Í Lystigarðinum á Blóm í bæ 2014. Ljósm. Guðrún Tryggvadóttir.Helgina 26. - 28. júní 2015 verður Garðyrkju- og blómasýningin Blóm í bæ haldin í sjötta sinn. Fyrri sýningar hafa notið mikillar hylli og fjöldi gesta sótt hátíðina heim og notið þess sem í boði var.

Sýningarsvæðið er í alfara leið fyrir ferðamenn, aðeins í um 30 mínútna fjarlægð frá höfuðborgarsvæðinu. Fjöldi viðburða verður á sviði garðyrkju, umhverfismála, skógræktar og íslenskrar framleiðslu.

Náttúran.is tekur þátt í hátíðinni og verður í Lystigarðinum laugardaginn og sunnudaginn 27.  og 28. júní frá 12:00 - 18:00 að kynna Endurvinnslukortið fyrir allt landið, Endurvinnsluappið og Endurvinnslukort Hveragerðis

 


Birt:
June 23, 2015
Uppruni:
Náttúran.is
Tilvitnun:
Guðrún Arndís Tryggvadóttir „Endurvinnslukortið á Blóm í bæ“, Náttúran.is: June 23, 2015 URL: http://www.nature.is/d/2015/06/23/endurvinnslukortid-blom-i-bae/ [Skoðað:Oct. 4, 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Messages: