Vistmorð - Opnar samræður milli Polly Higgins og Kristínar Völu Ragnarsdóttur
- Location
- Norræna húsið
- Start
- Saturday 16. August 2014 15:30
- End
- Saturday 16. August 2014 16:30
Related content
Vistmorð - Opnar samræður milli Polly Higgins og Kristínar Völu Ragnarsdóttur
Laugardaginn 16 ágúst kl 15:30-16:30 mun Kristín Vala Ragnarsdóttir prófessor við Jarðvísindastofnun eiga opnar samræður við Polly Higgins lögræðing frá Bretlandi um vistmorð. Þær munu fjalla um hugtakið, útskýra það og hvernig við getum barist gegn þeirri hröðu þróun eyðileggingar sem maðurinn veldur. Polly vinnur að því að vistmorð verði viðurkennt sem glæpur til þess að unnt verði að vernda vistkerfi og lífverurnar sem þar eiga búsvæði.
Kristín Vala mun ræða við Pollý á opinskáan máta og gefa áheyrendum tækifæri til að taka þátt í umræðunum.
Að loknu viðtali þeirra tveggja munum þær fá sér kaffi á AALTO Bistro í Norræna húsinu og þeir sem voru viðstaddir á meðan samræðunum stóð geta sest með þeim og rætt við Polly á óformlegri máta.
Samræðurnar fara fram á ensku og allir eru velkomnir og aðgangur ókeypis.
Þjóðarmorð (Genocide) er hugtak sem allir þekkja og hefur verið lýst ólöglegu á alþjóðavísu. Polly Higgins hefur undanfarin ár verið að vekja athygli á nýja hugtakinu vistmorð (Ecocide) sem hún nú berst fyrir að verði einnig gert ólöglegt af alþjóðasamfélaginu. Hún vinnur sína vinnu undir slagorðinu „Upprætum vistmorð“ (Eradicating Ecocide). Ástæðan baráttu hennar er sú staðreynd að líffræðilegur fjölbreytileiki er að minnka frá ári til árs, og um 10.000 lífverur verða útdauðar á ári hverju og fer hraði þessa útdauðaferils hækkandi með ári hverju. Ástæðan er sú að maðurinn er að eyðileggja vistkerfin, þannig að stór hluti vistkerfa heimsins er nú í hættu.
Polly Higgins er sjálstætt starfandi lögfræðingur í Bretlandi. Henni er er mjög annt um jörðina og allar lífverur sem á henna búa. Hún nýtir þekkingu sína í lögfræði og ástúð við vinnu sína, við það geta ný lög þróast, lögð fram og viðurkennd.
Kristín Vala Ragnarsdóttir er prófessor við Jarðvísindastofnun og Stofnun Sæmundar fróða við Háskóla Íslands og hefur undanfarin 15 ár verið að þróa ramma og hugmyndir fyrir sjálfbærni í heiminum.
Hvað þýðir vistmorð?
http://en.wikipedia.org/wiki/Ecocide
Meira um baráttuna gegn vistmorði:
http://eradicatingecocide.com/
Meira um Polly Higgins
http://eradicatingecocide.com/
http://pollyhiggins.com/
Birt:
Tilvitnun:
Norræna húsið „Vistmorð - Opnar samræður milli Polly Higgins og Kristínar Völu Ragnarsdóttur“, Náttúran.is: Aug. 12, 2014 URL: http://www.nature.is/d/2014/08/12/vistmord-opnar-samraedur-milli-polly-higgins-og-kr/ [Skoðað:Feb. 19, 2026]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.


Björt Ólafsdóttir umhverfis- og auðlindaráðherra hefur lagt fram skýrslu fyrir Alþingi um stöðu og stefnu í loftslagsmálum. Tilgangur skýrslunnar er að draga saman nýjustu og bestu upplýsingar um stöðuna í loftslagsmálum og að skapa umræðu um næstu skref í þeim efnum.
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið hefur gefið út reglugerð um umhverfismerki en hún gildir um norræna umhverfismerkið Svaninn, og umhverfismerki Evrópusambandsins Blómið. Reglugerðin kveður á um skilyrði fyrir veitingu þessara umhverfismerkja fyrir vörur og þjónustu.
Umhverfisstofnun veitti ekki leyfi fyrir tveimur hótelbyggingum á verndarsvæði Mývatns. Skolphreinsun hótelanna er einnig án leyfis Umhverfisstofnunar. Þá er frárennsli hótels skammt frá vatnsbakka Mývatns bæði í ósamræmi við skilmála deiliskipulags og reglugerðir um hreinsun frárennslis við vatnið. Starfsmannahúsum var bætt við annað hótelið í haust án leyfis Umhverfisstofnunar. Umhverfisstofnun veitti ekki leyfi fyrir vinnubúðum fyrir 50 manns við þriðja hótelið, sem nú er í byggingu. Landvernd freistar þess nú með röð stjórnsýslumála að fá tekið á málum sem varða lífríki Mývatns og allan almenning, í ljósi sívaxandi þunga ferðamannastaums og aukins álags á verndarsvæðin í landinu. Mývatn ver sig ekki sjálft.
Aðalfundur Umhverfisvaktarinnar við Hvalfjörð 2017 verður haldinn sunnudaginn 12. febrúar 2017 kl 17:00 í Garðakaffi, Görðum á Akranesi.
Málþing og vinnustofur í Norræna húsinu 2. febrúar 2017
Í gær lýsti forsætisráðherra Íslendinga því yfir í fyrsta sinn, kvitt og klárt, í stefnuræðu sinni að: