Á að fórna náttúruperlum fyrir ósjálfbærar jarðgufuvirkjanir?
Náttúruverndarsamtök Suðvesturlands heldur málstefna undir yfirstögninni „Á að fórna náttúruperlum fyrir ósjálfbærar jarðgufuvirkjanir?“ í Norræna húsinu miðvikudaginn 6. apríl nk. kl. 16:30.
Þar verður m.a. fjallað um gildi landslags á Reykjanesi og hve framkvæmdir geta spillt upplifun þess sem þar vill njóta náttúrunnar í sem upprunalegastri mynd. Sýndar verða myndir af ýmsum náttúrperlum svæðisins sem sumum hverjum verður e.t.v gjörbreytt á næstunni. Fjallað verður um hugsanlegar afleiðingar af nýtingu háhitasvæða til raforkuframleiðslu og takmörk varanleika þeirra.
Efnisflytjendur hafa, hver á sínu sviði, rannsakað þessi mál vandlega. Benda má á að í tímaritinu Náttúrufræðingurinn 82. árg. 1.- 4. hefti 2012 er greinin „Eðli og endurnýjanleiki jarðvarmakerfa“ eftir Stefán Arnórsson. Þar leiðir Stefán líkur að því að skoða megi háhitasvæði sem námur en ekki óendanlegar orkulindir einkum ef ekki er gætt hófs í nýtingu.
Dagskrá málstefnunnar verður þessi:
- Kl. 16:30 Gildi landslags á Reykjanesi - Höfundar og fyrirlesarar Guðbjörg R. Jóhannesdóttir, aðjúnkt við LHÍ og nýdoktor við Heimspekistofnun HÍ. og Edda R. H. Waage, lektor í land- og ferðamálafræði, Líf- og umhverfisvísindadeild HÍ.
- Kl. 17:15 Náttúruperlur í hættu á Reykjanesskaga - Ellert Grétarsson, náttúruljósmyndari, sýnir myndefni frá Eldvörpum og Krýsuvík.
- Kl. 17:55 Þróun háhitakerfa og umhverfisáhrif nýtingar - Höfundur og fyrirlesari dr. Stefán Arnórsson jarðhitasérfræðingur og fv. prófessor við HÍ.
- Kl. 18:40 Pallborð þar sem flytjendur svara spurningum fundargesta.
Salurinn verður opinn frá kl. 16:00 og gert ráð fyrir að málstefnunni verði lokið kl. 19:10.
Fundarstjóri: Eydís Franzdóttir./Aðgangur ókeypis og allir velkomnir.
Stjórn NSVE hvetur félagsmenn til að mæta.
-
Á að fórna náttúruperlum fyrir ósjálfbærar jarðgufuvirkjanir?
- Location
- Norræna húsið Sturlugata 5
- Start
- Wednesday 06. April 2016 16:30
- End
- Wednesday 06. April 2016 19:00
Tengdir viðburðir
Birt:
Tilvitnun:
Náttúruverndarsamtök Suðvesturlands „Á að fórna náttúruperlum fyrir ósjálfbærar jarðgufuvirkjanir?“, Náttúran.is: March 28, 2016 URL: http://www.nature.is/d/2016/03/27/ad-forna-natturuperlum-fyrir-osjalfbaerar-jardgufu/ [Skoðað:Dec. 8, 2024]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
skrifað: March 27, 2016