Fræðslufundur um litadýrð og aðra eiginleika í bötun birkis til nota í skóga og garða
- Location
- Síðumúli 1
- Start
- Wednesday 09. March 2016 19:30
- End
- Wednesday 09. March 2016 21:00
Related content
Fræðslufundur: Litadýrð og aðrir eiginleikar í bötun birkis til nota í skóga og garða
Miðvikudaginn 9. mars kl 19:30 efna Skógræktarfélag Reykjavíkur og Garðyrkjufélag Íslands til fræðslufundar í sal Garðyrkjufélagsins í Síðumúla 1 Reykjavík (gengið inn af jarðhæð frá Ármúla).
Þorsteinn Tómasson plöntuerfðafræðingur flytur erindi sem hann nefnir „Litadýrð og aðrir eiginleikar í bötun birkis til nota í skóga og garða“.
Kynbótastarf liðinna ára hefur skilað tveimur nýjum yrkjum sem nú gagnast í íslenskri trjárækt. Ný verkefni sem byggja m.a. á aðflutningi og erfðaefni úr áður óreyndum tegundum frá Evrópu og Asíu gefa fyrirheit um spennandi árangur varðandi vaxtarþrótt, vaxtarlag og liti á berki og laufi.
Þorsteinn Tómasson, fyrrverandi forstjóri Rannsóknastofnunar landbúnaðarins, hefur látið til sín taka á sviði plöntukynbóta á undanförnum áratugum. Hann hefur meðal annars til margra ára unnið að erfðafræði íslenska birkisins en þekktasta afurð kynbótastarfsins er birkiyrkið 'Embla' sem hefur skilað okkur einstaklega fallegu hvítstofna birki sem hefur breytt viðhorfum í ræktun birkis í skógi og borg. Nýtt og spennandi yrki, 'Kofoed', er komið á markað og hvítstofna, rauðblaða birki er í sjónmáli. Meðal nýmæla er tilgáta um áhrif birkifrjós sem berst með loftstraumum til landsins og þátt blendingsþrótts í kynbótastarfinu.
Það verður spennandi að sjá og heyra hvað Þorsteinn hefur fram að færa í erindi sínu á miðvikudaginn en eins og ræktunarfólk þekkir þá leitar hann stöðugt á ný mið.
Aðgangseyrir er krónur 750.
Allir velkomnir!
Birt:
Tilvitnun:
Skógræktarfélag Íslands „Fræðslufundur: Litadýrð og aðrir eiginleikar í bötun birkis til nota í skóga og garða“, Náttúran.is: March 8, 2016 URL: http://www.nature.is/d/2016/03/08/fraedslufundur-litadyrd-og-adrir-eiginleikar-i-bot/ [Skoðað:Jan. 20, 2026]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.


Björt Ólafsdóttir umhverfis- og auðlindaráðherra hefur lagt fram skýrslu fyrir Alþingi um stöðu og stefnu í loftslagsmálum. Tilgangur skýrslunnar er að draga saman nýjustu og bestu upplýsingar um stöðuna í loftslagsmálum og að skapa umræðu um næstu skref í þeim efnum.
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið hefur gefið út reglugerð um umhverfismerki en hún gildir um norræna umhverfismerkið Svaninn, og umhverfismerki Evrópusambandsins Blómið. Reglugerðin kveður á um skilyrði fyrir veitingu þessara umhverfismerkja fyrir vörur og þjónustu.
Umhverfisstofnun veitti ekki leyfi fyrir tveimur hótelbyggingum á verndarsvæði Mývatns. Skolphreinsun hótelanna er einnig án leyfis Umhverfisstofnunar. Þá er frárennsli hótels skammt frá vatnsbakka Mývatns bæði í ósamræmi við skilmála deiliskipulags og reglugerðir um hreinsun frárennslis við vatnið. Starfsmannahúsum var bætt við annað hótelið í haust án leyfis Umhverfisstofnunar. Umhverfisstofnun veitti ekki leyfi fyrir vinnubúðum fyrir 50 manns við þriðja hótelið, sem nú er í byggingu. Landvernd freistar þess nú með röð stjórnsýslumála að fá tekið á málum sem varða lífríki Mývatns og allan almenning, í ljósi sívaxandi þunga ferðamannastaums og aukins álags á verndarsvæðin í landinu. Mývatn ver sig ekki sjálft.
Aðalfundur Umhverfisvaktarinnar við Hvalfjörð 2017 verður haldinn sunnudaginn 12. febrúar 2017 kl 17:00 í Garðakaffi, Görðum á Akranesi.
Málþing og vinnustofur í Norræna húsinu 2. febrúar 2017
Í gær lýsti forsætisráðherra Íslendinga því yfir í fyrsta sinn, kvitt og klárt, í stefnuræðu sinni að: