Sumardagurinn fyrsti í Garðyrkjuskólanum
- Location
- Reykir, Ölfusi
- Start
- Thursday 23. April 2015 14:00
- End
- Thursday 23. April 2015 16:00
- sjá viðburð
Related content
Sumardagurinn fyrsti í Garðyrkjuskólanum
Garðyrkjuskólinn að Reykjum verður opinn fyrir gesti og gangandi. Fullt af skemmtilegum viðburðum og ferskt grænmeti til sölu.
- Glæný uppskera af hnúðkáli
- Grænmetismarkaður; beint frá bónda
- Stærsta bananaplantekra Evrópu verður til sýnis
- Ratleikur fyrir börnin
- Pylsur og með því
- Vöfflur og hvað eina
- og margt margt fleira
Einnig verður sérstök hátíðardagskrá.
Þar mun Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra veita garðyrkjuverðlaunin 2015. Einnig mun Ólafur Ragnar Grímsson forseti veita umhverfisverðlaun Hveragerðis 2015 og að lokum mun Illugi Gunnarsson mennta og menningarmálaráðherra veita umhverfisverðlaun Ölfuss 2015.
Húsið opnar klukkan 10 og hátíðardagskráin hefst klukkan 2.
Komdu og blómstraðu með okkur á nýju sumri.
Allir velkomnir!
- Garðyrkjunemendur
Birt:
Tilvitnun:
Landbúnaðarháskóli Íslands - LBHÍ „Sumardagurinn fyrsti í Garðyrkjuskólanum“, Náttúran.is: April 21, 2015 URL: http://www.nature.is/d/2015/04/21/sumardagurinn-fyrsti-i-gardyrkjuskolanum/ [Skoðað:Dec. 7, 2025]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.


Björt Ólafsdóttir umhverfis- og auðlindaráðherra hefur lagt fram skýrslu fyrir Alþingi um stöðu og stefnu í loftslagsmálum. Tilgangur skýrslunnar er að draga saman nýjustu og bestu upplýsingar um stöðuna í loftslagsmálum og að skapa umræðu um næstu skref í þeim efnum.
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið hefur gefið út reglugerð um umhverfismerki en hún gildir um norræna umhverfismerkið Svaninn, og umhverfismerki Evrópusambandsins Blómið. Reglugerðin kveður á um skilyrði fyrir veitingu þessara umhverfismerkja fyrir vörur og þjónustu.
Umhverfisstofnun veitti ekki leyfi fyrir tveimur hótelbyggingum á verndarsvæði Mývatns. Skolphreinsun hótelanna er einnig án leyfis Umhverfisstofnunar. Þá er frárennsli hótels skammt frá vatnsbakka Mývatns bæði í ósamræmi við skilmála deiliskipulags og reglugerðir um hreinsun frárennslis við vatnið. Starfsmannahúsum var bætt við annað hótelið í haust án leyfis Umhverfisstofnunar. Umhverfisstofnun veitti ekki leyfi fyrir vinnubúðum fyrir 50 manns við þriðja hótelið, sem nú er í byggingu. Landvernd freistar þess nú með röð stjórnsýslumála að fá tekið á málum sem varða lífríki Mývatns og allan almenning, í ljósi sívaxandi þunga ferðamannastaums og aukins álags á verndarsvæðin í landinu. Mývatn ver sig ekki sjálft.
Aðalfundur Umhverfisvaktarinnar við Hvalfjörð 2017 verður haldinn sunnudaginn 12. febrúar 2017 kl 17:00 í Garðakaffi, Görðum á Akranesi.
Málþing og vinnustofur í Norræna húsinu 2. febrúar 2017
Í gær lýsti forsætisráðherra Íslendinga því yfir í fyrsta sinn, kvitt og klárt, í stefnuræðu sinni að: