Vinnustofa í gerð hollustu- eftirrétta
- Location
- Sólheimar
- Start
- Saturday 15. November 2014 14:00
- End
- Saturday 15. November 2014 18:00
Related content
Vinnustofa í gerð hollustu- eftirrétta
Pami Sami er frá Portúgal og býr og starfar í bakaríinu á Sólheimum en hún er að ljúka námi í grasalækningum í Bretlandi.
Pami heldur vinnustofu á Sólheimum þ. 15. nóvember nk. og hefst vinnustfona kl. 14:00 og stendur fram eftir degi. Pami kennir að gera vegan- og hrá-vegan eftirrétti, sykurlausa og einfalda í tilbúningi. Smakk á eftir.
Pami heldur úti bloggsíðunni receitasdomenuverde.blogspot.com en þar er að finna fjölda frábærra og ekki síður fallegra uppskrifta og ráða úr ríki náttúrunnar.
Efnið á vefnum er bæði á portúgölsku og ensku.
Nánari upplýsingar um vinnustofuna hjá Pami í síma 852 2889 og á cristal_cosmico@hotmail.com.
Birt:
Tilvitnun:
Guðrún Arndís Tryggvadóttir „Vinnustofa í gerð hollustu- eftirrétta“, Náttúran.is: Nov. 9, 2014 URL: http://www.nature.is/d/2014/11/09/namskeid-i-gerd-hheilsusamlegir-eftirrettir/ [Skoðað:Dec. 7, 2025]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.


Björt Ólafsdóttir umhverfis- og auðlindaráðherra hefur lagt fram skýrslu fyrir Alþingi um stöðu og stefnu í loftslagsmálum. Tilgangur skýrslunnar er að draga saman nýjustu og bestu upplýsingar um stöðuna í loftslagsmálum og að skapa umræðu um næstu skref í þeim efnum.
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið hefur gefið út reglugerð um umhverfismerki en hún gildir um norræna umhverfismerkið Svaninn, og umhverfismerki Evrópusambandsins Blómið. Reglugerðin kveður á um skilyrði fyrir veitingu þessara umhverfismerkja fyrir vörur og þjónustu.
Umhverfisstofnun veitti ekki leyfi fyrir tveimur hótelbyggingum á verndarsvæði Mývatns. Skolphreinsun hótelanna er einnig án leyfis Umhverfisstofnunar. Þá er frárennsli hótels skammt frá vatnsbakka Mývatns bæði í ósamræmi við skilmála deiliskipulags og reglugerðir um hreinsun frárennslis við vatnið. Starfsmannahúsum var bætt við annað hótelið í haust án leyfis Umhverfisstofnunar. Umhverfisstofnun veitti ekki leyfi fyrir vinnubúðum fyrir 50 manns við þriðja hótelið, sem nú er í byggingu. Landvernd freistar þess nú með röð stjórnsýslumála að fá tekið á málum sem varða lífríki Mývatns og allan almenning, í ljósi sívaxandi þunga ferðamannastaums og aukins álags á verndarsvæðin í landinu. Mývatn ver sig ekki sjálft.
Aðalfundur Umhverfisvaktarinnar við Hvalfjörð 2017 verður haldinn sunnudaginn 12. febrúar 2017 kl 17:00 í Garðakaffi, Görðum á Akranesi.
Málþing og vinnustofur í Norræna húsinu 2. febrúar 2017
Í gær lýsti forsætisráðherra Íslendinga því yfir í fyrsta sinn, kvitt og klárt, í stefnuræðu sinni að: