The Environment: Danger & safety

Hazardous Chemicals / Synthetic Chemicals - guidelines

Tilbúin efni 200% á 120x120p grunni

Products that people buy and use on a daily basis contain chemicals whose purpose is to enhance the life of the product, make them softer, decrease the risk of fire, etc. Our consumption pattern is reflected in the home in a way that most people do not realize. Það er til dæmis hægt að greina yfir 150 mismunandi efni í “rykrottum” á hverju meðalheimili. Many of those chemicals have been classified as harmful by the EC, that is, they are poisonous, lipidic and do not biodegrade in the body. The great amount of many chemicals in our home is the main reason that chemicals increase faster in humans than in the natural environment. Domestic chemical use is the main source of synthetic chemicals in nature.

With new legislation within the European Union in 1981, it became necessary to register, not evaluate, all chemicals that are produced and sold within the EC. Applications for registration were received for 100,106 chemicals. It is estimated that today there are up to 70,000 chemicals in use within the countries of the EC, and of those, there are around 30,000 which are produced in higher quantities than one ton per company per year. Only around 5% of the chemicals used have undergone some kind of risk assessment. Therefore our knowledge of the impact of chemicals in general on both human health and the environment is still severely limited.

Many people believe that the chemicals used today as constituents in, for instance, shampoo’s , clothing, construction materials, toys and other things are all carefully tested and accepted by the environmental and health authorities. It is more apt to say that those chemicals are not forbidden since there is no law or regulation in effect which demands that the producer check the danger of those chemicals before they are used in the product or sold in another way.

It is however the duty of public authorities to investigate the chemicals in use and if such is the case, prove that they can be harmful to human health and the environment. Then those chemicals can effectively be banned. The burden of proof, thus, lies with the public authorities not with the companies that market the chemicals. Nature.is considers it only natural that the general consumer is informed about the effects of the various chemicals that are or can be part of a product. It is, therefore demanded by law that the producer/seller list and report to the public authorities what type of classification and which safety and precautionary measures apply to the chemical in question based on current law and regulations. There is, therefore, only a demand that the producer/seller in question report to the authorities the information required by law that he has to report anyway, on, for instance Material and Safety data sheets or on the commercial labeling of products.

Information about classification along with safety and precautionary labels is to be found in regulation 236/1990 [pertains to the classification, labelling and handling of hazardous chemicals and consumer products which contain such chemicals)] with later changes. Here it is correct to point out that in some cases the producer of the chemicals has to supply MSDS (Material Safety and Data sheets).

Example:

Chemicals such as flame retardants with bromide found in electric appliances, electrical chords, textiles, curtains, tapestry and furniture are considered harmful to the environment and may also have an effect on fertility and in other ways impair the health of human beings.

Plasticizers, so called phtalates, used in glue, paint, varnish, cosmetics, perfumes, plastic in floor materials and in certain toys are considered harmful to the environment and they too may also have a detrimental effect on fertility and in other ways impact on the health of human beings.

Biological chemicals with TBT which is, for instance, found in boat paint, textiles, clothing, leather products and floormats, besides being harmful to the environment are considered irritants for the skin and eyes.

Surface active chemicals for example, in soap and detergents that are harmful to the environment can also produce eczema and other skin diseases.


this article continues, read more...



Finnur Sveinsson
30. January 2012 13:18
Origin: Náttúran.is

Einkunn

Erfðabreyttar lyfjaplöntur - í Hveragerði?

Í grein í Fréttablaðinu 30. desember fordæmir Eiríkur Sigurðsson almannasamtök í Hveragerði og víðar fyrir andstöðu við leyfi sem Orf Líftækni var veitt til ræktunar á erfðabreyttu lyfjabyggi í gróðurhúsum á svæðinu. Leyfið var veitt til afmarkaðrar notkunar sem á mannamáli merkir að tryggt skuli að umhverfið geti ekki mengast af völdum hinna erfðabreyttu plantna sem í húsunum eru ræktaðar. Það felur í sér að fyrirbyggja verði að fræ og aðrir plöntuhlutar berist út fyrir húsin, ekki megi flytja jarðveg mengaðan erfðabreyttum efnum út í umhverfið, frárennsli húsanna innihaldi ekki erfðabreytt efni og að starfsmenn, vélar og flutningatæki beri ekki erfðabreytt efni út í umhverfið.

Leyfi sem Orf hefur fengið til afmarkaðrar notkunar erfðabreyttra lífvera er ræktun í gróðurhúsum í Grindavík, á Kleppjárnsreykjum, í Barra á Héraði og á Reykjum í Ölfusi. Húsin og umbúnaður þeirra eru hlaðin áhættupunktum - t.d. varðandi frárennsli og flutninga og sum eru jafnvel ekki með föst gólf - sem geta gefið færi á mengun umhverfis af völdum erfðabreyttra lífvera í gegnum jarðveg og vatn.

Lög kveða á um að þeir sem hafa leyfi til að meðhöndla erfðabreyttar lífverur skuli bæta fyrir tjón sem slík starfsemi kann að valda á umhverfi. En sá sem leyfin veitir, þ.e. Umhverfisstofnun, hefur ekki skipulegt eftirlit með ræktunarstöðum til að kanna með prófunum hvort mengun af völdum erfðabreyttra lífvera hafi átt sér stað. Hveragerði og nágrenni er þéttbýlt svæði og lífræn ræktun og annar landbúnaður gegna mikilvægu hlutverki í efnahag og umhverfisímynd byggðarinnar. Úr því að mengun jarðvegs og vatns mundi hafa áhrif á landbúnað og jafnvel á heilsufar manna og dýra, er þá ekki rík ástæða fyrir íbúa Hveragerðis að hafa áhyggjur af því að þær erfðabreyttu plöntur sem mest áhætta stafar af (lyfjaplöntur) verði ræktaðar á mörkum bæjarins?

Orf hefur ítrekað fullyrt að erfðabreytt lyfjabygg þeirra sé „öruggt“ án þess að færa sönnur á það. Svonefnt áhættumat Orf og leyfi þess frá Umhverfisstofnun til úti- og inniræktunar á bygginu á hinum ýmsu stöðum hafa greinilega ekki falið í sér prófanir og greiningu á erfðabreyttum lífverum og erfðabreyttum efnum í jarðvegi og vatni. Dýratilraunir hafa ekki verið gerðar til að kanna hugsanleg langtímaáhrif byggsins á heilsufar manna, dýra, fiska og vatnalífs. Meðan það hefur ekki verið gert er ekkert hægt að fullyrða um öryggi lyfjabyggsins.

Bandarísku vísindasamtökin Union of Concerned Scientists benda á að „erfðabreyttar lyfjaplöntur kunna að hafa eðlis- og efnafræðilega eiginleika sem gætu styrkt tilvistarmöguleika þeirra í náttúrunni eða stuðlað að uppsöfnun þeirra í lífverum, sem verulega eykur möguleika þeirra til að menga vistkerfi og þar með að komast inn í fæðukeðju manna og dýra.“ Bandaríkin hafa sakir lélegs regluverks orðið fyrir dýrri og hættulegri mengun matvæla af völdum erfðabreyttra lyfjaplantna. Nýverið lagði fulltrúadeildarþingmaðurinn Dennis Kucinich fram frumvarp til laga um bann við útiræktun erfðabreyttra lyfja- og iðnaðarplantna í Bandaríkjunum, sem einnig gerir ráð fyrir rekjanleikakerfi til að tryggja betur öryggi og eftirlit. Hvers vegna endurtaka íslensk stjórnvöld mistök Bandaríkjanna í stað þess að læra af þeim?

Hættan á mengun jarðvegs og vatns af völdum erfðabreyttra lyfjaplantna er raunveruleg - eins og sjá má af reynslunni af ræktun erfðabreyttra Bt-matvælaplantna. Báðum er erfðabreytt til að þær innihaldi prótein sem kunna að vera skaðleg fyrir heilsufar. Bt-plöntur innihalda Bt-eitur sem drepur skordýr sem sækja í þær. Erfðabreyttar lyfjaplöntur innihalda prótein til nota m.a. í lyfjarannsóknum.

Reynslan af ræktun Bt-plantna er viðvörun. Í rannsókn kanadíska umhverfisráðuneytisins (2008) fannst cry1Ab-genið úr Bt-maísplöntum í seti, jarðvegi og vatni í allt að 82ja km fjarlægð frá ræktunarstað. Í rannsókn bandarísku vísindaakademíunnar (2010) kom fram að erfðabreyttur maís með Bt-eitri hafi mengað ár vítt um miðvesturríkin. Vísindin sýna að Bt-eitur getur borist úr rótum erfðabreyttra Bt-plantna í jarðveg (Saxena ofl. 2002) og að Bt-plöntuleifar í jarðvegi innihalda virkt Bt-eitur (Flores ofl. 2005; Stotzky ofl. 2004; Zwahlen ofl. 2003). Ekki er að undra að í kanadískri rannsókn fannst þetta sama Bt-eitur í blóði þungaðra kvenna og fóstra þeirra (Aris & Leblanc 2011).

Af þessu má draga skýra ályktun: Erfðabreyttar lyfjaplöntur sem ræktaðar eru utandyra - eða í gróðurhúsum sem ekki tryggja fullkomna afmörkun - kunna að berast í fæðukeðju og dýrafóður í gegnum jarðveg og vatn.

Ljósmynd: Ræktun errfðabreytts byggs hafin í einu hólfi tilraunagróðurhúss LBHÍ að Reykjum í Ölfusi, við Hveragerði. Myndin er tekin þ. 27. des. sl. af Guðrúnu A. Tryggvadóttur.


details

Sandra B. Jónsdóttir
6. January 2012 10:13
Origin: Fréttablaðið

Einkunn

Hvar eru merkingarnar?

Þann 1. janúar sl. tók gildi Reglugerð nr. 1038/2010 um merkingu og rekjanleika erfðabreyttra matvæla og erfðabreytts fóðurs. Náttúran.is beindi þeirri spurningu til Matvælastofnunar þ. 3. jan. sl. „hvernig eftirliti og merkingum á matvörum með erfðabreyttu innihaldi skuli háttað og hvort að enn séu á markaði vörur sem ekki hafa verið merktar skv. hinni nýju reglugerð og ef svo er, hvenær stofnunin muni innleiða merkingarskilduna og hvernig henni verði framfylgt.“.

Enn hefur ekkert svar borist nema svohljóðandi staðfesting um móttöku fyrirspurnarinnar: „Matvælastofnun hefur móttekið fyrirspurn þína og hefur hún verið send Jónínu Stefánsdóttur til úrlausnar. Ef þú ert ekki sátt/-ur við úrlausnina er það vel þegið að þú hafir samband aftur innan mánaðar.“

Náttúran telur að Matvælastofnun sem eftirlitsaðila sé skylt að hafa undirbúið innleiðingu reglugerðarnnar „fyrir“ innleiðingu hennar þ. 1. jan. sl., þannig að allar vörur með erfðabreyttu innihaldi ættu nú þegar að vera merktar á viðeigandi hátt. Svo er þó ekki eins og meðfylgjandi dæmi sanna en þær voru teknar í verslun Bónuss í Hveragerði, sú eftri þ. 30. des. sl. en sú neðri í dag þ. 5. jan. Lucky Charms, Cheerios og Cocoa Puffs pakkarnir voru með álímdum íslenskum innihaldslýsingarmiðum en ekki með upplýsingum um að þau innihaldi erfðabreytt innihald, sem þau þó sannarlega gera.

Náttúran leggur til að neytendur fylgist vel með því hvort að vörur með erfðabreyttu innihaldi séu enn í hillum matvöruverslana og ef svo er, þá tilkynna það til Matvælastofnunar. Auðvitað er ekki auðvelt að vita í hvaða vörum erfðabreytt innihald er að finna enda hefur engin fræðsla átt sér stað um það af hendi opinberra aðila.

Til að einfalda neytendum að skilja hvaða innihaldsefni„ geti verið erðfabreytt“ fékk Náttúran leyfi til að þýða tékklista yfir ósýnileg erfðabreytt innihaldsefni í matvælum úr Non GMO Shopping Guide sem The Institute for Responsible Technology og The Non GMO Project gefa út. Þú getur líka náð í App á GMO Shopping Guide síðunni en hann miðast við bandarískar aðstæður og tekur yfir vörur sem fæstar er að finna hér á landi.

Eftirfarandi innihaldsefni í matvælum geta verið erfðabreytt:


this article continues, read more...



Guðrún Arndís Tryggvadóttir
5. January 2012 22:55
Origin: Náttúran.is

Einkunn

Bókun bæjarráðs Hveragerðis frá því í morgun

Hveragerðisbær lógó

Á bæjarráðsfundi í Hveragerðis nú í morgun var lögð fram greinargerð (sjá greinargerðina) um forsendur og álitamál vegna fyrirhugaðrar ræktunar erfðabreyttra lífvera að Reykjum í Ölfusi og hún tekin til umfjöllunar.

Ennfremur var lögð fram skýrsla unnin af „Kynningarátaki um erfðabreyttar lífverur“ en að því standa Landvernd, Matvæla- og veitingafélag Íslands, Náttúrulækningafélag Íslands, Neytendasamtökin, Slow food Reykjavík og Vottunarstofan Tún.

Bæjarráð undrast það að ekki skuli hafa verið leitað álits Hveragerðisbæjar við útgáfu starfsleyfis til handa Orf líftækni að Reykjum og telur að skilyrðislaust hefði átt að kynna þetta mál fyrir bæjarstjórn eða á opnum fundi með íbúum. Þrátt fyrir að Reykir tilheyri sveitarfélaginu Ölfusi, stjórnsýslulega séð,  þá eru landfræðilegar aðstæður með þeim hætti að allt sem þar gerist hefur áhrif í Hveragerði enda eru ekki nema 150 metrar frá umræddu tilraunagróðurhúsi í næsta íbúðarhús bæjarins og um 350 metrar í miðbæinn. Þessi staðreynd ein og sér ætti að nægja til að Hvergerðingum yrði kynnt hvernig starfsemi Orf líftækni á að fara fram. Bæjarráð felur bæjarstjóra að óska eftir fundi með hlutaðeigandi aðilum sem skýrt getur þau sjónarmið sem búa að baki umræddri leyfisveitingu.

Sjá frétt um bókun bæjarráðs á hveragerdi.is.


details

Guðrún Arndís Tryggvadóttir
5. January 2012 10:04
Origin:

Einkunn

Um erfðabreytta ræktun að Reykjum í Ölfusi og yfirlýsingar formanns Neytendasamtakanna

Á vefsíðu Vísis og í Fréttablaðinu í gær þ. 3. janúar var viðtal við Jóhannes Gunnarsson formann Neytendasamtakanna vegna greinargerðar (sjá greinargerðina hér), sem Jóhannes vill meina að ekki hafi verið borin formlega undir né samþykkt af Neytendasamtökunum. Þar sem ég er aðili að umræddri greinargerð, sem fjallar um landnám erfðabreyttra lífvera að Reykjum í Ölfusi og mótmæli nokurra íbúa, stofnana og félagasamtaka vegna þessa landnáms og þar sem ég kynnti málið einnig fyrir Neytendasamtökunum, vil ég koma eftirfarandi á framfæri fyrrnefndra fjölmiðla.

Umrætt málefni var upphaflega kynnt Neytendasamtökunum  þann 1. desember sl. og síðan sett á dagskrá starfshóps Neytendasamtakanna, sem fjallar um Umhverfi, matvæli og siðræna neyslu,  á fundi sem fram fór þann 8.desember sl. Í umræddum starfshópi eru sérfræðingar á ýmsum sviðum, m.a. í umhverfismálum og um erfðabreyttar lífverur. Kynnti ég málið formlega þarna á fundinum fyrir félögum mínum þ.m.t. Jóhannesi formanni. Var málið kynnt ítarlega við góðar undirtektir starfshópsins og  formaður kvaðst mundi skrifa forstjóra Umhverfisstofnunar og leggja málið einnig fyrir stjórn Neytendasamtakanna á þriðjudaginn (væntanlega þann 13. desember). Eins og fram kemur hér að framan  voru Neytendasamtökunum áður send drög að greinargerðinni,  ekki komu athugasemdir, fyr en rétt fyrir fundinn að Jóhannes kom með athugasemdir og var greinargerðinni breytt í samræmi við þær athugasemdir. Var orðalag í lokadrögum í greinargerð okkar á þá leið unnið í samstarfi eftirfarandi aðila, og m.a. Neytendasamtökin talin þar upp.

Bent er á að starfsleyfi það, sem málið fjallar um, er dagsett þann 30. nóvember sl. Frestur til athugasemda til Umhverfisstofnunar var til 30. desember. Ljóst var því að nokkuð þyrfti að hraða málinu og gera athugasemdir fyrir tilskilinn frest. Formlegt samþykki stjórnar Neytendasamtakanna hefur enn ekki borist og nafn samtakanna því ekki með á greinargerðinni, sem send var forstjóra Umhverfisstofnunar.

Málið er nokkuð sérstakt, m.a. vegna þess að Neytendasamtökin hafa um árabil haldið uppi fræðslu um erfðabreyttar lífverur og nauðsyn þess að neysluvörur, sem innihalda slíkt séu merktar,  m.a. meir en nokkur annar opinber aðili hér á landi, bæði á þingum sínum, mörgum fundum og í hinu ágæta Neytendablaði, sem og með málflutningi í öðrum fjölmiðlum. Neytendasamtökin eru jafnframt aðilar að og einn helsti stuðningsaðili Kynningarátaks um erfðabreyttar lífverur, en eftirtaldir aðilar standa að kynningarátakinu um erfðabreyttar lífverur: Landvernd, Matvæla- og veitingafélag Íslands, Náttúrulækningafélag Íslands, Neytendasamtökin, Slow Food Reykjavík og Vottunarstofan Tún. Markmiðið með átakinu er að upplýsa um kosti og galla erfðatækninnar, að vinna gegn sleppingu erfðabreyttra lífvera í ljósi óvissu um áhrif þeirra á umhverfi og heilsufar, og að löggjöf um þessi mál verði hert til muna.. Bendi ég öllum á að kynna sér málefnið á vefsíðunni www.erfdabreytt.net.

Hveragerði 3. janúar 2012
Birgir Þórðarson, náttúrufræðingur

Ljósmynd: Erfðabreytt byggræktun í gróðurhúsi að Reykjum í Ölfusi. Myndin er tekin þ. 26. des. sl., Guðrún A. Tryggvadóttir.


details

Birgir Þórðarson
4. January 2012 08:50
Origin: Náttúran.is

Einkunn

1234161718

2005   2006   2007   2008   2009   2010   2011   2012  
jan   feb  

Nature's Market

How do I shop at Nature's Market?
  • Departments
  • Cart
  • Product search
  • Guidelines
  • Disclaimer
Indicator

Recent comments

Fyrirspurn til Matvælastofnunar
Matvælastofnun vísar á heilbrigðiseftirlit sveitarfélaganna um eftirlitsskyldu. Hinsvegar hefur Matvælastofnun ekkert kynnt eða rætt málið ...
Lesandi 31. 01. 2012 18:23:
Fyrirspurn til Matvælastofnunar
Sæl María. Við sendum opna fyrirspurn um þetta til MAST og hér að ofan má ...
Guðrún Tryggvadóttir 26. 01. 2012 23:57:
Fyrirspurn til Matvælastofnunar
er byrjað að merkja þessar vörur? ég hef ekki tekið eftir neinum merkingum ennþá.
María 26. 01. 2012 12:12:
Avokadoolía í stað augnkrems
Veit það því miður ekki. Ég myndi spyrja Kollu grasalækni eða heilsubúðirnar.
Guðrún Tryggvadóttir 24. 01. 2012 14:49:
Avokadoolía í stað augnkrems
Hvar fæst svona avokadoolía???
Elín 23. 01. 2012 13:26:
Spjaldtölvur í skólum
Náttúran beindi fyrirspurn til Stéfáns Gíslasonar um rafbækur og umhverfið og sendi hann okkur þennan ...
um rafbækur og umhverfið 23. 01. 2012 11:01:
Fyrirspurn til Matvælastofnunar
Svar Matvælastofnunar hefur borist: „Merkingar á matvörum með erfðabreyttu innihaldi“. Reglugerðin um merkingu erfðabreyttra matvæla ...
Guðrún Tryggvadóttir 18. 01. 2012 11:02:
Sóríasis
TAkk
:D 17. 01. 2012 20:21:
Iðnaðarsalt í matvælum
Iðnaðarsalt átti ekki að nota í matvæli: http://vefblod.visir.is/index.php?s=5738&p=125721
úr Fréttablaðinu 17. 01. 2012 09:26:

+ Fleiri ummæli

Fréttir frá: