Taupokinn sem Djúpavogsbúar fá á sumardaginn fyrsta, báðar hliðar.Í ljósi þeirrar stefnu Djúpavogshrepps að draga úr notkun plastpoka og sorpmyndun í samfélaginu, verður öllum heimilum í Djúpavogshreppi gefinn taupoki úr lífrænni bómull í sumargjöf. Krakkar úr elstu bekkjum Djúpavogsskóla munu bera pokana í hús innan Djúpavogs miðvikudaginn nk., en þeir verða sendir út í dreifbýlið.

Hægt verður að kaupa fleiri poka á skrifstofu sveitarfélagsins.

Pokinn er mun sterkari en plastpoki, hann hentar vel til innkaupa eða annarrar endurtekinnar notkunar.

Kostnaður sveitarfélagsins vegna sorpurðunar er hærri en hann þarf að vera og væri því fé betur varið í fjölmargt annað í samfélaginu.

Djúpavogshreppur fékk nýlega sitt eigið Endurvinnslukort inn á heimasíðu sína djupivogur.is sem er í samræmi við stefnu sveitarfélagsins í sorpmálum:  flokkum – endurnýtum – minnkum sorp – spörum fé

Birt:
April 21, 2015
Tilvitnun:
Djúpavogshreppur, Guðrún Arndís Tryggvadóttir „Sumargjöf til íbúa Djúpavogshrepps“, Náttúran.is: April 21, 2015 URL: http://www.nature.is/d/2015/04/21/sumargjof-til-ibua-djupavogshrepps/ [Skoðað:Oct. 4, 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Messages: