Skal ekkert fullyrða um það en greinin er þýdd af vefnum lifeinthefastlane.ca og innihald hennar ...
Móna Róbertsdóttir 19. 08. 2010 09:02:
Hundur bjargar lífi 5 krakka
mér finnst þetta hræðilegt en þetta er ekki american pitbull terrier hundur heldur american bully ...
hundar 19. 08. 2010 02:13:
Þurrkun jurta og blóma - haustföndur
Trélím sem þynnt er með vatni og penslað létt yfir gæti hentað vel sem varnish ...
Guðrún Tryggvadóttir 16. 08. 2010 19:56:
Þurrkun jurta og blóma - haustföndur
Hvað notið þið til að úða yfir þurrkuð blóm á kortum, svo þau haldi sér?
Ólafía Margrét Ólafsdóttir 16. 08. 2010 15:13:
Margsaga Magma
Grand Old Aunt Björk: http://grapevine.is/Features/ReadArticle/Bjork-Feature
Guðrún Tryggvadóttir 15. 08. 2010 12:55: