Fuglahræða í garðinum. Ljósm. Guðrún Tryggvadóttir.Samkvæmt kenningum sambýlisræktunar þá líður gulrótum vel með laufsalati, lauk, steinselju og radísum. Ég setti því gulrætur, lauk, blaðsalat og radísur saman í beð í eldhúsgarðinn minn í dag.

Gulrótarfræjunum sáði ég beint í garðinn en laukurinn var forræktaður. Það var því ekki hægt að leggja neitt yfir nýsáð fræin án þess að kremja lauklaufin. Til að bægja frá fuglum sem eru fjölmargir að tegundum og tölu hér í kringum Alviðru setti ég upp fuglahræðu sem ég sá notaða í garði í Belgíu fyrir nokkrum árum.

Mold og músík. Ljósm. Guðrún Tryggvadóttir.Fuglahræðan er einfaldlega geisladiskur sem hefur ekkert hlutverk lengur, hengdur upp á grein svo vindurinn geti hreyft hann nóg til að fuglarnir þori ekki að koma að setjast í beðið og éta fræin.

Nú er að sjá hvort að þetta ráð virki ekki eins vel á Íslandi og í Belgíu. Golan hér ætti að nægja til að leyfa ljósbroti frá geisladiskum að leika sér.

Birt:
June 6, 2015
Uppruni:
Náttúran.is
Tilvitnun:
Guðrún Arndís Tryggvadóttir „Geisladiskur verður fuglahræða “, Náttúran.is: June 6, 2015 URL: http://www.nature.is/d/2015/06/06/geisladiskur-verdur-fuglahraeda/ [Skoðað:Dec. 8, 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Messages: