Nú þegar árstíðin leyfir ekki uppskeru eigin matjurta og dýrt er að kaupa grænmeti á diskinn mælum við með því að salat sé nýtt betur. Oft er hægt að leyfa salati að vaxa áfram á góðum björtum stað og þá með nægum vatnsbirgðum.

Framleiðendur eru vafalaust ekki par hrifnir af því að mælt sé með þessu sparnaðarráði en við látum það ekker á okkur fá, enda bæði umhverfisvænt og budduvænt.

Ljósmynd: Salat vex áfram í glösum í eldhúsglugganum, ljósm. Guðrún Tryggvadóttir.

Birt:
Feb. 3, 2016
Uppruni:
Náttúran.is
Tilvitnun:
Guðrún Arndís Tryggvadóttir „Nýtum salatið betur – Sparnaður“, Náttúran.is: Feb. 3, 2016 URL: http://www.nature.is/d/2014/04/08/nytum-salatid-betur-sparnadur/ [Skoðað:Sept. 20, 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
skrifað: April 8, 2014
breytt: Feb. 3, 2016

Messages: