The Community: Organisations
Alviðra nýtur góðs af sjálfboðaliðum SEEDS
Á undanförnum vikum hefur hópur SEEDS sjálfboðaliða frá ýmsum löndum unnið að því að gera Alviðru umhverfisfræðslusetur Landverndar við Sog í Ölfusi lifandi og spennandi fyrir gesti vetrarins auk þess sem hópurinn hefur unnið að viðhaldsverkefnum s.s. að mála hlöðu, útihús, palla, borð, brýr og skiltisstanda í hinu víðfeðma landi Alviðru. Verkefnin voru unnin undir leiðsögn Guðrúnar Tryggvadóttur sem starfar nú sem staðarhaldari í Alviðru meðfram framkvæmdastjórn vefsins Náttúran.is.
Sjálfboðaliðarnir hafa m.a. undirbúið matjurtargarð sem hugmyndin er að félagar í Landvernd taki upp á sína arma með vorinu og geri þar bæði tilraunir með ræktun, uppfræði börn og fullorðna og rækti einnig grænmeti til eigin nota.
Landnámshænsnasetri hefur verið komið á fót í gamla mjólkurhúsinu í fjósinu en Landnámshænsnasetrið hefur verið skipulagt í samráði við Jóhönnu G. Harðardóttur formann Eigenda- og ræktendafélag landnámshænsna og Valgerði Auðunsdóttur að Húsatóftum. Fyrstu ungarnir flytja inn laugardaginn 11. september nk. og öllum áhugasömum er boðið að taka á móti ungunum á móttökuhátið sem hefst kl. 14:00 og fá sér síðan kakó og vöfflur til styrktar hinu nýja Landnámshænsnasetri Alviðru.
Skógarlundir austan og sunnan við Alviðrubæinn voru grisjaður í samráði við Skógræktarfélag Íslands og mikið timbur bíður nú úrvinnslu og frjós hugmyndaflugs gesta Alviðru á næstu misserum. Með grisjuninni hefur útsýni opnast frá suðri til norðurs sem bætir enn möguleika Alviðru til náttúrufræðslu og námskeiða af ýmsu tagi. Nýtt eldstæði er austan við bæinn og aðgangur auðveldaður með trjádrumbatröppum niður í lundinn.
Fugla- og náttúruskoðun verður efld enn frekar í landi Alviðru en Alviðra er þátttakandi í Fuglaskoðunarklasa sem nýlega var stofnað til á Suðurlandi. Í landi Alviðru er, næst á eftir Mývatni, besta aðstaða til fuglaskoðunar á öllu landinu, að sögn Jóhanns Óla Hilmarssonar fuglafræðings.
Alviðra mun kynna vetrardagskrá sína í byrjun september en félögum, áhugamannasamtökum sem og einstaklingum með góðar hugmyndir er boðið að nýta sér hina fjölbreyttu aðstöðu að Alviðru til að halda fundi, vera með námskeið og fyrirlestra, gönguferðir, fuglaskoðun og hvað eina sem getur stuðlað að fræðslu um náttúru- og umhverfistengd málefni til barna jafnt sem fullorðinna.
Allar nánari upplýsingar veita Lárus Vilhjálmsson framkvæmdatjóri Landverndar larus@landvernd.is og Guðrún Tryggvadóttir staðarhaldara Alviðru gunna@nature.is.
Ljósmynd: Seinni SEEDS sjálfboðaliðahópur Alviðru; Paulo Bessa (Portugal), Esther Almena Álvarez (Spánn), Lucy Millet (UK), Alicia Toldi (US), Mael Cormier (Frakkland), Nicolas Calaber (Frakkland), Catrin Jones (UK) and Anastasiya Melentyeva (Rússland). Ljósmyndari: Guðrún Tryggvadóttir.
details
Guðrún Arndís Tryggvadóttir
31. August 2010 13:39
Origin: Náttúran.is
Evaluation
Af sölu hvalaafurða
Morgunblaðið sagði frá því í síðustu viku að hvalveiðar Kristjáns Loftssonar gangi mjög vel.
Minna hefur farið fyrir fréttum af sölu hvalkjöts en fyrstu 6 mánuði ársins flutti Hvalur hf út nær 372 tonn til Japans. Skráð útflutningsverðmæti eru 584,9 milljónir kr. Ekkert var flutt út í fyrra en í lok vertíðar 2009 voru 1500 tonn af hvalaafurðurm í frystigeymslum Hvals hf. Því eru ríflega 1100 tonn enn í frystigeymslum Hvals hf. Við bætist það magn sem hlaðist hefur upp í frystigeymslum Hvals hf. í sumar.
Miðað við að hver skepna gaf af sér 12 tonn í fyrra (1500/125) og að 89 langreyðar hafa verið veiddar það sem af er sumri má gera ráð fyrir að bæst hafi við 1068 tonn við þau 1128 frá því í fyrra sem enn höfðu ekki verið flutt úr landi í lok júní s.l. Samanlagt gera það 2196 tonn. Takist Hval hf. að fylla kvótann (150 dýr) má búast að við að önnur 732 tonn bætist við í frystigeymslur Hvals hf. Samtals 2900 tonn af hvalaafurðum.
Til samanburðar skal bent á að á heildarafli (kjöt, spik og aðrar afurðir) japanska hvalveiðiflotans á síðustu veiðitímabili (2009 - 2010) var 2046 tonn. Kristján Loftsson hyggst því auka framboð hvalaafurða á Japansmarkaði um 250% – markaði sem hefur farið hnignandi s.l. 20 ár.
Spurningin er: Hvað hafa hluthafar Hvals hf. haft upp úr krafsinu? Sannast sagna er það ekki mikið því samkvæmt japönskum tollskýrslum fyrir fyrstu sex mánuði ársins var ekkert flutt inn af hvalaafurðum frá Íslandi fyrr en í júní s.l. Þá voru 33,4 tonn tollafgreidd og var verðmæti þess magns skráð $380,000 (€296,00 eða 45,6 milljónir króna).
Óvarlegt er að álykta að fyrirtæki sem flytur inn hvalaafurðir frá Íslandi greiði Hval hf. fyrir vörur fyrr en þær fást tollafgreiddar. Enn ku vera óselt á markaði í Japan kjöt sem Kristján Loftsson flutt þangað í lok maí 2008.
Það magn sem fékkst tollafgreitt í júní s.l. samsvarar 3 langreyðum en miðað við neyslu á langreyðarkjöts í Japan á tímabilinu 2006 – 2009 eru efri mörk framboðs á langreyðarkjöti á Japansmarkaði 116,4 tonn á ári eða sem nemur afurðum 13 langreyða frá Íslandi, en japanskir hvalveiðimenn hyggjast halda áfram veiðum á langreyði og selja á heimamarkaði. Geri þeir það gæfist rými fyrir um það bil 3 langreyðar frá Íslandi á ári.
Hlutfall innflutnings frá Íslandi í júní s.l. er 1,6% (33,4/2046 = 1,6%) af því sem japanski flotinn aflaði í Suðurhöfum á síðustu vertíð eða um 2,2% (33,4/1500 = 2,2%) af þeim 1500 tonnum sem unnin voru af Hval hf. á vertíðinni 2009. Takist Kristjáni Loftssyni að ná 150 dýrum í ár yrði hlutfallið af heildarafla 2009 og 2010 svo mikið sem 0,01% (33,4/2900 - 0,01%). Ekki verður því sagt að sala hvalkjöts gangi jafn glimmrandi vel og veiðarnar.
Hverjar voru væntingarnar? Í janúar 2009 þegar Einar K. Guðfinnsson, þ.v. sjávarútvegsráðherra, gaf út reglugerð um hvalveiðikvóta fyrir árin 2009 - 2013 upplýsti hann hlustendur RÚV um að veiðarnar gætu aflað þjóðarbúinu allt að 5 milljörðum króna í gjaldeyristekjur árlega eða 41 milljón bandaríkjadala miðað við gengi ISK gagnvart dollar 27. janúar 2009. Skýring Einars K. Guðfinnssonar á ákvörðun sinni stangast á við ummæli hans í viðtali við Reuters þann 24. ágúst 2007, en þá sagði Einar K. Guðfinnsson, að "The whaling industry, like any other industry, has to obey the market. If there is no profitability there is no foundation for resuming with the killing of whales," Sjá: www.reuters.com/article/idUSL2460655320070825
details
Árni Finnsson
23. August 2010 09:26
Origin: NSÍ - Náttúruverndarsamtök Íslands
Evaluation
World Kitchen Garden Day is next Sunday
How people celebrate International Kitchen Garden Day and with whom is up to them. Some choose to do so in public ways with large gatherings of friends and neighbors, whereas others opt for a more intimate celebration with close family. Here are a few ideas for some activities you might consider organizing depending on the level of involvement you would like to have:
- a walking tour of gardens in your area
- a kitchen garden or local agriculture potluck
- a kitchen garden taste-test
- a harvest or planting party
- a benefit for a local food/gardening charity
- a kitchen garden "teach in"
- a single food theme party
- an activity at a local farm
View more on www.kitchengardeners.org and on facebook www.facebook.com/kitchengardeners?v=wall.
Get to know Nature's The Kitchen Garden here to the left.
details
Hildur Hákonardóttir
20. August 2010 21:23
Origin: Kitchengardeners.org
Evaluation
Landvernd hvetur til pólítískrar sáttar um stækkun friðlands í Þjórsárverum
Landvernd fagnar þeim áformum sem umhverfisráðherra hefur kynnt um að stækka friðlandið í Þjórsárverum, einnig til suðurs. Fyrirliggjandi athuganir á Þjórsárverum sýna að svæðið er afar verðmætt vegna gróðurfars og dýralífs, einnig sem víðerni og hluti af stærri landslagsheild. Þetta hefur m.a. komið fram í vinnu við rammaáætlun.
Umfjöllun um verndun Þjórsárvera hefur staðið í nær 50 ár. Nái áform umhverfisráðherra fram að ganga er von til þess að niðurstaða fáist loks í þessu máli. Það yrði þá niðurstaða þar sem náttúran fær að njóta vafans og þar sem skammtíma virkjunarhagsmunir víkja fyrir langtíma verndunarsjónarmiðum.
Landvernd telur að fyrirliggjandi hugmyndir um Norðlingaölduveitu séu ekki ásættanlegar þar sem sýnt hefur verið fram á að framkvæmdir af því tagi myndu spilla verndargildi Þjórsárvera. Umrædd framkvæmd hefði óhjákvæmilega áhrif inn fyrir núgildandi friðlandsmörk Þjórsárvera og gæti valdið óafturkræfum spjöllum á svæðinu. Þessi áform eru að mati Landverndar ekki heldur í samræmi við markmið svæðiskipulags miðhálendisins þess efnis að almennt beri að halda hverskonar mannvirkjagerð á Miðhálendi Íslands í lágmarki.
Landvernd vill benda á að Umhverfisstofnun og erlendir sérfræðingar hafa staðfest að friðlandsmörkin eru algjörlega ófullnægjandi. Þá hefur Samvinnunefnd um miðhálendi Íslands staðfest í bókun að landslagsheild Þjórsárvera nái langt út fyrir núverandi mörk friðlandsins og að Norðlingaölduveita myndi valda miklu umhverfisraski á stóru svæði. Komi til virkjunarframkvæmda verður ekki mögulegt að stækka friðlandið þannig að það nái til allra þeirra náttúruverðmæta sem svæðið býr yfir. Að mati Landverndar hníga öll rök að því að stækka verndarsvæðið þannig að það falli að náttúrulegum mörkum Þjórsárvera. Samtökin fagna því tillögum sem umhverfisráðherra, í samvinnu við iðnaðarráðherra og fjármálaráðherra, hefur kynnt um stækkun verndarsvæðisins. Jafnframt er mikilvægt að líta til hugmynda um verndun þeirra fjalla og jökla sem móta stórbrotna umgjörð svæðisins. þ.e. Kerlingafjalla í vestri og Hofsjökuls í norðri.
Landvernd hafði fyrir nokkrum árum forgöngu um að tveir viðurkenndir erlendir sérfræðingar gerðu úttekt á verndargildi Þjórsárvera. Niðurstaða þeirra var að góðar líkur væru á því að svæðið sé svo einstakt að það gæti átt heima, ásamt stærri landslagsheild, á heimsminjaskrá UNESCO.
Landvernd lítur svo á að almenn pólitísk sátt hafi náðst um stækkun friðlands Þjórsárvera. Stjórn Landverndar hvetur alla þingmenn til að standa vörð um þá sáttagjörð. Þjórsárver eru gróðurvin með árþúsunda samfellda sögu þróttmikils lífríkis. Þau mynda vel afmarkað og einstakt vistkerfi á miðhálendi Íslands og eru mikilvæg heimkynni margra fuglategunda. Þjórsárver eru þjóðargersemi.
details
Landvernd
19. August 2010 13:37
Origin: Landvernd
Evaluation
ÞIngmenn Sjálfstæðisflokks á móti stækkun Friðlandsins í Þjórsárverum
Upphlaup Sjálfstæðisflokksins
Um árabil hefur ríkt víðtæk samstaða um að stækka beri Friðlandið í Þjórsárverum. Í niðurstöðum Rammaáætlunar, faghóps 1 um Náttúru og menningarminjar, segir:
Það var mat hópsins að nokkur svæði, einkum vatnasvið Jökulsár á Fjöllum, Torfajökulssvæðið/Friðland að fjallabaki, Þjórsárver, syðri hluti gosbeltisins við Skaftá/Langasjó/Tungnaá, Vonarskarð og Markarfljót væru gríðarlega verðmæt. Vatnasvið Jökulsánna í Skagafirði er líka verðmætt á hálendi en einnig eru miklir lífríkishagsmunir á láglendi og merkar menningarminjar.
Öll þessi svæði ber að setja í verndarflokk og friðlýsa.
Náttúruverndarsamtök Íslands gagnrýna harðlega upphlaup þingmanna Sjálfstæðisflokksins um myndun miðlunarlóns syðst í Þjórsárerum. Vafalaust helgast þetta upphlaup af því að enn skortir mikið á að unnt verði að afla orku fyrir eitt helsta gæluverkefni flokksins; að reisa álver í Helguvík.
Það er ófrávíkjanleg krafa Náttúruverndarsamtaka Íslands að Friðlandið í Þjórsárverum verði einnig stækkað til suðurs og að tryggt verði að Norðlingaölduveita sé úr sögunni. Orð Morgunblaðsins frá 17. janúar 2006* um að það sé „kominn tími til að taka af skarið um framtíð Þjórsárvera“ og ríkisstjórn og Alþingi eigi „að kveða upp úr um að þar verði ekki ráðizt í neinar framkvæmdir“ eiga enn við.
*Ekki er hægt að tengja á fréttina þar sem óleyfilegt er að tengja á fréttir Morgunblaðsins.
details
Árni Finnsson
17. August 2010 12:29
Origin: NSÍ - Náttúruverndarsamtök Íslands
Evaluation
Events calendar
| Mon | Tue | Wed | Thu | Fri | Sat | Sun |
|---|---|---|---|---|---|---|
| 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | ||
| 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 |
| 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 |
| 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 |
| 27 | 28 | 29 | 30 |
Athugasemd veðurfræðings
Búast má við snörpum vindhviðum við fjöll á Suður- og Vesturlandi og á Miðhálendinu með morgninum og fram eftir degi.
Skrifað af vakthafandi veðurfræðingi 03.09.2010 01:03

Recent comments
ég hef nú verið að rækta kúrbít úti í garði í sumar og hefur sá ...
Kúrbítur 1. 09. 2010 18:01:
Utanvegaakstur er subbuskapur? Friðun hefur lítið með utanvegaakstur að gera, hann stunda svartir sauðir flestra ...
Björn 27. 08. 2010 09:51:
Friðun kemur í mörgum myndum. Það er örugglega hægt að leyfa veiðar á svæðum sem ...
Einar Bergmundur 19. 08. 2010 23:56:
Gamla fallbyssu nálgunin. Ef markmiðið er að stöðva virkjanaframkvæmdir, þá á að duga að banna ...
Björn 19. 08. 2010 14:12:
Skal ekkert fullyrða um það en greinin er þýdd af vefnum lifeinthefastlane.ca og innihald hennar ...
Móna Róbertsdóttir 19. 08. 2010 09:02:
mér finnst þetta hræðilegt en þetta er ekki american pitbull terrier hundur heldur american bully ...
hundar 19. 08. 2010 02:13:
Trélím sem þynnt er með vatni og penslað létt yfir gæti hentað vel sem varnish ...
Guðrún Tryggvadóttir 16. 08. 2010 19:56:
Hvað notið þið til að úða yfir þurrkuð blóm á kortum, svo þau haldi sér?
Ólafía Margrét Ólafsdóttir 16. 08. 2010 15:13:
Grand Old Aunt Björk: http://grapevine.is/Features/ReadArticle/Bjork-Feature
Guðrún Tryggvadóttir 15. 08. 2010 12:55:















