The Country: Flora

Uppstilling á sandi

Uppstillingar á við þessa má nú finna um víðan völl, enda náttúran önnum kafin við að auka kyn sitt og skartar til þess sínu fegursta.

Fremst í hópi þessara sandelsku plantna er geldingahnappur [Armeria maritima] á sínum fallegasta blómgunartíma, til hægri er blóðberg [Thymus praecox ssp. arcticus]. Ofan við blómplönturnar er kattartunga [Plantago maritima].


more
Guðrún Arndís Tryggvadóttir
26. July 2010 11:35
Origin:

Evaluation

Berjatíðin að ganga í garð

Gunna í berjamó í Ingólfsfjalli 20. júlí 2010Það er ótrúlegt en satt, berjatíðin er að ganga í garð. Ég tíndi þroskuð bláber og krækiber í austurhliðum Ingólfsfjalls í gær. Fyrsta bláberjaskyr ársins var því borðað með bestu lyst þann 20. júlí í ár. En þetta er auðvitað ekkert meðalárferði. Bláberjatínsla í Ingólfsfjalli 20. júlí  2010Eitt er að veðrið í sumar hefur verið ákaflega berjavænt og annað að hlýnun jarðar hefur sannanlega sitt að segja.

Bláberjalyng í Ingólfsfjalli 20. júlí 2010Ég sat því með blendnar tilfinningar við berjatínsluna í gær.

Á Wikipedia segir; „Bláber eru ávextir  ákveðinna lynga af bjöllulyngs-ættkvíslinni, lyngið sem berin vaxa á er kallað bláberjalyng. Berin eru vinsæl til matargerðar  hjá mannfólkinu en einnig eru þau í miklu uppáhaldi hjá mörgum dýrum m.a. þröstum. Á Íslandi þroskast þau yfirleitt ekki fyrr en seint í ágúst sem flest önnur ber.“

Þú finnur miklu meira um ber hér á vefnum með því að slá inn leitarorð í leitarreitinn hjá Voffa. Sjá t.d. „Ber á annan veg“.

Ljósmyndir: Einar Bergmundur.


details
Guðrún Arndís Tryggvadóttir
21. July 2010 09:33
Origin: Náttúran.is

Evaluation

Blóðberg á sandi

Landið er nú eitt blómahaf. Vegkantar eru víða sem skreyttir fyrir brúðkaup. Gulmurur, músareyru, blágresi, hofsóleyjar, fífur, fíflar, grös og blóðberg skarta sínu fegursta.

Myndin var tekin af blóðbergsskjóttum sandi við þjóðveginum milli Eyrarbakka og Þorlákshafnar. Ljósmynd: Guðrún Tryggvadóttir.


details
Guðrún Arndís Tryggvadóttir
13. July 2010 14:00
Origin: Náttúran.is

Evaluation

Augljós árangur uppgræðslu á Hellisheiði

Við Reykjafell 2007Við Reykjafell 2010Nú er að koma í ljós greinilegur árangur uppgræðslustarfs Orkuveitu Reykjavíkur í grennd Hellisheiðarvirkjunar síðustu ár. Ljósmyndir teknar við upphaf verkefnisins, árið 2007, og svo nú á dögunum leiða þetta í ljós. Sums staðar hefur hefðbundnum aðferðum verið beitt við uppgræðsluna en annarsstaðar hefur sérstaklega verið leitast við að endurheimta þann heiðargróður sem einkennir uppgræðslusvæðin. Það verkefni er afrakstur ýtarlegra vísindalegra rannsókna, sem OR hefur styrkt.
Frá árinu 2007 hafa sumarstarfsmenn hjá Orkuveitu Reykjavíkur unnið að ýmsum umhverfisverkum á Hellisheiði í tengslum við framkvæmdir á svæðinu. Unnið hefur verið að uppgræðslu, ruslatínslu og landslagsmótun. Uppgræðslan hefur heppnast vel og hefur tekist að græða upp áður örfoka land.

Markmið uppgræðslunnar er að loka rofabörðum og rofnum svæðum og nota til þess innlendar grastegundir og tegundir sem er lágvaxnar og lítt áberandi í landslaginu. Áburðarmagni er stillt í hóf þannig að með tímanum taki staðargróður sér bólfestu í svæðunum, en markmiðið er að þau falli vel að landslaginu í framtíðinni.
Umsjón með verkefninu hefur Herdís Friðriksdóttir, skógfræðingur hjá OR, og hluti þess hefur verið unninn í samstarfi við umhverfissamtökin Gróður fyrir fólk.

Á myndunum hér til hliðar má sjá árangurinn af uppgræðslu við Reykjafell. Efri myndin er frá  2007 og sú neðri frá 2010. Á heimasíðu OR er að finna samanburðarmyndir víðar af virkjanasvæðinu.

Myndasafn af uppgræðslunni á heimasíðu Orkuveitu Reykjavíkur.
Glærukynning um rannsókn á endurheimt staðargróðurs á Hellisheiði.


details
Orkuveita Reykjavíkur
2. July 2010 13:16
Origin: Orkuveita Reykjavíkur

Evaluation

Hay and grass

There are about 10,000 types of grasses worldwide. Among them are the types of grain e.g., oats, barley, wheat, rice and corn. Around 10,000 years ago as the value of seed was discovered, mankind started using those plants as food. From then on they have been the mainstay of the human diet. Since the settlement of Iceland, dry hay has been used as winter feed for sheep and cattle. The grasses in the summer and the hay in the winter are converted into meat and milk that has been so important for keeping us alive.


more
Valgeir Bjarnason
18. April 2010 23:34
Origin: Náttúran.is

Evaluation

123

2005   2006   2007   2008   2009   2010  
jan   feb   mar   apr   may   jun   jul   aug   sep  

Nature's Market

How do I shop at Nature's Market?
  • Departments
  • Cart
  • Search
  • Guidelines
  • Disclaimer
Indicator

Recent comments

Kúrbítur
ég hef nú verið að rækta kúrbít úti í garði í sumar og hefur sá ...
Kúrbítur 1. 09. 2010 18:01:
Landvernd hvetur til pólítískrar sáttar um stækkun friðlands í Þjórsárverum
Utanvegaakstur er subbuskapur? Friðun hefur lítið með utanvegaakstur að gera, hann stunda svartir sauðir flestra ...
Björn 27. 08. 2010 09:51:
Landvernd hvetur til pólítískrar sáttar um stækkun friðlands í Þjórsárverum
Friðun kemur í mörgum myndum. Það er örugglega hægt að leyfa veiðar á svæðum sem ...
Einar Bergmundur 19. 08. 2010 23:56:
Landvernd hvetur til pólítískrar sáttar um stækkun friðlands í Þjórsárverum
Gamla fallbyssu nálgunin. Ef markmiðið er að stöðva virkjanaframkvæmdir, þá á að duga að banna ...
Björn 19. 08. 2010 14:12:
Hundur bjargar lífi 5 krakka
Skal ekkert fullyrða um það en greinin er þýdd af vefnum lifeinthefastlane.ca og innihald hennar ...
Móna Róbertsdóttir 19. 08. 2010 09:02:
Hundur bjargar lífi 5 krakka
mér finnst þetta hræðilegt en þetta er ekki american pitbull terrier hundur heldur american bully ...
hundar 19. 08. 2010 02:13:
Þurrkun jurta og blóma - haustföndur
Trélím sem þynnt er með vatni og penslað létt yfir gæti hentað vel sem varnish ...
Guðrún Tryggvadóttir 16. 08. 2010 19:56:
Þurrkun jurta og blóma - haustföndur
Hvað notið þið til að úða yfir þurrkuð blóm á kortum, svo þau haldi sér?
Ólafía Margrét Ólafsdóttir 16. 08. 2010 15:13:
Margsaga Magma
Grand Old Aunt Björk: http://grapevine.is/Features/ReadArticle/Bjork-Feature
Guðrún Tryggvadóttir 15. 08. 2010 12:55: