04.02.2012 kl. 07:30
Færð og aðstæður
Á Mosfellsheiði eru hálkublettir en hálka á Lyngdalsheiði. Hálkublettir eru víða í uppsveitum Suðurlands.
Á norðanverðu Snæfellsnesi og á Fróðárheiði er snjóþekja en hálkublettir á Vatnaleið. Hálka er á Bröttubrekku og Holtavörðuheiði en snjóþekja á Laxárdalsheiði og í Svínadal.
Þæfingsfærð og skafrenningur er á Kleifaheiði og Klettshálsi en snjóþekja og éljagangur á Ódrúgs- og Hjallahálsi. Á Steingrímsfjarðarheiði er snjóþekja og él en þæfingsfærð og él á Þröskuldum. Annars er hálka eða hálkublettir á flestum öðrum leiðum á Vestfjörðum nema hvað það er snjóþekja frá Súðavík og í Reykjanes.
Á Norðurlandi vestra eru hálkublettir á flestum leiðum í Húnavatnssýslum, að mestu autt í Skagafirði en hálkublettir og þoka á Öxnadalsheiði.
Hálka er frá Hjalteyrarafleggjara út á Siglufjörð. Hálkublettir eru á Víkurskarði og Fljótsheiði en hálka á Mývatns- og Möðrudalsöræfum. Einnig eru hálkublettir á Sandvíkurheiði, Hófaskarði og á Hálsum. Flughált er á Hólasandi.
Á Austurlandi er hálka á Fjarðarheiði og hálkublettir á Oddskarði en flestar aðrar leiðir eru greiðfærar.
Á Suðausturlandi er allar helstu leiðir greiðfærar.
Þungatakmarkanir
Vegna hættu á slitlagsskemmdum hefur viðauki 1 verið felldur úr gildi og ásþungi takmarkaður við 10 tonn á nokkrum vegum á Austurlandi og eins á Suðausturlandi alveg vestur að Hvolsvelli. Þetta á einnig við um Norðfjarðarveg og Vattarnesveg frá kl 10, laugardaginn 4. febrúar.
Misjafnir þjónustutímar
Vegfarendur eru beðnir að hafa í huga að víða er ekki mokstur eða önnur þjónusta á vegum, á kvöldin og yfir nóttina. Þá eru sumir vegir ekki í þjónustu nema fáa daga í viku. Upplýsingar um þjónustutíma eru á vef Vegagerðarinnar og í síma 1777.
Hreindýr á Austur- og Suðausturlandi
Vegagerðin og Náttúrustofa Austurlands vara vegfarendur við umferð hreindýra á Austur- og Suðausturlandi.
Sjá má staðsetningu hreindýrasvæða hér.
Upplýsingar birtar með fyrirvara um heimild og tæknilegt aðgengi að upplýsingumHeimild:
Vegagerðin