Costa Rica kolefnishlutlaust 2021
Costa Rica verður fyrsta kolefnishlutlausa landið í heiminum ef áætlanir þarlendra stjórnvalda ganga eftir. Þessu markmiði á að ná árið 2021. Í þessum tilgangi er m.a. verið að byggja þar upp markað fyrir losunarheimildir með stuðningi Alþjóðabankans. Á síðustu 25 árum hefur þjóðarframleiðsla í Costa Rica þrefaldast á sama tíma og skóglendi hefur tvöfaldast.
(Sjá frétt SustainableBusiness 4. janúar).
Birt:
Jan. 10, 2013
Tilvitnun:
Stefán Gíslason „Costa Rica kolefnishlutlaust 2021“, Náttúran.is: Jan. 10, 2013 URL: http://www.nature.is/d/2013/01/10/costa-rica-kolefnishlutlaust-2021/ [Skoðað:Nov. 3, 2024]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.