Móttaka umsagna um drög að breytingum á reglugerð um rafhlöður og rafgeyma
- Location
- Not located
- Start
- Wednesday 28. October 2015 00:00
- End
- Thursday 05. November 2015 23:59
Related content
Drög að breytingum á reglugerð um rafhlöður og rafgeyma til kynningar
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið óskar eftir umsögnum um drög að breytingum á reglugerð um rafhlöður og rafgeyma.
Markmiðið með breytingunni er tvíþætt. Annars vegar þarf að uppfæra reglugerðina miðað við breytingar sem gerðar hafa verið á lögum um meðhöndlun úrgangs. Þar var m.a. ábyrgð á rekstri skráningarkerfis framleiðanda og innflytjanda rafhlaðna og rafgeyma fært frá Úrvinnslusjóði til Umhverfisstofnunar og síðarnefndu stofnuninni einnig falið að hafa eftirlit með framkvæmd þessara mála.
Hins vegar þarf að uppfæra reglugerðina vegna innleiðingar á breytingum á tilskipun Evrópusambandsins um rafhlöður og rafgeyma. Þær breytingar varða markaðssetningu færanlegra rafhlaðna og rafgeyma sem innihalda tiltekin efni.
Að lokum eru gerðar smávægilegar breytingar til að skerpa á verkaskiptingu Umhverfisstofnunar og heilbrigðisnefnda í eftirliti.
Hægt er að senda inn umsagnir um drögin til og með 6. nóvember 2015 á netfangið postur@uar.is og í bréfpósti á umhverfis- og auðlindaráðuneytið, Skuggasundi 1, 101 Reykjavík.
Drög að breytingu á reglugerð nr. 1020/2011 um rafhlöður og rafgeyma
Birt:
Tilvitnun:
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið „Drög að breytingum á reglugerð um rafhlöður og rafgeyma til kynningar“, Náttúran.is: Nov. 3, 2015 URL: http://www.nature.is/d/2015/11/05/drog-ad-breytingum-reglugerd-um-rafhlodur-og-rafge/ [Skoðað:Jan. 18, 2026]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
skrifað: Nov. 5, 2015


Björt Ólafsdóttir umhverfis- og auðlindaráðherra hefur lagt fram skýrslu fyrir Alþingi um stöðu og stefnu í loftslagsmálum. Tilgangur skýrslunnar er að draga saman nýjustu og bestu upplýsingar um stöðuna í loftslagsmálum og að skapa umræðu um næstu skref í þeim efnum.
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið hefur gefið út reglugerð um umhverfismerki en hún gildir um norræna umhverfismerkið Svaninn, og umhverfismerki Evrópusambandsins Blómið. Reglugerðin kveður á um skilyrði fyrir veitingu þessara umhverfismerkja fyrir vörur og þjónustu.
Umhverfisstofnun veitti ekki leyfi fyrir tveimur hótelbyggingum á verndarsvæði Mývatns. Skolphreinsun hótelanna er einnig án leyfis Umhverfisstofnunar. Þá er frárennsli hótels skammt frá vatnsbakka Mývatns bæði í ósamræmi við skilmála deiliskipulags og reglugerðir um hreinsun frárennslis við vatnið. Starfsmannahúsum var bætt við annað hótelið í haust án leyfis Umhverfisstofnunar. Umhverfisstofnun veitti ekki leyfi fyrir vinnubúðum fyrir 50 manns við þriðja hótelið, sem nú er í byggingu. Landvernd freistar þess nú með röð stjórnsýslumála að fá tekið á málum sem varða lífríki Mývatns og allan almenning, í ljósi sívaxandi þunga ferðamannastaums og aukins álags á verndarsvæðin í landinu. Mývatn ver sig ekki sjálft.
Aðalfundur Umhverfisvaktarinnar við Hvalfjörð 2017 verður haldinn sunnudaginn 12. febrúar 2017 kl 17:00 í Garðakaffi, Görðum á Akranesi.
Málþing og vinnustofur í Norræna húsinu 2. febrúar 2017
Í gær lýsti forsætisráðherra Íslendinga því yfir í fyrsta sinn, kvitt og klárt, í stefnuræðu sinni að: