Cutting edge: Sustainable
Línu-, handfæra- og dragnótsveiðar á þorski, ýsu og steinbít
Línu-, handfæra- og dragnótaveiðar á þorski, ýsu og steinbít - Tilnefningar til setu í matsnefnd.
Vottunarstofan Tún ehf. hefur tilnefnt menn í matsnefnd sem annast mun aðalmat á línu-, handfæra- og dragnótaveiðum á þorski, ýsu og steinbít samkvæmt reglum Marine Stewardship um sjálfbærar fiskveiðar.
Tilkynningu Túns í heild sinni má lesa í meðfylgjandi skjali.
Hagsmunaaðilum sem hafa athugasemdir um efni tilkynningarinnar er hér með boðið að koma þeim á framfæri eigi síðar en kl. 16.00 sunnudaginn 20. júní 2010 við Dr. Gunnar Á. Gunnarsson (Email: gunnar@tun.is, sími +354 511 1330, fax +354 511 1331).
details
Gunnar Á. Gunnarsson
10. June 2010 18:33
Origin: Vottunarstofan Tún ehf
Evaluation
Sæmark sækir um MSC vottun
Fiskútflutningsfyrirtækið Sæmark hefur sótt um umhverfisvottun samtakanna MSC (Marine Stewardship Council) fyrir þorsk, ýsu og steinbít sem fyrirtækið flytur út. Þetta eru mikil tíðindi í sögu umhverfismála á Íslandi, því að hingað til hafa hérlend fyrirtæki og samtök í þessum geira ekki sýnt áhuga á samstarfi við erlenda aðila hvað þetta varðar. MSC er án vafa útbreiddasta og virtasta vottunarkerfi sjálfbærra sjávarafurða í heiminum í dag.
Sæmark er frumkvöðull
Sæmark er fyrsti aðilinn á Íslandi sem sækist eftir MSC-vottun. Fyrirtækið hefur verið í samstarfi við MSC um nokkurt skeið og meðal annars farið í gegnum ákveðið grunnmat til undirbúnings vottunar. Ef vottun fæst mun steinbíturinn frá Sæmarki jafnframt verða fyrsti MSC-vottaði steinbítur heimsins.
Fjögur fiskvinnslufyrirtæki
Fiskvinnslan Íslandssaga hf., Hraðfrystihús Hellissands hf., Oddi hf. og Þórsberg ehf. sjá Sæmarki fyrir fiski, en öll gegna þessi fyrirtæki lykilhlutverki í þeim byggðarlögum þar sem þau eru starfrækt. Hér er um umtalsvert magn að ræða, enda gera þessi fjögur fyrirtæki út 23 fiskiskip sem falla undir umrætt verkefni. Kvóti þessara skipa á yfirstandandi fiskveiðiári er um 6.200 tonn af þorski, 3.300 tonn af ýsu og 1.100 tonn af steinbíti. Aflinn er fenginn á línu, handfæri og í dragnót og fer ýmist ferskur eða frosinn á markaði í Bandaríkjunum, Bretlandi og á meginlandi Evrópu.
Aukin eftirspurn
Verslunarkeðjur í Evrópu gera í auknum mæli kröfur um að fiskur sem þær kaupa sé MSC-vottaður. Þeir sem fengið hafa slíka vottun á afurðir sínar eru því betur í stakk búnir en aðrir til að koma þeim á markað, nánar tiltekið þann markað sem að öðru jöfnu greiðir hæsta verðið. Að sögn Svavars Guðmundssonar, framkvæmdastjóra Sæmarks, sækist Sæmark eftir MSC-vottun til að mæta vaxandi eftirspurn, enda telur fyrirtækið að vottunin styrki stöðu þess á mörkuðum bæði austanhafs og vestan, jafnframt sem nýir markaðir munu opnast. Svavar bendir einnig á að með vottuninni verði auðveldara fyrir fyrirtækið að koma á framfæri upplýsingum til neytenda um sjálfbærni veiða og vinnslu, en slík upplýsingamiðlun verður sífellt mikilvægari eftir því sem umhverfisvitund neytenda eykst.
Vottunarstofan Tún
Vottunarstofan Tún hefur aflað sér réttinda til að sjá um úttektir vegna MSC-vottunar. Gera má ráð fyrir að úttektarferlið taki um það bil 14 mánuði, þannig að Sæmark gæti hampað fyrstu MSC-vottuninni á Íslandi sumarið 2011. MSC-úttektir eru opin ferli, sem allir geta fylgst með og gert athugasemdir við. Þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta eru hvattir til að hafa samband við Dr. Gunnar Á. Gunnarsson hjá Vottunarstofunni Túni, en hann hefur yfirumsjón með úttektinni og heldur utan um lista yfir skráða hagsmunaaðila.
Loksins
Umsjónarmaður þessarar bloggsíðu fagnar því að íslensk sjávarútvegsfyrirtæki séu loksins komin inn á þessa braut, sem vafalaust á eftir að styrkja stöðu íslenskra sjávarafurða á mörkuðum erlendis í náinni framtíð!
(Af bloggsíður Stefáns Gíslasonar. Bloggfærsla Stefáns er einkum byggð á frétt á heimasíðu MSC þ. 27. apríl sl., og á frétt World Fishing Today).
details
Stefán Gíslason
1. May 2010 23:02
Origin: Stefán Gíslason
Evaluation
Metanól framleitt úr útblæstri orkuvera
Carbon Recycling International ehf er nýsköpunarfyrirtæki sem hefur þróað tækni til framleiðslu á metanóli úr koltvíoxíði en frumgerð vélar sem getur breytt útblæstri í orku „metanól“ sem getur knúið bifreiðar er fullbúin.
Fyrirhugað er að reisa stöð á Svartsengi, nærri orkuveri HS Orku. Vísindamenn Carbon Recycling hafa fengið einkaleyfi á Íslandi á aðferðinni sem hefur vakið mikla athygli enda myndi slík framleiðsla leyst hluta af vandamáli kolefnislosunar frá orkuverum og þannig gera þau loftslagsvænni.
Mynd frá heimsókn iðnaðarráðherra til CRI í janúar sl. Mynd af vef Iðnaðarráðuneytsinsins.
details
Guðrún Arndís Tryggvadóttir
20. February 2009 10:26
Origin: Iðnaðarráðuneytið / Náttúran.is
Evaluation
IKEA og umhverfið
Húsbúnaðarrisinn IKEA vinnur hröðum skrefum í átt að sjálbærni á heimsvísu en grunnhugmyndafræði keðjunnar hefur frá byrjun verið nátengd ákveðinni skynsemishugsun svo sem ný tni og samlegðaráhrifum stórinnkaupa og hagkvæmra flutninga í flötum kössum. Allt þetta hefur ekki aðeins betri áhrif á umhverfið sem slíkt heldur er uppistaðan í velgengninni og sannar að það að hugsa um umhverfið er ekki aðeins ráðstafanir sem kosta peninga heldur spara þær peninga til lengri tíma litið.
IKEA hætti alveg að nota plastpoka árið 2007 (sjá grein) en á Íslandi er þó enn verið að klára upp plastpokabirgðir en bréfpokarnir og margnota bláu pokarnir eru smám saman að taka yfir. IKEA setti nýlega 77 milljónir dollara í tækniþróun til þróunar vistvænna orkugjafa, t.a.m. í frekari þróun á sólarrafhlöðum (sjá grein). Í dag eru 71% af öllum IKEA vörum endurnýjanlegar eða gerðar úr endurunnu efni, nema hvort tveggja sé. Fyrirtækið endurvinnur 84% af því rusli sem fellur til í verslununum og tekur við notuðum perum og rafhlöðum frá viðskiptavinum og kemur rétta leið í eiturefnaförgun. Í þeim tilfellum þegar að eitt land þar sem IKEA risinn er með verslanir herðir reglur um eiturefna- eða kolefnislosun, samræmir IKEA sínar reglur ströngustu kröfunum. Þegar reglur um formaldhyde losun voru hertar í Japna þannig að þær máttu ekki lengur fara yfir núllmörkin, innleiddi IKEA sömu reglu á rekstur sinn um allan heim. Jafnvel þó að það hafi haft í för með sér aukin útgjöld fyrir fyrirtækið.
Hin stranga alþjóðlega umhverfisstefna IKEA er að sjálfsögðu yfirfærð á reksturinn hér á landi en ef við berum umhverfið hér saman við það sem gerist annars staðar í heiminum stöndum við vel að vígi sérstakleg vegna þess að losun gróðurhúsalofttegunda er ekki eins mikil hér vegna okkar vistvænu orkugjafa til húshitunar og raforkuframleiðslu. Hvað varðar bílaflotann þá hafa ekki enn verið innleiddar reglur um visthæfan bílaflota fyrirtækisins hérlendis en bílaflotinn hér er kannski ekki það stór að það skipti höfuðmáli. Aðeins þrír bílar eru í keyrslu fyrir IKEA, tveir díselknúnir og einn knúinn bensíni. Það væri óneitanlega til fyrirmyndar að sjá Metanknúna IKEA bíla á götum borgarinnar. Þeirri hugmynd er hérmeð komið á framfæri.
IKEA er nú að vinna í því að uppfræða starfsfólk svo það geti uppfrætt viðskiptavinina og kynna umhverfisstefnu IKEA á nýjum vef en búast má við enn fleiri upplýsingum þar á næstunni. Hér á landi hefur hingað til verið lögð áhersla á samfélagslega þáttinn með styrkjum til verkefna tengdum börnum en það er í takt við sjálfbærar áherslur IKEA á heimsvísu.
Á ikea.com er vel útskýrt hvernig umhverfis- og samfélagsáherslur IKEA eru flokkaðar og skilgreindar en slíkar útskýringar væri að sjálfsögðu gott að fá sem fyrst inn á íslenska vefinn en það hlítur að vera fyrirtækinu í hag að fólk læri að meta hvað það hefur upp á að bjóða enda getur IKEA verið stolt af frammtistöðu sinni.
more
Guðrún Arndís Tryggvadóttir
16. February 2009 09:03
Origin: Náttúran.is / Treehugger
Evaluation
Rabarbía products enter the Nature-market
Rabarbía (rhubarb toffee) and two types of rhubarb jam are now for sale here in the Nature-market. The farmers, Kjartan Ágústsson and Dorothee Lubecki at Langamþri in Skeið in South Iceland, produce these delicious products.
The rhubarb fields at Langamþri are organically certified by Tún and rhubarb is the main ingredient of all the ingredients in Rabarbía. The product as such is not organically certified yet, but is expected to receive organic certification soon since the rhubarb is certified and the jam only contains unrefined cane sugar with no additives.
The Rabarbía rhubarb toffee is one of the new product development projects which was launched in cooperation with the Iceland Academy of the Arts-“Designers meet Farmers“, represented by Matís and the chief baker Örvar Birgisson. The design students Arna Rut Þorleifsdóttir, Kristín Þóra Sigurðardóttir and Stefanie Silberman met with the farmers Dorothee and Kjartan at Langamþri, which is the sole farm in Iceland actually growing rhubarb for commercial use as raw material for production. Before rhubarb had only been used for jam production but now there is a change of direction, even though jam continues to be made from a large part of the produce. The design students introduced two new tasty rhubarb products at the Food market on the 14th of March 2008, the rhubarb toffee and a 100% pure rhubarb juice with no additives; neither sugar, water or anything else.
The Icelandic Centre of Research - Rannís sponsored the project, “Designers meet Farmers,”generously so that at least some of the projects could continue from idea to production. The Rhubarb toffee was one of the ideas that was so successful that development of the final product got sponsored for ongoing research and finally went into production at Langamþri.
Because of this successful development, fully equipped production kitchen facilities were installed at Langamþri and production based on rhubarb commenced in autumn, 2008. More product development is expected and you never know what ideas and new products the farmers at Langamþri and their designers will introduce next into the market!
Rhubarb-toffee:
The rhubarb toffee is based on a sparkling childhood memory about eating rhubarb with sugar from a glass jar out in the garden on a beautiful sunny summer´s day. The raw ingredients are the same but the expression is different and the taste is wonderfully surprising. This is a sweet toffee but even so, the sour taste of rhubarb is felt through and lingers for a long time on the taste buds after the toffee has been swallowed. The toffee is unusually large, and looks like a piece of rhubarb. It is the perfect surprise present for a dinner or garden party, as something to share with a best friend or to enjoy on one’s own, eaten like the rhubarb enjoyed during childhood.
See Rabarbía rhubarb-toffee, Rabarbía rhubarb-jam with strawberries and ginger and Rabarbía rhubarb-jam with blueberries here at the Icelandic shop on the Nature-market
See the location of Löngumþri and further iformation on the farm on the Green Pages.
details
Guðrún Arndís Tryggvadóttir
10. December 2008 23:15
Origin: Náttúran.is
Evaluation
Events calendar
| Mon | Tue | Wed | Thu | Fri | Sat | Sun |
|---|---|---|---|---|---|---|
| 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | ||
| 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 |
| 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 |
| 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 |
| 27 | 28 | 29 | 30 |
Athugasemd veðurfræðings
Búast má við snörpum vindhviðum við fjöll á Suður- og Vesturlandi og á Miðhálendinu með morgninum og fram eftir degi.
Skrifað af vakthafandi veðurfræðingi 03.09.2010 01:03

Recent comments
ég hef nú verið að rækta kúrbít úti í garði í sumar og hefur sá ...
Kúrbítur 1. 09. 2010 18:01:
Utanvegaakstur er subbuskapur? Friðun hefur lítið með utanvegaakstur að gera, hann stunda svartir sauðir flestra ...
Björn 27. 08. 2010 09:51:
Friðun kemur í mörgum myndum. Það er örugglega hægt að leyfa veiðar á svæðum sem ...
Einar Bergmundur 19. 08. 2010 23:56:
Gamla fallbyssu nálgunin. Ef markmiðið er að stöðva virkjanaframkvæmdir, þá á að duga að banna ...
Björn 19. 08. 2010 14:12:
Skal ekkert fullyrða um það en greinin er þýdd af vefnum lifeinthefastlane.ca og innihald hennar ...
Móna Róbertsdóttir 19. 08. 2010 09:02:
mér finnst þetta hræðilegt en þetta er ekki american pitbull terrier hundur heldur american bully ...
hundar 19. 08. 2010 02:13:
Trélím sem þynnt er með vatni og penslað létt yfir gæti hentað vel sem varnish ...
Guðrún Tryggvadóttir 16. 08. 2010 19:56:
Hvað notið þið til að úða yfir þurrkuð blóm á kortum, svo þau haldi sér?
Ólafía Margrét Ólafsdóttir 16. 08. 2010 15:13:
Grand Old Aunt Björk: http://grapevine.is/Features/ReadArticle/Bjork-Feature
Guðrún Tryggvadóttir 15. 08. 2010 12:55:















