Viðarelementið umlykur lifur og gallblöðru, sem aftur hafa áhrif og gefa kraft til sina og sveigjanleika til sina og vöðva. Lifrin hefur líka sterk áhrif á augun, gefur þeim vökva og skýrir sjón. Jafnframt sér lifrin um að orka allra líffæra sé rétt, t.d. að magaorka fari niður á við og orka miltans rísi. Geðlæg áhrif viðar eru reiði, hvort sem er út á við eða inn á við sem þunglyndi og sjálfsreiði.

Grafík: Signý Kolbeinsdóttir ©Náttúran.is

Birt:
Feb. 17, 2012
Uppruni:
Náttúran.is
Tilvitnun:
Arnbjörg Linda Jóhannsdóttir „Viðarelementið“, Náttúran.is: Feb. 17, 2012 URL: http://www.nature.is/d/2007/05/28/viarelementi/ [Skoðað:May 24, 2025]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
skrifað: May 28, 2007
breytt: April 25, 2012

Messages: