The Country: Events
Opinn dagur í Skaftholti
Í Skaftholti í Gnúpverjahreppi er stundaður lífrænn og lífefldur (bíódýnamískur) búskapur. Þar hefur ennfremur verið unnið meðferðarstarf í 30 ár. Skaftholt er sjálfum sér nægt með búsafurðir allar. Þar lifa og starfa nú um 20 manns. Mikil uppbygging hefur átt sér stað en þeir einstaklingar sem búa í Skaftholti þurfa friðsælt umhverfi og mikilvægur þáttur í meðferðarstarfinu er róandi nærvera Þjórsár og hinnar stórbrotna náttúru allt um kring.
Laugardaginn 28. ágúst verður opinn dagur í Skaftholti frá kl. 14:00 til 17:00. Lífræn grænmetis og veitingasala og allir hjartanlega velkomnir.
Ef þú slærð inn leitarorðið Skaftholt í leitarvélina hér til hægri á síðunni (hjá Voffa), finnur þú staðsetningu Skaftholts á græna kortinu og greinar um ýmislegt sem snertir Skaftholt.
Myndin er af bæjarstæðinu í Skaftholti. Ljósmynd: Guðrún Tryggvadóttir
details
Guðrún Arndís Tryggvadóttir
18. August 2010 23:46
Origin: Náttúran.is
Evaluation
40 ár frá sprengingu Miðkvíslarstíflu
40 ár verða liðin frá sprengingu Miðkvíslarstíflu þ. 25. ágúst næstkomandi. Tímamótanna verður minnst og þeir heiðraðir sem þarna stóðu að verki á samkomu sem haldin verður þ. 25. ágúst n.k. og hefst kl. 18:00 í Helgey við Miðkvísl. Þar verður stutt fremur hátíðleg athöfn, kórsöngur, ávarp sprengjumanns og afhjúpaður minnisvarði um stíflurofið. Áætlað er að athöfnin taki um hálfa klukkustund og síðan er boðið til kaffisamsætis að sveitasið í Skjólbrekku þar sem ungir og gamlir hittast, rifja atburðinn upp og gleðjast saman. Gestum er velkomið að ávarpa samkomuna. Á þessa hátíðar- og baráttusamkomu eru allir velkomnir sem hafa áhuga á náttúruvernd og láta sig verndun Mývatns og Laxár varða.
Ljósmynd: Miðkvíslarrústir. Mynd fengin að láni á unsteinn.blogcentral.is.
details
Hjördís Finnbogadóttir
15. August 2010 23:01
Origin:
Evaluation
Uppskriftakeppni Viðeyjar
Uppskriftakeppni Viðeyjar er nú haldin í annað sinn og ættu allir sem eru áhugasamir um nýtingu landsins gæða og finnst gaman að búa til góðgæti úr íslenskri flóru að taka þátt.
Keppnin er einföld og allir geta tekið þátt. Eina skilyrði til þátttöku er að í uppskriftinni sé að minnsta kosti eitthvað eitt sem vex í Viðey, - rabbarbari, kúmen, hvönn, netla, blóðberg, maríustakkur eða hvaðeina annað sem vex í eynni.
Skráning í keppnina hófst sunnudaginn 20. júní og stendur hún enn yfir. Hægt er að skrá sig með því að senda nafn sitt á: videy@reykjavik.is.
Þátttakendur mæta svo með sitt framlag til keppninnar ásamt uppskriftinni á Töðugjöld í Viðey fyrir kl. 13:30 þann 29.ágúst. Þar mun dómnefnd skera úr um hvert þykir vera besta Viðeyjarhnossgætið. Glæsileg verðlaun ery í boði.
Dómnefndina skipa þau Friðgeir Ingi Eiríksson yfirmatreiðslumaður á Gallery Holt, Sólveig Baldursdóttir ritstjóri Gestgjafans og Nanna Rögnvaldsdóttir ritstjóri og matreiðslubókahöfundur.
Myndin er af hinum þremur úrslitaréttum í uppskriftakeppninni i fyrra. Kúmenpönnukökurnar urðu hlutskarpastar. Ljósmynd: Guðrún Tryggvadóttir.
details
Berglind Ólafsdóttir
13. August 2010 14:44
Origin: Viðeyjarsafn
Evaluation
Fiskidagurinn mikli á Dalvík 4. - 8. ágúst - 10 ára afmæli
Fiskidagurinn mikli "Fjölskylduhátíð" er haldinn hátíðlegur í Dalvíkurbyggð ár hvert á fyrsta laugardegi eftir verslunarmannahelgina. Fiskverkendur og fleiri aðilar í byggðarlaginu ásamt góðum styrktaraðilum bjóða landsmönnnum og gestum landsins í margréttaða fiskveislu milli kl 11:00 og 17:00. Markmið hátíðarinnar er að fólk komi saman, hafi gaman og borði fisk. Matseðilinn breytist ár frá ári þó ávallt sé boðið upp á ákveðna vinsæla rétti. Af þeim er helst að nefna fiskborgarana sem grillaðir eru á lengsta grilli á Íslandi. Grillið er færiband og á því stikna borgararnir 8 metra leið. Á fjórtán grillstöðvum víða um svæðið grilla heimamenn allskonar fisktegundir legna í ljúffengri maríneringu. Öllum réttum fylgja brauð og drykkir eins og hver getur í sig látið. Kvöldið fyrir Fiskidaginn mikla bjóða íbúar byggðalagsins gestum og gangandi upp á fiskisúpu í heimahúsum. Afar vönduð og fjölbreytt skemmtidagskrá hefur prýtt hátíðina.
details
Fiskidagurinn mikli
1. August 2010 09:44
Origin:
Evaluation
Carbon Recycling kynning í Sesseljuhúsi
Andri Ottesen framkvæmdastjóri Carbon Recycling International* mun halda fræðsluerindi í Sesseljuhúsi , Sólheimum, laugardaginn 17. júlí kl 13:00. Þar mun hann fjallar um vistvæna tækni og vistvænar áherslur í atvinnuuppbyggingu.
Hann mun fjalla um endurnýtingu á CO2 útblæstri frá iðnaðarframleiðslu til eldsneytisframleiðslu (metanól sem er blandað í bensín til lækkunar á CO2 útblæstri frá umferð). Einnig fjallar hann um uppbyggingu iðnaðargarða sem vistvæn stóriðja.
Allir eru velkomnir og aðgangur er ókeypis.
*Carbon Recycling International ehf er nýsköpunarfyrirtæki sem hefur þróað tækni til framleiðslu á metanóli úr koltvíoxíði en frumgerð vélar sem getur breytt útblæstri í orku „metanól“ sem getur knúið bifreiðar er fullbúin. Fyrirhugað er að reisa stöð á Svartsengi, nærri orkuveri HS Orku. Vísindamenn Carbon Recycling hafa fengið einkaleyfi á Íslandi á aðferðinni sem hefur vakið mikla athygli enda myndi slík framleiðsla leysa hluta af vandamáli kolefnislosunar frá orkuverum og þannig gera þau loftslagsvænni.
details
Guðrún Arndís Tryggvadóttir
16. July 2010 12:14
Origin: Sesseljuhús
Evaluation
Events calendar
| Mon | Tue | Wed | Thu | Fri | Sat | Sun |
|---|---|---|---|---|---|---|
| 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | ||
| 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 |
| 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 |
| 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 |
| 27 | 28 | 29 | 30 |
Athugasemd veðurfræðings
Búast má við snörpum vindhviðum við fjöll á Suður- og Vesturlandi og á Miðhálendinu með morgninum og fram eftir degi.
Skrifað af vakthafandi veðurfræðingi 03.09.2010 01:03

Recent comments
ég hef nú verið að rækta kúrbít úti í garði í sumar og hefur sá ...
Kúrbítur 1. 09. 2010 18:01:
Utanvegaakstur er subbuskapur? Friðun hefur lítið með utanvegaakstur að gera, hann stunda svartir sauðir flestra ...
Björn 27. 08. 2010 09:51:
Friðun kemur í mörgum myndum. Það er örugglega hægt að leyfa veiðar á svæðum sem ...
Einar Bergmundur 19. 08. 2010 23:56:
Gamla fallbyssu nálgunin. Ef markmiðið er að stöðva virkjanaframkvæmdir, þá á að duga að banna ...
Björn 19. 08. 2010 14:12:
Skal ekkert fullyrða um það en greinin er þýdd af vefnum lifeinthefastlane.ca og innihald hennar ...
Móna Róbertsdóttir 19. 08. 2010 09:02:
mér finnst þetta hræðilegt en þetta er ekki american pitbull terrier hundur heldur american bully ...
hundar 19. 08. 2010 02:13:
Trélím sem þynnt er með vatni og penslað létt yfir gæti hentað vel sem varnish ...
Guðrún Tryggvadóttir 16. 08. 2010 19:56:
Hvað notið þið til að úða yfir þurrkuð blóm á kortum, svo þau haldi sér?
Ólafía Margrét Ólafsdóttir 16. 08. 2010 15:13:
Grand Old Aunt Björk: http://grapevine.is/Features/ReadArticle/Bjork-Feature
Guðrún Tryggvadóttir 15. 08. 2010 12:55:















