Health: Healthy living
Að íhuga eins og tíbetar gera
Austurlensk heimspeki og búddatrú er um 2500 ára. Hæstu hæðum sínum hefur hún náð t.d. á hásléttu Tíbets, þar sem Dalai Lama ríkti áður en hann var hrakinn í útlegð af kínverjum. Það sem tíbetskir búddamunkar iðka öðru fremur er hugleiðsla og er nú hægt að fá kennslu í tíbetskri hugleiðslu hjá Hugleiðslu- og friðarmistöðinni, hugleidsla.is.Kennarar eru Dagmar Vala Hjörleifsdóttir, dýralæknir og Halldór Jónsson, læknir. Skemmst er frá því að segja að ég skellti mér á námskeið, og hef nú þegar náð að þroska með mér gjörhygli (mindfulness) og slaka á. Hugleiðslan er mjög góð slökunaraðferð og hægir jafnvel aðeins á hjartslætti og blóðþrýstingur lækkar. Ekki er um trúboð hjá kennurunum að ræða, en þeim sem vilja kynna sér tíbetskan búddisma nánar er bent á að setja sig í samband við félag búddista á Íslandi.
Farið er í gegnum bókina Diamond Mind eftir Rob Nairn, sem er orðin metsölubók í dag og gerðar ýmsar æfingar t.d. rúsínuæfingin vinsæla sem felur í sér að borða eina rúsínu á um 10 mínútum.
Ótrúlegt en satt. Þetta er hægt, og ég hvet alla sem eru að leita að nýjum leiðum til að ná tökum á hugsun sinni og slaka á að kynna sér hvenær næsta námskeið verður á hugleidsla.is
more
Ingibjörg Elsa Björnsdóttir
5. April 2009 10:59
Origin: Ingibjörg Elsa Björnsdóttir
Evaluation
Maður lifandi - Námskeið og fyrirlestrar
Maður lifandi stendur fyrir fjölbreyttum fyrirlestrum og styttri námskeiðum nú í haust. Fyrsti fyrirlesturinn sem haldinn verður þriðjudaginn 7. október er spurningin „Hvernig eigum við að lifa heilsusamlegu líferni?“ tekin fyrir. Í kynningu á fyrirlestrinum segir;
„Það er engin launung að það er almenn vitneskja að heilsu okkar hér í vestrænu löndununum fer hratt versnandi og engin lausn virðist vera í sjónmáli þrátt fyrir tækninýjungar og ríkari þekkingu en nokkurn tíman áður. En erum við að leita á réttum stöðum? Hvernig var mataræði fyrir 1900 áður en tíðni hrörnunarsjúkdóma fór að aukast?
í þessum fyrirlestri verður skoðað frumstæð mataræði samfélaga víðsvegar um heim, hverjar voru aðstæður þeirra og voru þau heilbrigð. Þrátt fyrir að þessi samfélög hafi lifað á ólíku mataræði voru ákveðnir grundvallarþættir sameiginlegir með þeim flestum.“
07. okt. Mataræði fyrr og nú - Næring í víðari skilningi
08. okt. Ævintýralíf - Benedikta Jónsdóttir
09. okt. Heilsukostur - Matreiðslunámskeið
11. okt. Farðu alla leið, þína leið
16. okt. Kökur og eftirréttir - Auður I. Konráðsdóttir
18. okt. Hláturjóga með jákvæðu ívafi - Ásta Valdimarsdóttir
21. okt. Fitur í mataræði - Haraldur Magnússon
29. okt. Hvað á ég að gefa litla barninu mínu að borða? - Ebba Guðný
04. nóv. Líkamsstaða, skrifstofuumhverfið og æfingar - Haraldur Magnússon
details
Maður lifandi
6. October 2008 11:00
Origin: Maður Lifandi ehf
Evaluation
Íslenski fjallahjólaklúbburinn vex og vex
Eftir sólríkt og skemmtilegt hjólasumar er komið að lokaferð þriðjudagsferða Íslenska fjallahjólaklúbbsins. Frá því um miðjan maí hafa vaskir reiðhjólaunnendur safnast saman við Mjóddina kl. 20:00 á þriðjudagskvöldum og hjólað saman um borgina. Ferðirnar hafa teygt sig víða; fuglaskoðun í Grafarvoginum, Gróttuviti heimsóttur, kaffihúsaferð á Hressó, hjólað í kringum Rauðavatn, Heiðmerkurhringur, Elliðavatn, í Hafnafjörð og víðar.
Frá fyrstu ferð vorsins var ljóst að hjólamönnum fjölgar ört í borginni. Hópurinn hefur að meðaltali verið 40 - 60% stærri í ferðum sumarsins en á undanförnum árum. Samhliða ferðunum hafa þátttakendur safnað ferðum og í lokaferðinni verður einmitt afhentur mætingabikar sumarsins. Annars vegar farandbikar og hins vegar annar minni til eignar. Þess má geta að ein manneskja hefur eignast farandbikarinn fyrir að vera með bestu mætinguna í þriðjudagskvöldferðirnar í 3 ár; það var hin knáa Sóley Bjarnadóttir sem það gerði fyrir tveimur árum, þá 12 ára gömul.
Ferðin á þriðjudaginn hefst við Mjóddina, þar sem strætó stoppar, kl. 20 og hjólað verður þaðan sem leið liggur í GÁP í Mörkinni. Þar verður lokahátíð þriðjudagsferðanna, verðlaunaafhending og léttar veitingar.
Ferðin er opin öllum hjólamönnum og ætti að vera lokið fyrir kl. 22.
Allar nánari upplýsingar veitir Bjarni Helgason í s. 8494245 eða Sesselja Traustadóttir í s. 864 2776
details
Íslenski fjallahjólaklúbburinn
22. August 2008 18:45
Origin: Íslenski fjallahjólaklúbburinn
Evaluation
Náttúran, heilsan og sjálfbær þróun
Um síðustu helgi var 10. landsráðstefna Staðardagskrár 21 haldin að Hótel Örk í Hveragerði. Yfirskrift ráðstefnunnar var „Sjálfbær þróun, betri heilsa og ný störf“. Á fyrri degi ráðstefnunnar var fjallað um tengsl umhverfis og heilsu út frá ýmsum sjónarhornum. Niðurstöður úr könnunum sem og reynsla af útikennslu og öðru samneyti manneskjunnar við óskpillta náttúru, sýna ótvírætt fram á mikilvægi þess að stunda útivist og ekki sþst fram á það að einstaklingurinn verði að fá tækifæri til að eiga einræður við náttúruna á sínum eigin forsendum eigi hann að halda góðri heilsu, bæði andlegri og líkamlegri.
Verkefni eins og Hálendishópurinn, sem Haraldur Sigurðsson hópstjóri kynnti, sýnir svo ekki verður um villst að ungmenni sem lent hafa utangarðs í þjóðfélaginu þurfi að fá tækifæri til að horfast í augu við sig sjálf á forsendum náttúrunnar og í samneyti við hana. Hálendishópurinn er dæmi um úrræði sem eru svo einföld en samt svo lítið notuð enn sem komið er. Níu ungmenni fá tækifæri til að fara í slíka ferð árlega, með meðferðaraðilum og stuðningskerf á bak við sigi, en er hér ekki komið efni í góða viðskiptahugmynd á sviði ferðamennsku?
Það virðist borðleggjandi að bjóða nágrannalöndum okkar að senda til okkar ungmenni í vanda þar sem þau yrðu síðan leidd upp á hálendið til að kynnast sjálfum sér. Í raun þarf ekki ungmenni í vanda til enda getur hver sem er kynnst sjálfum sér uppá nýtt og bókað ferð til Íslands með það að markmiði.
more
Guðrún Arndís Tryggvadóttir
11. February 2008 11:16
Origin: Náttúran.is
Evaluation
Reyklausi dagurinn er 31. maí
Nú nálgast reyklausi dagurinn og því tilvalið fyrir þá sem enn anda að sér eitrinu að hætta. Eftir 1. júní ganga í gildi lög sem banna með öllu reykingar á veitingahúsum, svo nú er að taka sér tak.
Fyrir þá sem enný á reykja, hinir geta hætt að lesa:
Nokkrar aðferðir eru til sem geta hjálpað þér að losna undan bölinu. Nikótíntyggjó hjálpar mörgum, nálastungumeðferðir sumum og lestur góðrar bókar öðrum, en eitt er víst að það sem er mikilvægast er „viljinn til að hætta“. Ef að viljinn er veikur eða bara ekki alveg nógu sterkur er ekkert vit í því að þykjast ætla að hætta. Ákvörðunina má undirbúa vel og rækilega en oftast er best að vera með sem minnstar yfirlýsingar og ekki búast við að fá klapp á bakið frá neinum eftir fyrsta reyklausa daginn, eða þriðja. Talað er um að það taki allt upp í níu mánuði að hreinsa nikótínið nógu vel úr líkamanum til að hægt sé að segja að maður sé hættur að reykja. En á þessum níu mánuðum eignast þú líka nýtt líf í heilbrigðari skrokki svo það er vel þess virði.
more
Guðrún Arndís Tryggvadóttir
29. May 2007 11:25
Origin:
Evaluation
Events calendar
| Mon | Tue | Wed | Thu | Fri | Sat | Sun |
|---|---|---|---|---|---|---|
| 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | ||
| 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 |
| 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 |
| 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 |
| 27 | 28 | 29 | 30 |
Athugasemd veðurfræðings
Búast má við snörpum vindhviðum við fjöll á Suður- og Vesturlandi og á Miðhálendinu með morgninum og fram eftir degi.
Skrifað af vakthafandi veðurfræðingi 03.09.2010 01:03

Recent comments
ég hef nú verið að rækta kúrbít úti í garði í sumar og hefur sá ...
Kúrbítur 1. 09. 2010 18:01:
Utanvegaakstur er subbuskapur? Friðun hefur lítið með utanvegaakstur að gera, hann stunda svartir sauðir flestra ...
Björn 27. 08. 2010 09:51:
Friðun kemur í mörgum myndum. Það er örugglega hægt að leyfa veiðar á svæðum sem ...
Einar Bergmundur 19. 08. 2010 23:56:
Gamla fallbyssu nálgunin. Ef markmiðið er að stöðva virkjanaframkvæmdir, þá á að duga að banna ...
Björn 19. 08. 2010 14:12:
Skal ekkert fullyrða um það en greinin er þýdd af vefnum lifeinthefastlane.ca og innihald hennar ...
Móna Róbertsdóttir 19. 08. 2010 09:02:
mér finnst þetta hræðilegt en þetta er ekki american pitbull terrier hundur heldur american bully ...
hundar 19. 08. 2010 02:13:
Trélím sem þynnt er með vatni og penslað létt yfir gæti hentað vel sem varnish ...
Guðrún Tryggvadóttir 16. 08. 2010 19:56:
Hvað notið þið til að úða yfir þurrkuð blóm á kortum, svo þau haldi sér?
Ólafía Margrét Ólafsdóttir 16. 08. 2010 15:13:
Grand Old Aunt Björk: http://grapevine.is/Features/ReadArticle/Bjork-Feature
Guðrún Tryggvadóttir 15. 08. 2010 12:55:















