The Environment: Nature

Myrkurfundur Græna netsins - Hversu verðmætt er myrkrið?

Snævarr Guðmundsson landfræðingur og leiðsögumaður er gestur Græna netsins, félags jafnaðarmanna um umhverfið, náttúruna og framtíðina á fundi í Golfskálanum á Seltjarnarnesi um myrkurgæði og ljósmengun. Snævarr hefur kannað ljós og myrkur að næturlagi á ýmsum stöðum á höfuðborgarsvæðinu og komist að því meðal annars að ljósmengun í einstökum sveitarfélögum er mest í Kópavogi, sem er þeirra upplýstast – en myrkrið er hinsvegar mest á Seltjarnarnesi og Álftanesi. Á svæðinu öllu er næturbirta, og þar með hulinn næturhiminn – frá fjórum til sjö sinnum meiri en á Þórshöfn, þar sem enn er stjörnubjart þegar vel viðrar að nóttu.

Líklega er höfuðborgin með grannbæjum eitt af upplýstustu byggðarsvæðum jarðar miðað við höfðatölu, og ekkert undarlegt við að Íslendingar vilji hafa ljós í skammdeginu. Ljósmengun fylgja hinsvegar ýmsir ókostir, þeirra mestur sá að næturhiminn hverfur og stjörnur sjást ekki fyrren talsvert utan við miðbæina. Kynslóðir borgarbarna alast því upp án þess að njóta stjarnanna – og fyrir ferðamenn dregur úr aðdráttarafli Reykjavíkur sem ævintýraborgar myrkurs og norðurljósa.
Margt má hinsvegar gera til að draga úr mengun af ljósum án þess að valda óþægindum fyrir umferð, atvinnulíf og sálarástand íbúanna, og er reynt víða erlendis. Hér heima standa Borgnesingar fremstir í flokki við að vinna gegn ofnotkun ljósa í byggð.

Fundur Græna netsins um verðmæti myrkursins verður haldinn laugardaginn 14. janúrar og hefst kl. 17:00, eftir sólsetur, í Golfskálanum á Seltjarnarnesi. Eftir fyrirlestur Snævars verður gengið út undir bert loft að líta á himinhnetti og borgarljós einsog veður leyfir.

Sjá staðsetningu á Já.is, smella hér.

Sjá viðburðinn á Facebbook.

Ljósmynd: Aurora Borealis, Árni Tryggvason.


details

Græna netið
12. January 2012 14:56
Origin: Græna netið

Einkunn

Bæjarstjórn samþykkti friðun

Bæjarstjórn Kópavogs samþykkti á fundi sínum í gær tillögur um friðlýsingu Skerjafjarðar.

Kosið var um tillögurnar í tvennu lagi. Annars vegar var kosið um friðlýsingu í Kópavogi og var hún samþykkt með öllum greiddum atkvæðum. Hins vegar var kosið um friðlýsingu Fossvogs. Hún var samþykkt með öllum atkvæðum meirihlutans í bæjarstjórn, tveir bæjarfulltrúar sátu hjá og þrír bæjarfulltrúar greiddu atkvæði á móti tillögunni.

Fjallað var um málið á fundi umhverfis- og samgöngunefndar Kópavogs í síðustu viku. Fulltrúar meirihlutans vilja að bæjarstjórn samþykki tillögu að friðlýsingu og semji við Umhverfisstofnun og Náttúrufræðistofu Kópavogsbæjar um umsjón og rekstur svæðisins. Fulltrúar meirihlutans koma úr röðum Samfylkingar, Vinstri-grænna og Næst besta flokksins.

Fulltrúar Sjálfstæðisflokks eru hins vegar andvígir hugmyndum um friðlýsingu og segja að nú þegar sé bæjarvernd á leirum í Kópavogi og Fossvogi. Þeir telja að ekki hafi verið sýnt fram á að ávinningur sé af friðlýsingu umfram bæjarvernd. Þá finnst þeim eðlilegt að ákvörðunarvald í málefnum Kópavogs sé í höndum bæjarstjórnar en ekki ráðherra í ríkisstjórn. Síðast nefnda atriðinu vísuðu fulltrúar meirihlutans á bug og sögðu að kjörnir fulltrúar í Kópavogi hafi áfram ákvörðunarvald yfir hinu friðlýsta svæði.

Kort: Kópavogur og Fossvogur, skjáskot af Infrapath Kópavogur á vef Kópavogsbæjar.


details

Rúv
12. January 2012 08:20
Origin: RÚV

Einkunn

Náttúruverndarsamtök Suðvesturlands fagna stofnun jarðminjagarðs á Reykjanesskaga

Náttúruverndarsamtök Suðvesturlands fagna nýlegri ákvörðun Grindavíkurbæjar um stofnun jarðminjagarðs  (Geopark) á Reykjanesi. Sveitarfélögin á Suðurnesjum hafa nú  ákveðið að ganga til samstarfs um stofnun slíks garðs. Er það mikið fagnaðarefni þar sem slík ráðstöfun er vel til þess fallin að auka almenna vitund um mikilvægi náttúruverndar á svæðinu. Huga þarf vandlega að þeim málaflokki, t.d. með tilliti til virkjana og þeim mannvirkjum sem þeim fylgja. Einnig  þarf að gera ráðstafanir til að koma í veg fyrir utanvegaakstur, sem verið hefur mikið vandamál á Reykjanesskaga.

Slíkur jarðvangur, Katla Geopark, hefur nú verið stofnaður á Suðurlandi og þar sér fólk  fram á margvísleg tækifæri honum tengdum. Við erum sannfærð um að svo verði einnig á Suðurnesjum. Verði rétt á málum haldið getur slíkur garður auðveldlega skapað fjölda starfa og tækifæra í ferðaþjónustu enda liggur Reykjanesskaginn vel við slíku vegna nálægðar við alþjóðaflugvöll og ekki síst vegna þeirrar jarðfræðilegu sérstöðu sem svæðið hefur.

Náttúruverndarsamtök Suðvesturlands minna á að 83% þeirra erlendu ferðamanna sem sækja landið heim eru hingað komin í þeim tilgangi að upplifa ósnortna náttúru. Þeir eru ekki komnir hingað til að skoða stöðvarhús, borstæði, háspennulínur, línuvegi, hitaveiturör og önnur þau mannvirki sem fylgja jarðvarmavirkjunum.

Ljósmynd: Grænavatn á Reykjanesi, Árni Tryggvason.


details

Jóhannes Ágústsson
28. December 2011 12:41
Origin: Náttúruverndarsamtök Suðvesturland

Einkunn

Hvað er á ferðinni? - Ný óværa í garðinum

Guðmundur Halldórsson, skordýrafræðingur og rannsóknastjóri hjá Landgræðslu ríkisins verður með fyrirlestur á Garðyrkjufélags Íslands, fimmtudaginn 24. nóvember  í fundarsal Arionbanka, Borgartúni 19 og hefst fyrirlesturinn kl. 20:00.

Meindýrum á trjágróðri hefur fjölgað verulega hér á landi að undanförnu og eins hefur tjón af tegundum sem fyrir voru í landinu aukist.

Margt bendir til þess að hlýnandi loftslagi fylgi fjölgun skordýra, en svipaða sögu eru að segja frá öðrum löndum.  Í fyrirlestrinum verður fjallað um  hvers sé að vænta í framtíðinni og til hvaða aðgerða sé unnt að grípa til að sporna við þessari þróun.

Aðgangseyrir er kr. 500 fyrir félaga í Garðyrkjufélagi Íslands og maka þeirra, en kr. 1,000,- fyrir utanfélagsmenn. 
Allir velkomnir!


details

Valborg Einarsdóttir
17. November 2011 19:57
Origin: Garðyrkjufélag Íslands

Einkunn

Málþing um einstaka náttúra eldsveitanna - Eldvötn

Eldvötn - samtök um náttúruvernd í Skaftárhreppi standa fyrir málþinginu „Einstök náttúra Eldsveitanna“ í félagsheimilinu Kirkjuhvoli á Kirkjubæjarklaustri sunnudaginn 20. nóvember kl. 14:30-16:50.
Málþingið er öllum opið og eru áhugasamir hvattir til að mæta.

Dagskrá:

  • 14:30 Setning: Ólafía Jakobsdóttir
  • 14:35 Myndir og fróðleikur frá Hólmsá - Vigfús Gíslason frá Flögu í Skaftártungu
  • 15:05 Myrkur um miðjan dag – nokkur stórgos í Skaftárþingi - Haukur Jóhannesson jarðfræðingur
  • 15:35 Kaffihlé
  • 15:50 Stórkostlegastu sýningu í heimi getur að líta í Skaftárhreppi - Ómar Þ. Ragnarsson fjölmiðlamaður
  • 16: 20 Umræður og fyrirspurnir
  • 16:50 Samantekt og slit málþings

Málþingsstjóri verður Jóna Björk Jónsdóttir
Nánari upplýsingar í síma 892 9650 og á netfanginu eldvotn@gmail.com.
Sjá viðburðinn á Facebook.

Athugið að aðalfundur Eldvatna – samtaka um náttúruvernd í Skaftárhreppi verður haldinn í félagsheimilinu Kirkjuhvoli á Kirkjubæjarklaustri fyrir málþingið; sunnudaginn 20. nóvember 2011 kl. 13:00-14:20. Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf og önnur mál. Aðalfundurinn er öllum opinn og nýir félagar eru velkomnir.

Í tilefni málþingsins mun Icelandair Hótel Klaustur bjóða uppá sértilboð á gistingu með morgunmat ásamt glæsilegu villibráðarhlaðborði, laugardagskvöldið 19.nóvember. Nánari upplýsingar eru veittar í síma 487-4900 eða á klaustur@icehotels.is.

Ljósmynd: Skaftárflúðir, Eldvötn.


details

Ólafía Jakobsdóttir
15. November 2011 08:37
Origin: Eldvötn - samtök um náttúruvernd í Skaftárhreppi

Einkunn

123426343536

2005   2006   2007   2008   2009   2010   2011   2012  
jan   feb  

Nature's Market

How do I shop at Nature's Market?
  • Departments
  • Cart
  • Product search
  • Guidelines
  • Disclaimer
Indicator

Recent comments

Fyrirspurn til Matvælastofnunar
Matvælastofnun vísar á heilbrigðiseftirlit sveitarfélaganna um eftirlitsskyldu. Hinsvegar hefur Matvælastofnun ekkert kynnt eða rætt málið ...
Lesandi 31. 01. 2012 18:23:
Fyrirspurn til Matvælastofnunar
Sæl María. Við sendum opna fyrirspurn um þetta til MAST og hér að ofan má ...
Guðrún Tryggvadóttir 26. 01. 2012 23:57:
Fyrirspurn til Matvælastofnunar
er byrjað að merkja þessar vörur? ég hef ekki tekið eftir neinum merkingum ennþá.
María 26. 01. 2012 12:12:
Avokadoolía í stað augnkrems
Veit það því miður ekki. Ég myndi spyrja Kollu grasalækni eða heilsubúðirnar.
Guðrún Tryggvadóttir 24. 01. 2012 14:49:
Avokadoolía í stað augnkrems
Hvar fæst svona avokadoolía???
Elín 23. 01. 2012 13:26:
Spjaldtölvur í skólum
Náttúran beindi fyrirspurn til Stéfáns Gíslasonar um rafbækur og umhverfið og sendi hann okkur þennan ...
um rafbækur og umhverfið 23. 01. 2012 11:01:
Fyrirspurn til Matvælastofnunar
Svar Matvælastofnunar hefur borist: „Merkingar á matvörum með erfðabreyttu innihaldi“. Reglugerðin um merkingu erfðabreyttra matvæla ...
Guðrún Tryggvadóttir 18. 01. 2012 11:02:
Sóríasis
TAkk
:D 17. 01. 2012 20:21:
Iðnaðarsalt í matvælum
Iðnaðarsalt átti ekki að nota í matvæli: http://vefblod.visir.is/index.php?s=5738&p=125721
úr Fréttablaðinu 17. 01. 2012 09:26:

+ Fleiri ummæli

Fréttir frá: