Stærsta kúamykjuorkuver í heimi var tekið í notkun í Innri-Mongólíu í Kína 21. janúar sl. Í orkuverinu er unnið úr mykju og fráveituvatni frá 10.000 kúm. Úr þessu hráefni fást 12.000 rúmmetrar af metangasi, sem duga til að framleiða 10 milljón KWst eða 10 GWst af raforku á ári. Þetta samsvarar uppsettu afli upp á u.þ.b. 1,5 MW. Auk raforkunnar framleiðir orkuverið 200.000 tonn af áburði árlega, en til þeirrar framleiðslu myndi ella þurfa um 5.000 tonn af kolum. Hreinsað fráveituvatn frá verinu ný tist síðan til vökvunar.
Lesið frétt á heimasíðu Worldwatch Institute 1. feb. sl.

Orð dagsins birtast einnig á vef Staðardagskrá 21 á Íslandi samband.is/dagskra21.
Birt:
Feb. 6, 2008
Höfundur:
Stefán Gíslason
Tilvitnun:
Stefán Gíslason „Orð dagsins 6. febrúar 2008“, Náttúran.is: Feb. 6, 2008 URL: http://www.nature.is/d/2008/02/06/oro-dagsins-6-februar-2008/ [Skoðað:April 1, 2023]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
breytt: Feb. 7, 2008

Messages: