Framtíð Hengilssvæðisins
Viljum við útivisarsvæði eða Iðnaðarhverfi?
Þessari spurningu er varpað fram á nýjum vef hengill.nu sem gerður hefur verið sérstaklega til að benda á að við höfum eithvað að segja um Hengilssvæðið og að frestur til að gera athugasemdir við virkjanaáætlanir Bitruvirkjun við Ölkelduháls rennur út þ. 9. nóvember nk.
Í inngangstexta á vefnum segir:
VIÐ SPYRJUM OKKUR...
- Hvað þarf til að stöðva svona framkvæmd? Virkjunarsvæðið er skilgreint á náttúruminjaskrá. Svæðið er ennfremur skipulagt sem útivistarsvæði á aðalskipulagi Ölfuss staðfest af umhverfisráðherra í janúar 2005. Nægir þetta virkilega ekki???
- Hvernig má það vera að litlu sveitarfélagi sé heilmilt að þiggja greiðslu og þjónustu frá framkvæmdaraðilanum (sjá grein Stefáns Erlendssonar) þegar taka á ákvarðanir í svona mikilvægum málum sem í raun snerta alla þjóðina?
- Hvers vegna er umhverfismatið framkvæmt og kostað af Orkuveitu Reykjavíkur,
sem einnig er framkvæmdaraðili virkjananna, en ekki af óháðum aðila? - Hlþtur ekki eitthvað að vera athugavert við reglur um tilkynningaskyldun þegar
mæta aðeins tveir og sjö manns á kynningarfundi um umhverfismat?
Myndin er af mastursfæti á einu af ótal möstrum sem fyrir eru á Hellisheiði. Ljósmynd: Guðrún Tryggvadóttir.
Birt:
Oct. 28, 2007
Tilvitnun:
Guðrún Arndís Tryggvadóttir „Framtíð Hengilssvæðisins“, Náttúran.is: Oct. 28, 2007 URL: http://www.nature.is/d/2007/10/28/framt-hengilssvisins/ [Skoðað:Oct. 11, 2024]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
breytt: Nov. 4, 2007