Nýleg rannsókn á loftmengun í Ny Ålesund á Svalbarða sýnir að mengun er talsvert meiri þá daga sem skemmtiferðaskip eiga þar viðdvöl en aðra daga. Þetta gildir jafnt um brennisteinsoxíð, svart kolefni (sót) og öragnir (60 nm). Höfundar rannsóknarinnar benda á að þessi mengun geti hugsanlega haft áhrif á vistkerfi svæða sem almennt eru talin ósnortin og jafnframt skekkt niðurstöður mikilvægra grunnmælinga á slíkum svæðum, svo sem á Zeppelinfjalli á Svalbarða. Auk þess sé þetta áminning um mikilvægi þess að huga að vaxandi mengunarhættu samfara aukinni skipaumferð um Norðurslóðir.
(Sjá útdrátt í Atmospheric Chemistry and Physics).

Birt:
March 25, 2013
Höfundur:
Stefán Gíslason
Uppruni:
2020.is
Tilvitnun:
Stefán Gíslason „Skemmtiferðaskip spilla loftgæðum á norðurslóðum“, Náttúran.is: March 25, 2013 URL: http://www.nature.is/d/2013/03/26/skemmtiferdaskip-spilla-loftgaedum-nordurslodum/ [Skoðað:May 21, 2025]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
skrifað: March 26, 2013

Messages: