Tilnefningafrestur til náttúru- og umhverfisverðlauna Norðulandaráðs rennur út
- Location
- Not located
- Start
- Sunday 08. February 2015 00:00
- End
- Friday 13. March 2015 23:59
Related content
Óskað eftir tilnefningum til náttúru- og umhverfisverðlauna Norðurlandaráðs
Hver á heiður skilinn fyrir að hafa stuðlað að minni losun gróðurhúsalofttegunda á Norðurlöndum? Nú geta allir lagt fram tilnefningar til náttúru- og umhverfisverðlauna Norðurlandaráðs 2015. Tilkynnt verður um verðlaunahafa á verðlaunahátíð Norðurlandaráðs í Reykjavík.
Náttúru- og umhverfisverðlaun Norðurlandaráðs verða afhent í 21. sinn á verðlaunahátíð í Hörpu þann 27. október.
Þema verðlaunanna í ár er losun gróðurhúsalofttegunda. Að sögn dómnefndarinnar verða verðlaunin veitt fyrirtæki, samtökum eða einstaklingi sem þróað hefur undraverða vöru eða uppfinningu eða með öðrum skapandi hætti stuðlað að minni losun gróðurhúsalofttegunda á Norðurlöndum til frambúðar.
Hér er hægt að leggja fram tilnefningu.
Tilnefningarfrestur er til 13. apríl 2015.
Tilkynnt verður um tilnefningar til náttúru- og umhverfisverðlaunanna í júní.
Reykjavíkurborg hlaut verðlaunin í fyrra en Marorka hlaut verðlaunin árið
Náttúru- og umhverfisverðlaun Norðurlandaráðs nema 350 þúsundum danskra króna. Í fyrra féllu þau í skaut Reykjavíkurborgar fyrir framlag sveitarfélagsins til umhverfismála.
Þema síðasta árs tengdist umhverfisstarfi sveitarfélaga eða staðbundinna samfélaga en í ár verður einnig hægt að tilnefna einstaklinga.
Dæmi um fyrri verðlaunahafa:
Verðlaunin hafa verið veitt frá 1995 og meðal fyrri verðlaunahafa eru Selina Juul, fyrir starf sitt í baráttunni gegn matarsóun, umhverfissinninn Olli Manninen hin þekktu norsku umhverfissamtök Bellona, grænlensku umhverfissamtökin Inuit Circumpolar Conference, skrifstofa Agenda 21 á Álandseyjum, umhverfisbaráttumaðurinn Bogi Hansen frá Færeyjum, sveitarfélagið Albertslund í Danmörku, þrír norrænir bankar auk Scandic-hótelanna.
Birt:
Tilvitnun:
Norden - Norræna ráðherranefndin, Guðrún Arndís Tryggvadóttir „Óskað eftir tilnefningum til náttúru- og umhverfisverðlauna Norðurlandaráðs“, Náttúran.is: April 8, 2015 URL: http://www.nature.is/d/2015/02/08/oskad-eftir-tilnefningum-til-natturu-og-umhverfisv/ [Skoðað:Feb. 10, 2026]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
skrifað: Feb. 8, 2015
breytt: April 8, 2015


Björt Ólafsdóttir umhverfis- og auðlindaráðherra hefur lagt fram skýrslu fyrir Alþingi um stöðu og stefnu í loftslagsmálum. Tilgangur skýrslunnar er að draga saman nýjustu og bestu upplýsingar um stöðuna í loftslagsmálum og að skapa umræðu um næstu skref í þeim efnum.
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið hefur gefið út reglugerð um umhverfismerki en hún gildir um norræna umhverfismerkið Svaninn, og umhverfismerki Evrópusambandsins Blómið. Reglugerðin kveður á um skilyrði fyrir veitingu þessara umhverfismerkja fyrir vörur og þjónustu.
Umhverfisstofnun veitti ekki leyfi fyrir tveimur hótelbyggingum á verndarsvæði Mývatns. Skolphreinsun hótelanna er einnig án leyfis Umhverfisstofnunar. Þá er frárennsli hótels skammt frá vatnsbakka Mývatns bæði í ósamræmi við skilmála deiliskipulags og reglugerðir um hreinsun frárennslis við vatnið. Starfsmannahúsum var bætt við annað hótelið í haust án leyfis Umhverfisstofnunar. Umhverfisstofnun veitti ekki leyfi fyrir vinnubúðum fyrir 50 manns við þriðja hótelið, sem nú er í byggingu. Landvernd freistar þess nú með röð stjórnsýslumála að fá tekið á málum sem varða lífríki Mývatns og allan almenning, í ljósi sívaxandi þunga ferðamannastaums og aukins álags á verndarsvæðin í landinu. Mývatn ver sig ekki sjálft.
Aðalfundur Umhverfisvaktarinnar við Hvalfjörð 2017 verður haldinn sunnudaginn 12. febrúar 2017 kl 17:00 í Garðakaffi, Görðum á Akranesi.
Málþing og vinnustofur í Norræna húsinu 2. febrúar 2017
Í gær lýsti forsætisráðherra Íslendinga því yfir í fyrsta sinn, kvitt og klárt, í stefnuræðu sinni að: