Dúkkuföt - sett með 6 hlutum
Saumuð dúkkuföt úr lífrænni bómull í tösku m. rennilás.
Taska með 6 hlutum: 2 stk. buxnasamfestingar, treyja/jakka, kjóll, bleyjubuxur og smekkur. Mjög vönduð framleiðsla.
Stærð: Passar á Baby-born dúkkur eða dúkkur í álíka stærð.
Framleitt á Norður-Indlandi.
Samtökin EMA (Equitable Marketing Association) votta gæðin sem Fair trade framleiðslu.
EMA voru stofnuð árið 1977 af stúdentum og prófessorum þeirra í samvinnu við SEED (samtök um jöfnuð í framleiðsluþróun á Indlandi) í þeim tilgangi að hjálpa þeim verst settu í þjóðfélaginu til að brauðfæða sig og sína. EMA eru markaðssetningar-samtök sem í dag markaðssetja og selja mest alla handverksframleiðslu á Indlandi. Þau eru styrkt af mörgum þróuðum ríkjum í heiminum. Helsti markhópur samtakanna eru konur sem þurfa stuðning til að þróa og koma eigin framleiðslu á framfæri. Þær njóta m.a. menntunar og þjálfunar samtakanna í þessu skyni.
Siðgæðisvottun-Fair trade er staðfesting á því að varan er unnin á siðferðislega sanngjarnan hátt, án skaðlegra áhrifa fyrir starfsmenn og að þeir fái sanngjörn laun fyrir vinnu sína.
Producer:
Bishopston Trading CompanyContent weight:
0 gTotal weight:
140gHeight: 60mm Width: 200mm Depth: 140mm
Content:
100% lífræn bómullSeller:
Náttúran.isCategories:
- The kid's room
- Nature's Market
- Branch store
- The Environment
- Certification
Föt og klæði
Föt og klæði eru endurnotuð eða endurnýtt hérlendis/erlendis. Gefið þurfandi eða selt hérlendis/erlendis og ágóði nýttur til hjálparstarfs Rauða kross Íslands. Safnað í samvinnu við RKÍ. Vinsamlegast skilið hreinu og þurru í lokuðum plastpokum.
Nytjahlutir
Góði hirðirinn
Markmið Góða hirðisins, nytjamarkaðs SORPU og líknarfélaga, er að endurnýta húsmuni og láta gott af sér leiða, því ágóðinn af sölunni rennur til góðgerðarmála. Tekið er við hlutum sem eru með óskert notagildi og tilheyra heimilishaldi s.s. húsgögnum, rafmagnstækjum, innanstokksmunum, leikföngum, bókum, plötum og geisladiskum. Nytjagámar fyrir Góða hirðinn eru á endurvinnslustöðvunum. Ekki er tekið við hlutum beint í Góða hirðinum, Fellsmúla 28, nema í sérstökum tilfellum og þá að höfðu samráði fyrst við verslunarstjóra.
Athugið að ekki er hægt að flokka frauðplast til endurvinnslu!
Græna tunnan er í boði á ýmsum stöðum á landinu. Dagblöð, tímarit, bæklinga og pappa má setja beint í tunnuna, mjólkurfernur í sér poka, niðursuðudósir og smærri málmhluti í sér poka, plastumbúðir í sér poka. Rafhlöður og gler má ekki setja í Grænu tunnuna. Græna tunnan er endurgjaldsskyld þjónusta á vegum Íslenska gámafélagsins ehf.
Endurvinnslutunnan er í boði á ýmsum stöðum á landinu. Dagblöð, tímarit, skrifstofupappír, bæklinga, umslög og fjölpóst, pappa s.s. hreina pizzukassa og morgunkornspakka má setja beint í tunnuna. Fernur í sér poka, niðursuðudósir og smærri málmhluti í sér poka, plastumbúðir í sér poka. Rafhlöður má setja í tunnuna í bláum sérmerktum pokum. Gler má ekki setja í Endurvinnslutunnuna. Endurvinnslutunnan er endurgjaldsskyld þjónusta á vegum Gámaþjónustunnar hf.
Allar plastumbúðir, s.s. brúsar, fötur, plastpokar o.fl. Endurnýting hérlendis og erlendis. Plastumbúðir eru flokkaðar eftir tegundum til áframhaldandi vinnslu. Plastumbúðirnar skulu vera tómar, hreinar og samanpressaðar.
return
All information is subject to correct information from suppliers, typing errors, mixed up images and any other mistakes.
Prices include VSK (VAT)

E -
Sláið inn númer E-efnis eða upphaf heitis, veljið úr listanum og smellið á sækja.
Events calendar
Viðvörun
Búist er við stormi N- og A-lands í nótt. Gildir til 10.02.2012 18:00Meira














