Cutting edge: Awarded

Viðurkenningar veittar á degi umhverfisins

Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra afhenti Sigrúnu Helgadóttur náttúruverndarviðurkenningu Sigríðar í Brattholti við athöfn í Þjóðmenningarhúsinu í dag. Haldið var upp á dag umhverfisins í dag með afhendingu viðurkenninga og ýmsum viðburðum. Við sama tækifæri fékk prentsmiðjan Oddi afhentan Kuðunginn, umhverfisviðurkenningu umhverfisráðuneytisins og nemendur Hvolsskóla voru útnefndir varðliðar umhverfisins.

Sigrún Helgadóttir hlaut náttúruverndarviðurkenningu Sigríðar í Brattholti

Sigrún Helgadóttir og föruneytiSvandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra afhenti Sigrún Helgadóttur náttúruverndarviðurkenningu Sigríðar í Brattholti en þetta var í fyrsta sinn sem sú viðurkenningin er afhent. Umhverfisráðherra ákvað að veita viðurkenninguna í tilefni af tuttugu ára afmæli umhverfisráðuneytisins í ár.
Sigrún Helgadóttir hefur helgað starfskrafta sína umhverfismálum, ekki síst við að miðla fræðslu til barna og ungmenna en einnig hefur hún lagt mikla áherslu á mikilvægi þess að auka skilning almennings á náttúru og umhverfi.

Á árunum 2000 til 2008 var Sigrún verkefnisstjóri Grænfánaverkefnisins. Hún skipulagði það frá upphafi og stýrði því þar til þátttökuskólarnir voru komnir yfir eitt hundrað talsins og á öllum skólastigum.

Sigrún hefur þýtt og staðfært námsefni í umhverfisfræðum og einnig skrifað námsefni í náttúru- og umhverfisfræðum, bæði fyrir nemendur og kennara. Þá hefur hún samið vandaða og afar fróðlega bók um Jökulsárgljúfur, Dettifoss og Ásbyrgi en hún var þar landvörður. Hún var fyrsti landvörður þjóðgarðsins í Jökulsárgljúfrum og mótaði þá starf landvarða og beindi því inn á þá braut að landverðir túlkuðu náttúru fyrir gesti til að auka skilning þeirra á henni.

Að auki hefur Sigrún starfað með ýmsum félögum að umhverfismálum og hefur einnig komið þekkingu sinni á framfæri á vettvangi stjórnmálanna. Hún starfaði með hópi áhugafólks um umhverfismál, Græna hópnum, sem lét til sín taka og hvatti meðal annars mjög til stofnunar sérstaks ráðuneytis umhverfismála. Síðar var hún varaþingkona Kvennalistans 1987-1991 og 1994-1995. Hún bar þá fram ýmsar hugmyndir varðandi umhverfismál og átti meðal annarra stóran þátt í að semja þingmál um stofnun sérstaks umhverfisráðuneytis sem Kvennalistinn lagði fram á Alþingi. Einnig bar hún fram mörg ný sjónarmið, til dæmis um grænan hagvöxt, nýja skilgreiningu hagvaxtarhugtaksins og kvenlæga vistfræði.

Starfsfólk Odda tekur við KuðungnumPrentsmiðjan Oddi hlaut Kuðunginn

Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra afhenti Þóru Hirst, gæðastjóra prentsmiðjunnar Odda Kuðunginn fyrir framlag fyrirtækisins til umhverfismála á liðnu ári.
Í máli Sigþrúðar Jónsdóttur, formanns valnefndar Kuðungsins, kom fram að fyrirtækið hefði árum saman unnið eftir ákveðinni umhverfisstefnu, það hefði tekið upp umhverfisstaðla og unnið að því að lágmarka neikvæð áhrif starfseminnar á umhverfi og heilsu.Á síðasta ári hlaut  fyrirtækið hina norrænu umhverfisvottun, Svaninn. Svanurinn gerir strangar kröfur til prentsmiðja og lítur meðal annars til orku- og efnanotkunar, sorpflokkunar og rýrnunar. Kröfur Svansins til efnanotkunar í prentsmiðjum eru sérstaklega strangar. Svansvottunin nær yfir alla prentþjónustu  Odda og fyrirtækið er fyrsta prentsmiðjan í heiminum sem hefur hlotið Svansvottun á framleiðslu bylgjukassa.


more
Umhverfisráðuneytið
25. April 2010 19:20
Origin: Umhverfisráðuneytið

Evaluation

Dregur úr olíueyðslu

Árni Bergmann Pétursson, forstjóri Rafs ehf. á Akureyri, hlaut í gær Umhverfisverðlaun LÍÚ 2009. Viðurkenninguna fékk hann fyrir rannsóknar- og þróunarvinnu við svokallaða rafbjögunarsíu. Notkun búnaðarins, sem er framleiddur hjá HBT, um borð í fiskiskipum hefur leitt til allt að tíu prósenta olíusparnaðar með tilheyrandi minnkun útblásturs. Það staðfesta mælingar úr skipum Þorbjarnar hf. í Grindavík, þar sem þessi búnaður hefur verið settur upp.

Afhending Umhverfisverðlauna LÍÚ er orðin fastur þáttur í störfum aðalfundar samtakanna. Verðlaunin voru nú afhent í ellefta sinn. Jón Bjarnason, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, afhenti Árna verðlaunin á aðalfundi LÍÚ í gær.

Sjá nánar um Raf á vef fyrirtækisins rafehf.is.


more
shá
30. October 2009 18:11
Origin: Fréttablaðið

Evaluation

Beint frá býli hlaut Fjöreggið 2009

Samtökin Beint frá býli hlutu viðurkenninguna „Fjöreggið 2009“, verðlaun Matvæla- og næringarfræðafélags Íslands (MNÍ), fyrir lofsvert framtak á matvælasviði. Þetta er í 17. sinn sem verðlaunin eru veitt og þykir mikill heiður fyrir aðila í matvælaframleiðslu að fá þau. Verðlaunin eru afhent á árlegum matvæladegi MNÍ sem að þessu sinni bar yfirskriftina „Matvælaframleiðsla og gjaldeyrissköpun“.

Hlédís Sveinsdóttir, formaður Beint frá býli tók við verðlaununum en í umsögn dómnefndar segir: „Vinnsla og sala á matvælum beint frá býli til neytenda miðar að því að auka sóknarfæri til fjölbreyttari og vaxandi heimavinnslu þar sem öryggi og gæði framleiðslunnar eru höfð að leiðarljósi. Heimavinnsla tengist mjög ferðaþjónustu og kröfum neytenda um fjölbreyttara vöruúrval og nýja þjónustu.“

Beint frá býli opnuðu á dögunum nýjan vef þar sem félagar eru kynntir og flokkaðir eftir vöruframboði og landshlutum. Um félaga í Beint frá býli hefur einnig verið fjallað hér á vef Náttúrunnar frá upphafi bæði með skráningum á Grænum síðum og Grænu korti t.a.m. í flokknum „Heimavinnsla“ og í fréttum og greinum auk þess sem framleiðsluvörur frá nokkrum aðilum þ.e. Rabarbía og Sælusápum eru til sölu hér á Náttúrumarkaði, vefverslun Náttúrunnar.

Með því að slá inn leitarorðin „Rabarbía“ og/eða „Sælusápur“ í leitarreitinn hér efst á síðunni getur þú fundið vörurnar á Náttúrumarkaði.


details
Guðrún Arndís Tryggvadóttir
18. October 2009 14:59
Origin: Beint frá býli / Náttúran.is

Evaluation

Athyglisvert framlag til umhverfismála

Leikskólarnir Álfaheiði, Fífusalir og Furugrund í Kópavogi hafa fengið viðurkenningu umhverfisráðs 2009 fyrir athyglisvert framlag til umhverfismála. Viðurkenningin er veitt vegna framúrskarandi vinnu og fræðslu til barna varðandi umhverfismál almennt.

Leikskólinn Álfaheiði fékk Grænfánann á degi umhverfis 25. apríl 2008 og hefur starfið gengið mjög vel. Umhverfisnefnd starfar við skólann og eru elstu börnin virkir þátttakendur í nefndinni. Mikil áhersla er lögð á að öll börn leikskólans fái tækifæri til að taka þátt í umhverfisstarfinu og að börnin geti notið og upplifað nánasta umhverfi á jákvæðan og skemmtilegan hátt. Útivera og gönguferðir um næsta nágrenni skipa því stóran sess í starfi leikskólans. Endurnýtanlegur efniviður er flokkaður og hluti hans nýttur í skapandi starf barnanna. Hringrás náttúrunnar upplifa börnin þegar þau fara með lífrænan úrgang í moltutunnur sem verður svo að mold sem nýtt er í beðin. Hlutverk kennaranna er að vera góðar fyrirmyndir, skapa aðstæður og umhverfi þannig að leikgleðin fái að njóta sín.

Leikskólinn Fífusalir hóf starfsemi sína á árinu 2001 og var frá upphafi með mikið og gott umhverfisstarf. Haustið 2007 var sótt um að verða skóli á grænni grein og fékk hann afhentan Grænfánann 18. apríl 2008. Í dag gengur verkefnið mjög vel. Með samstilltu átaki og áhuga starfsfólks á verkefninu smitar það áhuga til barnanna sem taka virkan þátt í starfinu. Börnin á deildunum skiptast á að flokka úrgang frá eldhúsinu og taka frá það sem er nýtilegt í starf í leikskólanum. Annan úrgang fara þau með í grenndargáma. Börnin taka einnig þátt í moltugerð, þrífa og tína upp rusl á lóðinni.

Leikskólinn Furugrund er þáttakandi í Comeniusar verkefni sem heitir Euro-citizens of the future eða evrópubúar framtíðarinnar. Verkefnið byggist á því að hvetja börnin til þess að verða ábyrg fyrir umhverfi sínu. Eitt af markmiðum leikskólanna í þessu verkefni var að fá Grænfánann og var hann afhentur þeim með viðhöfn af umhverfisráðherra 2. júní s.l. Börnin taka virkan þátt í verkefninu t.d. með því að flokka rusl og fara með það í grenndargáma og rækta eigið grænmeti í skólagörðunum. Einnig er mikil endurvinnsla í leikskólanum þar sem gamlir hlutir fá annan tilgang í skrauti og gjöfum til foreldra. Heilmikil vitundarvakning hefur orðið í leikskólanum bæði hjá börnunum og starfsfólki sem fara með þekkinguna heim og vinna þannig áfram að umhverfismálunum.

Mynd: Forstöðumenn Grænfánaleikskólanna í Kópavogi með viðurkenningarsjkölin. Mynd frá Landvernd. Sjá nánar um Grænfánaverkefnið á vef Landverndar.


details
Guðrún Arndís Tryggvadóttir
26. August 2009 11:54
Origin: Landvernd / Umhverfisráð Kópavogs

Evaluation

Íslenska Gámafélagið hlaut Kuðunginn 2008

Í dag á „degi umhverfisins“ stóð umhverfisráðuneytið fyrir málþingi um græn störf í Iðnó en auk þess var úthlutað umhverfisverðlaunum umhverfisráðuneytisns „Kuðungnum“. Að þessu sinni hlaut sorphirðufyrirtækið Íslenska gámafélagið ehf Kuðunginn.

Áður hafa 14 fyrirtæki hlotið Kuðunginn en umhverfisráðuneytið veitti Kuðunginn fyrst árið 1994. Sjá nánar um hver hefur fengið Kuðunginn hér á Grænum síðum.

Íslenska gámafélagið hefur verið leiðandi afl á ýmsum sviðum sem tengjast umhverfinu og endurvinnslu á undanförnum árum og þá sérstaklega í að koma á flokkun í sveitarfélögum og færa á hærra þjónustustig. Á síðasta ári innleiddi fyrirtækið endurvinnslukerfi í Stykkishólmi sem nú gengur undir nafninu „Stykkishólmsleiðin“. Græn og brún tunna eru við hvert hús í bænum auk hinnar venjulegu gráu tunnu fyrir óflokkað sorp. Sama kerfi var einnig tekið upp í Flóanum, fyrst dreifbýlissvæða og nú síðast innleiddi Arnarneshrepppur Grræna tunnu sem staðalbúnað fyrir hvert hús.

Grræna tunnan tekur við endurvinnanlegu sorpi s.s. plasti, dósum, dagblöðum og tímaritum   en brúna tunnan við lífrænu heimilissorpi sem nýtt er til moltugerðar. Íslenska gámafélagið sér um söfnun og útflutning á því flokkaða efni sem þarf að vinna erlendis en kemur öðru í réttan farveg hér á landi. Þjónusta Íslenska Gámafélagsins við sveitarfélögin hafa mælst mjög vel fyrir og er orðin fyrirmynd fyrir önnur sveitarfélög í því hvernig flokkun og endurvinnsla getur sparað beinharða peninga en urðun er dýr og óumhverfsisvæn leið til að láta sorp hverfa sjónum fólks. Markmið verkefnisins er að minnka umfang almenns sorps sem fer til urðunar um 70-80%. Þannig sparar sveitarfélagið stórar fjárhæðir og flokkaða efnið fær endurnýjun lífdaga í nýjum framleiðsluvörum sem sparar auðlindir, eða umbreytist í orku t.d. við bruna eða við metanframleiðslu.

Íslenska Gámafélagið hefur ennfremur lagt metnað sinn í að umbreyta bílaflota sínum í metanbifreiðir og keyrir nú nær allur bílafloti Íslenska Gámafélagsins á metaneldsneyti.

Með haustinu mun Íslenska Gámafélagið væntanlega fá vottun ISO 14001 umhverfisvottunarkerfisins en fyrirtækið hefur markvisst unnið að því að innleiða umhverfisstjórnun í allan sinn rekstur. Í dag hafa níu íslensk fyrirtæki ISO 14001 vottun, sjá hér á Grænum síðum.

Náttúran.is óskar Íslenska Gámafélaginu til hamingju með Kuðunginnn!

Myndin sýnir Jón Þóri Frantzson framkvæmdastjóra Íslenska Gámafélagsins ehf. og Kolbrúnu Halldórsdóttur umhverfisráðherra með Kuðunginn á Tjarnarbakkanum fyrir utan Iðnó, nú fyrr í dag. Ljósmynd: Einar Bergmundur.


details
Guðrún Arndís Tryggvadóttir
25. April 2009 17:23
Origin: Náttúran.is

Evaluation

123

2005   2006   2007   2008   2009   2010  
jan   feb   mar   apr   may   jun   jul   aug   sep  

Nature's Market

How do I shop at Nature's Market?
  • Departments
  • Cart
  • Search
  • Guidelines
  • Disclaimer
Indicator

Recent comments

Kúrbítur
ég hef nú verið að rækta kúrbít úti í garði í sumar og hefur sá ...
Kúrbítur 1. 09. 2010 18:01:
Landvernd hvetur til pólítískrar sáttar um stækkun friðlands í Þjórsárverum
Utanvegaakstur er subbuskapur? Friðun hefur lítið með utanvegaakstur að gera, hann stunda svartir sauðir flestra ...
Björn 27. 08. 2010 09:51:
Landvernd hvetur til pólítískrar sáttar um stækkun friðlands í Þjórsárverum
Friðun kemur í mörgum myndum. Það er örugglega hægt að leyfa veiðar á svæðum sem ...
Einar Bergmundur 19. 08. 2010 23:56:
Landvernd hvetur til pólítískrar sáttar um stækkun friðlands í Þjórsárverum
Gamla fallbyssu nálgunin. Ef markmiðið er að stöðva virkjanaframkvæmdir, þá á að duga að banna ...
Björn 19. 08. 2010 14:12:
Hundur bjargar lífi 5 krakka
Skal ekkert fullyrða um það en greinin er þýdd af vefnum lifeinthefastlane.ca og innihald hennar ...
Móna Róbertsdóttir 19. 08. 2010 09:02:
Hundur bjargar lífi 5 krakka
mér finnst þetta hræðilegt en þetta er ekki american pitbull terrier hundur heldur american bully ...
hundar 19. 08. 2010 02:13:
Þurrkun jurta og blóma - haustföndur
Trélím sem þynnt er með vatni og penslað létt yfir gæti hentað vel sem varnish ...
Guðrún Tryggvadóttir 16. 08. 2010 19:56:
Þurrkun jurta og blóma - haustföndur
Hvað notið þið til að úða yfir þurrkuð blóm á kortum, svo þau haldi sér?
Ólafía Margrét Ólafsdóttir 16. 08. 2010 15:13:
Margsaga Magma
Grand Old Aunt Björk: http://grapevine.is/Features/ReadArticle/Bjork-Feature
Guðrún Tryggvadóttir 15. 08. 2010 12:55: