Cutting edge: Certified production
details
Náttúran
26. April 2010 15:56
Origin: Náttúran.is
Evaluation
Oddi kynnir Svansmerktan gPóst
gPóstur er hagkvæm lausn fyrir fyrirtæki sem prenta efni til dreifingar í miklu magni, eins og reikninga, yfirlit, launaseðla, markpóst o.fl. gPóstur sparar umtalsverðan kostnað sem fellur til vegna viðhalds tækja, dreifingar og vinnustunda.
Lokur eru helsta viðbótin við gPóstinn. Lokur eru umslagalaus póstur sem notar helmingi minna magn pappírs samanborið við hefðbundinn póst í umslagi og er góður kostur fyrir fyrirtæki sem vilja sýna samfélagslega ábyrgð með að huga að umhverfinu. Með því að minnka það pappírsmagn sem notað er er stuðlað að minni orkunotkun sem verður til vegna framleiðslu, förgunar og dreifingar. Lokur eru með norrænu umhverfismerkinguna Svaninn sem þýðir að leitast er við að draga úr umhverfisáhrifum á flestum stigum framleiðslunnar.
Upplýsingar eru prentaðar innan á Lokuna og hún svo (gufu) límd aftur. Hægt er að setja einblöðung eða bækling inn í Lokuna. Loka sem inniheldur 12 bls. bækling vegur undir 20 gr og fellur inn í ódýrasta verðflokk Íslandspósts.
Prentsmiðjan Oddi hlaut í byrjun árs Svansmerkingu og starfar því eftir strangri umhverfisstefnu þar sem i hvívetna er leitast við að fara vel með hráefni og draga úr umhverfisáhrifum rekstrarins á skilvirkan hátt.
Lokur er hagkvæm lausn fyrir fyrirtæki sem prenta efni til dreifingar í miklu magni, eins og reikninga, yfirlit, launaseðla, markpóst ofl. gPóstur sparar umtalsverðan kostnað sem fellur til vegna viðhalds tækja, dreifingar og vinnustunda.
Oddi tekur við gögnum á rafrænu formi, meðhöndlar samkvæmt óskum viðskiptavina sinna, prentar og sendir til viðtakanda. Með þessu móti er hægt að ná fram auknu öryggi við meðferð gagnanna auk þess býður þessi leið upp á að gera gögnin birtingarhæf á rafrænu formi í heimabönkum.
details
Guðrún Arndís Tryggvadóttir
5. February 2010 12:22
Origin: Prentsmiðjan Oddi ehf
Evaluation
Fyrsta Svansmerkta bæklingnum frá Odda nú dreift í Evrópu
Kynningarbæklingur Ferðaþjónustu bænda, „The Ideal Holiday 2010“, er fyrsti prentgripurinn sem framleiddur er hjá Odda sem ber Svansmerkið, norræna umhverfismerkið. Bæklingurinn er prentaður í 25.000 eintökum og er hann kominn í dreifingu í Evrópu og víðar. „Fyrir okkur, sem fyrirtæki í ferðaþjónustu skiptir umhverfisvottun á því prentverki sem við sendum frá okkur miklu máli. Þegar við vissum að Prentsmiðjan Oddi væri að fá Svansvottun í lok árs 2009 ákváðum við að seinka útgáfu kynningarbæklingsins um nokkrar vikur til að geta Svansmerkt bæklinginn. Við viljum að ímynd landsins byggist á hreinleika og náttúru og þess vegna þurfum við sem stöndum að kynningu Íslands að vera til fyrirmyndar. Sýnileiki markvissrar umhverfisvinnu skiptir því miklu máli þegar kemur að því að sýna viljann í verki“ segir Berglind Viktorsdóttir gæðastjóri hjá skrifstofu Ferðaþjónustu bænda sem er vottuð af Green Globe, alþjóðlegum umhverfisvottunarsamtökum í ferðaþjónustu.
Sjá Prentsmiðjuna Odda hér á Grænum síðum, og á Grænu korti í flokknum Grænt fyrirtæki en sá flokkur sýnir öll fyrirtæki á Íslandi sem hafa annað hvort Svaninn eða Green Globe.
Mynd: Sævar Skaptason framkvæmdastjóri Ferðaþjónustu bænda og Berglind Viktorsdóttir gæðastjóri og ritstjóri bæklingsins taka við fyrsta umhverfisvottaða eintakinu hjá Stefáni Hjaltalín sölustjóra hjá Odda.
details
Guðrún A. Tryggvadóttir og Hildur Hákonardóttir
22. January 2010 11:00
Origin: Prentsmiðjan Oddi ehf
Evaluation
Te & kaffi - ryður brautina fyrir Fair Trade vottun hérlendis
Fyrirtækið Te & Kaffi hefur fyst íslenskra fyrirtækja tekist að fá Fair Trade vottun (siðgæðisvottun, einnig þýtt sem réttlætismerking) á vöru hér á landi.
Kaffihrábaunir sem upprunanlega eru ræktaðar á grundvelli Fair Trade má ekki selja unnar (brenndar, malaðar og pakkaðar) sem slíkar án þess að framleiðsluyrirtækið sjálft fái leyfi FLO Fairtrade Labelling Organization til að merkja vöru sína sem Fair Trade vöru. Náttúran.is bað Te & Kaffi um að lýsa hvað það þurfti að gera til að fá siðgæðisvottun á vöruna þannig að aðrir geti fræðst og lært af reynslunni sem skapar ákveðið fordæmi fyrir íslenska aðila sem hugsanlega hafa áhuga á að feta í fótspor Te & kaffis. Kristbjörg Marteinsdóttir hjá Te & Kaffi tók reyslusöguna saman í eftirfarandi texta:
„Við hófumst handa við að kanna þann möguleika að fá að framleiða og selja Fairtrade vottað kaffi þegar einn viðskiptavinur fyrirtækisins, Háma í Háskóla Íslands, vildi bjóða upp á kaffi sem hefur þessa vottun. Í fyrstu fengum við synjun þar sem ekki væri nein umboðsskrifstofa á Íslandi fyrir Fairtrade. Innan Hjálparstofnunar Kirkjunnar var Lydia Geirsdóttir verkefnastjóri að kynna Fairtrade verkefnið fyrir Íslendingum og íslenskum fyrirtækjum og þekkti vel til fyrir hvað Fairtrade stendur. Við vorum í nánu samstarfi við hana til að byrja með og reyna að fynna lausn á því hvað við gætum gert í stöðunni.
Í ágúst 2007 ákvað skráningastofa Fairtrade, Flo- Cert, í Bonn í Þýskalandi að opna fyrir umsóknir fyrir lönd sem ekki væru með umboðsskrifstofu í sínu heimalandi. Þetta varð til þess að fyrirtækið einhenti sér í að sækja um. Umsóknarferlið tók alls 6 mánuði með tilheyrandi fyrirspurnum, samskiptum, samningum og mikilli pappírsvinnu. Bæði þurfti samþykki fyrir merkingum á umbúðum við Fairtrade Labelling Organizations International og síðan sjálf samningagerðin við Flo Cert, þar sem Te & Kaffi þurfti að samþykkja og undirgangast ýmis skilyrði sem samtökin hafa sett framleiðendum til að tryggja gagnsæi og samræmi í meðferð, framleiðslu og sölu Fairtrade vottaðara kaffihrábauna.
Í Janúar 2008 fékk Te & Kaffi vottunarnúmer sem staðfestir að fyrirtækið má nú kaupa Fartrade vottaðar kaffihrábaunir vinna þær og selja með Fairtrade merkingu, en þess má geta að seljendur hrábauna mega einungis selja þeim Fairtrade hrábaunir sem hafa slíkt vottunarnúmer.
more
Guðrún Arndís Tryggvadóttir
21. September 2009 11:12
Origin: Te og Kaffi
Evaluation
Skin products from Urtasmiðjan on the Nature-market
The Nature-market here on Nature.is now offers two products from the company Urtasmiðjan on Svalbarðsströnd in Eyjafjörður Northern Iceland. Urtasmiðjan recently received certification proofing that the Icelandic herbs used in the production are harvested in a sustainable way in areas in organic adaptation. Amongst the herbs are Crane´s bill, Wild thyme, Yarrow and Angelica archangelica.
See the Icelandic Healing Balm and the Softening Foot Balm on the Nature-market. If you are shopping for the first time here on the web check and see how the exciting Nature-market works.
The entrepreneur Gígja Kjartansdóttir Kvam has been working on the establishment of the company Urtasmiðjan along with her family for the last 19 years. Urtasmiðjan produces skin products under the label “Sóla“, - wonderous cosmetics made from Icelandic herbs and other entirely natural ingredients. The production is based on ancient traditions and valuable historical knowledge about the benefits and uses of health promoting herbs, as well as being based on modern research on the actual health effects of the herbs themselves.
The herbs are hand-picked in the pristine northern part of Iceland´s subarctic nature, where the herbs grow wild in the naturally pure and remarkably unpolluted natural environment. Foreign herbs used in the production process are all organically grown and have international organic certification.
Urtasmiðjan only uses pure natural and organic ingredients for it´s production such as unbleached beewax, shear butter, coconut oil, organic corn and sojawax, herbal oils, Omega 3, 6 and 9 oils rich of polysaturated fatty acids such as, Evening primrose-, Roseberry- and Sea Buckthorn oil. Herb extracts, essence, antioxidants and preservatives are all made from herbs, roots and kernels. These are ingredients which are also used in organic and natural food production.
The products do not contain any undesirable chemicals such as paraben, colorants, perfumes, or chemicals made from oil – petrolatum, parafin, vaselin or any kinds of animal products.
No testing has been conducted on animals during design and production of the product. The production takes place manually from the beginning and right up to the end.
The products of Urtasmiðjan are not medicinal products. They are 100% natural and organic health products/cosmetics made from organic and wild herbs from the remarkably unpolluted nature of northern Iceland. See Urtasmiðjan here on the Green pages.
more
Guðrún Arndís Tryggvadóttir
11. November 2008 08:02
Origin: Náttúran.is / Urtasmiðjan
Evaluation
Events calendar
| Mon | Tue | Wed | Thu | Fri | Sat | Sun |
|---|---|---|---|---|---|---|
| 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | ||
| 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 |
| 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 |
| 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 |
| 27 | 28 | 29 | 30 |
Athugasemd veðurfræðings
Búast má við snörpum vindhviðum við fjöll á Suður- og Vesturlandi og á Miðhálendinu með morgninum og fram eftir degi.
Skrifað af vakthafandi veðurfræðingi 03.09.2010 01:03

Recent comments
ég hef nú verið að rækta kúrbít úti í garði í sumar og hefur sá ...
Kúrbítur 1. 09. 2010 18:01:
Utanvegaakstur er subbuskapur? Friðun hefur lítið með utanvegaakstur að gera, hann stunda svartir sauðir flestra ...
Björn 27. 08. 2010 09:51:
Friðun kemur í mörgum myndum. Það er örugglega hægt að leyfa veiðar á svæðum sem ...
Einar Bergmundur 19. 08. 2010 23:56:
Gamla fallbyssu nálgunin. Ef markmiðið er að stöðva virkjanaframkvæmdir, þá á að duga að banna ...
Björn 19. 08. 2010 14:12:
Skal ekkert fullyrða um það en greinin er þýdd af vefnum lifeinthefastlane.ca og innihald hennar ...
Móna Róbertsdóttir 19. 08. 2010 09:02:
mér finnst þetta hræðilegt en þetta er ekki american pitbull terrier hundur heldur american bully ...
hundar 19. 08. 2010 02:13:
Trélím sem þynnt er með vatni og penslað létt yfir gæti hentað vel sem varnish ...
Guðrún Tryggvadóttir 16. 08. 2010 19:56:
Hvað notið þið til að úða yfir þurrkuð blóm á kortum, svo þau haldi sér?
Ólafía Margrét Ólafsdóttir 16. 08. 2010 15:13:
Grand Old Aunt Björk: http://grapevine.is/Features/ReadArticle/Bjork-Feature
Guðrún Tryggvadóttir 15. 08. 2010 12:55:















