Góa heitir sá mánuður nær sól er á hlaupi um fiskamerki. Nú er sama að vinna og varast og á þorra. Nú koma þeir stórstraumar, sem kallast góuginur. (Stórstraumsfjörur sem eru bestar til skeljatöku.) Þá er skeljafiskatekja hægust og best tittlingaveiði, sem þá eru feitari en með smástraumi. Líka er nú góður tími til rjúpnaveiða. Um þessar mundir bæta menn búshluti sína, amboð og önnur áhöld, sem brúkast þurfa sumarið eftir.

Ljósmynd: Skeljar og þari af holmavik.is.

Birt:
Feb. 20, 2011
Tilvitnun:
Björn Halldórsson í Sauðlauksdal „Góa - 20. febrúar – 20. mars“, Náttúran.is: Feb. 20, 2011 URL: http://www.nature.is/d/2007/04/21/20-febrar-20-mars/ [Skoðað:Sept. 16, 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
skrifað: April 21, 2007
breytt: Feb. 20, 2011

Messages: