Njólann nú auðveldast að uppræta
Á sumarsólstöðum mun auðveldast að ná njóla upp með rótum, en hann á að vera næsta laus frá moldu einmitt nú. Þetta ráð kemur frá mætum manni, Bjarna Guðmundssyni, fv. prófessor við Landbúnaðarháskóla Íslands á Hvanneyri og mun því ekki rengt hér heldur fólk hvatt til að láta reyna á rótleysi njólans á sumarsólstöðum, skildi hann eiga sér bústað þar sem nærveru hans er ekki óskað.
Fjöldi sagna er til um mátt og kyngikraft jurta á Jónsmessu/sumarsólstöðum sem vel er lýst af Árna Björnssyni þjóðháttafræðingi. Sjá grein.
Ljósmynd: Njóli [Rumex longifolius] um miðjan júni. Ljósm. Guðrún Tryggvadóttir.
Birt:
June 20, 2015
Tilvitnun:
Guðrún Arndís Tryggvadóttir „Njólann nú auðveldast að uppræta“, Náttúran.is: June 20, 2015 URL: http://www.nature.is/d/2008/06/20/njolinn-rotlaus-i-nott/ [Skoðað:Dec. 8, 2024]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
skrifað: June 20, 2008
breytt: June 20, 2015